Bæjarins besta - 29.01.2009, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2009 3
Ragney Líf ásamt foreldrum sínum Valdísi Eiríksdóttur og Stefáni Sigurðssyni.
Ragney Líf íþróttamaður
ársins 2008 í Ísafjarðarbæ
Sundkonan Ragney Líf Stefánsdóttir var útnefnd íþróttamað-
ur Ísafjarðarbæjar árið 2008. Ragney Líf er 16 ára og hefur æft
sund hjá Íþróttafélaginu Ívari í níu ár. Á síðasta ári keppti hún
á þremur stórum mótum; Malmö-open í Svíþjóð, Íslandsmóti
ÍF í 50 metra laug og Íslandsmóti ÍF í 25 metra laug. Á öllum
mótunum stóð hún sig með prýði og vann m.a. til fjögurra verð-
launa á Malmö-open, þar á meðal tvö gullverðlaun. Fimm verð-
laun á Íslandsmótinu í 50 metra laug ,þar af tvö gull og eitt
brons, og þrjú gullverðlaun á Íslandsmótinu í 25 metra laug.
Samtals vann hún fimm Íslandsmeistaratitla á árinu 2008.
Þess má einnig geta að Ragney Líf keppti á Nýárssundmóti Í
þann 3. janúar og var þriðja stigahæst á mótinu. Hún setti Ís-
landsmet í 50 m bringusundi, bætti sig í öllum greinum og
komst inn í landliðsæfingarhóp Íþróttasambands fatlaðra. Ragn-
ey Líf stundar nám við Menntaskólann á Ísafirði og er á afreks-
braut skólans Viðurkenning fyrir útnefninguna og farandbikar
var afhentur við hátíðlega athöfn í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
á sunnudag.
Einnig voru tilnefndir; Anton Helgi Guðjónsson úr Golfklúbbi
Ísafjarðar, Birgir Björn Pétursson hjá KFÍ, Brynjólfur Örn
Rúnarsson hjá glímudeild Harðar, Bylgja Dröfn Magnúsdóttir
úr Hestamannafélaginu Hendingu, Emil Pálsson hjá Boltafélagi
Ísafjarðar, Jón Guðni Pálmason hjá Skotíþróttafélagi Ísafjarðar-
bæjar, Sólveig Guðmunda Guðmundsdóttir hjá Skíðafélagi
Ísfirðinga og Lovísa Anna Jóhannsdóttir hjá Hestamannafélag-
inu Stormi.
– thelma@bb.is Boðið var upp glæsilegt kökuhlaðborð í hófinu.