Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.01.2009, Side 3

Bæjarins besta - 29.01.2009, Side 3
FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2009 3 Ragney Líf ásamt foreldrum sínum Valdísi Eiríksdóttur og Stefáni Sigurðssyni. Ragney Líf íþróttamaður ársins 2008 í Ísafjarðarbæ Sundkonan Ragney Líf Stefánsdóttir var útnefnd íþróttamað- ur Ísafjarðarbæjar árið 2008. Ragney Líf er 16 ára og hefur æft sund hjá Íþróttafélaginu Ívari í níu ár. Á síðasta ári keppti hún á þremur stórum mótum; Malmö-open í Svíþjóð, Íslandsmóti ÍF í 50 metra laug og Íslandsmóti ÍF í 25 metra laug. Á öllum mótunum stóð hún sig með prýði og vann m.a. til fjögurra verð- launa á Malmö-open, þar á meðal tvö gullverðlaun. Fimm verð- laun á Íslandsmótinu í 50 metra laug ,þar af tvö gull og eitt brons, og þrjú gullverðlaun á Íslandsmótinu í 25 metra laug. Samtals vann hún fimm Íslandsmeistaratitla á árinu 2008. Þess má einnig geta að Ragney Líf keppti á Nýárssundmóti Í þann 3. janúar og var þriðja stigahæst á mótinu. Hún setti Ís- landsmet í 50 m bringusundi, bætti sig í öllum greinum og komst inn í landliðsæfingarhóp Íþróttasambands fatlaðra. Ragn- ey Líf stundar nám við Menntaskólann á Ísafirði og er á afreks- braut skólans Viðurkenning fyrir útnefninguna og farandbikar var afhentur við hátíðlega athöfn í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði á sunnudag. Einnig voru tilnefndir; Anton Helgi Guðjónsson úr Golfklúbbi Ísafjarðar, Birgir Björn Pétursson hjá KFÍ, Brynjólfur Örn Rúnarsson hjá glímudeild Harðar, Bylgja Dröfn Magnúsdóttir úr Hestamannafélaginu Hendingu, Emil Pálsson hjá Boltafélagi Ísafjarðar, Jón Guðni Pálmason hjá Skotíþróttafélagi Ísafjarðar- bæjar, Sólveig Guðmunda Guðmundsdóttir hjá Skíðafélagi Ísfirðinga og Lovísa Anna Jóhannsdóttir hjá Hestamannafélag- inu Stormi. – thelma@bb.is Boðið var upp glæsilegt kökuhlaðborð í hófinu.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.