Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.01.2009, Page 6

Bæjarins besta - 29.01.2009, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2009 Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is Birgir Olgeirsson, símar 456 4560 og 867 7802, birgir@bb.is Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorku- lífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X Helgarveðrið Horfur á föstudag: Sunnanátt og él, en létt- skýjað á NA- og A-landi. Hiti 0-5 stig við suður- ströndina, annars 0-8 stig frost. Horfur á laugar- dag: Norðaustan og austanátt. Snjókoma og síðar slydda eða rigning. Hlýnandi veður. Horfur á sunnudag: Suðlæg átt og rigning eða slydda, en úrkomu-lítið NA-lands. Hiti 0-7 stig. Spurningin Ert þú fylgjandi auknum þorskkvóta? Alls svöruðu 581. Já sögðu 422 eða 73% Nei sögðu 159 eða 27% Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Ritstjórnargrein Horft til framtíðar Aldrei er meiri þörf fyrir að horfa til framtíðar en á erfiðleikatímum eins og nú blasa við á flestum sviðum samfélagsins. Hvernig sem allt veltur þá hættum við ekki að vera til sem þjóð og mismunandi samfélög vítt og breitt um landið, að minnsta kosti hvað hið síðara varðar á meðan nokkur von er til þess að horfið verði frá þeirri byggðaeyðingarstefnu, sem riðið hefur röftum í samfélaginu árum saman. Skipulag sveitarfélaga er nokkuð sem ekki verður ákveðið í eitt skipti fyrir öll frekar en svo margt annað sem snýr að tilvist manns- ins. Nú er sú staða uppi hvað varðar aðalskipulag Ísafjarðarbæjar, sem ætlað er að gildi fram til ársins 2020. Og þá væntanlega með hliðsjón af því að hér rísi einn þeirra byggðakjarna á landsbyggðinni, sem stjórnvöld lofuðu á sínum tíma með bros á vör og stjörnublik í augum. Af því sem þegar hefur verið dregið fram í dagsljósið í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Ísafjarðarbæjar fer ekki á milli mála að þungamiðjan snýst um ný og fleiri atvinnutækifæri sem, ef vel tekst til, bera með sér aukinn fólksfjölda og þar með auknar tekjur sveitarfélagsins til margvíslegra þarfa. Í framtíðarsýn Háskólaseturs Vestfjarða er gert ráð fyrir að árið 2011 verði 500 nemendur þar við nám. Í nýju skipulagi er gert ráð fyrir að háskólabygging rísi við neðsta hluta Aðalstrætis og á Wardstúni. Sérhæfður háskóli, þar sem öðru fremur verður lögð áhersla á þrjá megin þætti er snerta allt mannkyn, það er loft, láð og lög og sjálfbæra nýtingu auðlinda jarðarkringlunnar, er draumur sem vonandi rætist Vestfirðingum og landsmönnum öllum til heilla. Ennþá er daufheyrst við réttmætum kröfum um að unnt sé að sinna millilandaflugi frá Ísafirði. Orðaval leyfisbréfs, hvort flugvöll- urinn er skilgreindur sem flugvöllur II, eða eitthvað annað, skiptir ekki máli. Nýr millilandaflugvöllur innan sveitarfélagsins er seinni tíma mál. Krafa Vestfirðinga í samgöngumálum er einföld: Samgöngur innan fjórðungsins og tenging við aðra landshluta. Á óskiljanlegan hátt hafa yfirvöld komist upp með að hundsa sjálfsagðan rétt Vest- firðinga til jafns við aðra landsmenn hvað varðar samgöngur þótt því verði ekki neitað að heldur hefur þokast í rétta átt á síðari tímum. Eitt er þó víst að þensla í vegagerð á Vestfjörðum hefur ekki tröllrið- ið efnahagskerfi landsmanna. Skortur á raforku er annar Akkilesarhæll Vestfirðinga. Meðan við getum átt á hættu íkomu líkt í fyrri viku getum við ekki búist við því að fá til okkar fyrirtæki sem þurfa á mikilli og öruggri raforku að halda. Það er því algjört forgangsatriði að tryggja aukna og stöðuga raforku til Vestfjarða. Kynning á nýju aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar er hafin. BB hvetur alla til að kynna sér málið. Betur sjá augu en auga. s.h. FÍB blaðið október 2004 Sjö ára jóðsótt lauk með fimm- tán síðna mús (og enginn skildi hvað þetta þýddi) Fyrrum skipsfélagarnir Ásgeir Guðbjartsson skipstjóri og eig- andi Guðbjargar ÍS 46 og Víðir Ólafsson fyrrverandi vélstjóri á Guggunni, komu færandi hendi á fund áhafnar björgunarskipsins Gunnars Friðrikssonar á Ísafirði á laugardag. Erindi þeirra félaga var að færa björgunarbátasjóðn- um peningagjöf sem ánafnað er til björgunarskipsins. Gjöfin er án neinna skilyrða af þeirra hálfu annarra en þeirra að hún verði notuð fyrir björgunarskipið til að búa það tækjum eða búnaði. Á gullaldarárum togaraútgerð- ar á Ísafirði, áttu áhafnir skipanna starfsmannasjóði sem oftar en ekki voru fjármagnaðir með því að áhafnirnar hirtu hrogn úr fisk- inum, saltaði í tunnur og seldi. „Gotusjóðurinn“ eins og þessir sjóðir voru kallaðir, voru síðan notaðir til að gera áhöfninni glað- an dag á sjómannadaginn og jafn- vel til að standa fyrir ferðalögum. Áhöfnin á Guggunni ákvað að gefa björgunarskipinu restina af sínum starfsmannasjóði. „Við sem störfum við útgerð björgunarskipsins þökkum áhöfn- inni á Guggunni innilega fyrir þeirra stuðning við okkar starf og þreytumst seint á að benda á hversu mikilvægt það er að fá slíkan stuðning utan úr samfé- laginu“, segir í tilkynningu frá áhöfn björgunarskipsins Gunnars Friðrikssonar. – thelma@bb.is Gáfu björgunarskipinu restina af Gotusjóðnum Frá afhendingu gjafarinnar.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.