Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.01.2009, Síða 12

Bæjarins besta - 29.01.2009, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2009 Býr í íbúð þar sem andi Gunnars Þórðarsonar lifir enn Haukur segir að hlutverk Reykjavík Grapevine sé í grunn- inn að þjónusta ferðamenn á Ís- landi og aðra sem hér eru staddir og skilja málið illa en vilja leita sér upplýsinga um það sem er í gangi. Þar sem blaðið liggur frammi á víð og dreif um allt land er það að sjálfsögðu mikið lesið af Íslendingum líka, enda þykir það iðulega veita ferskari eða óheflaðri sýn á íslenskt þjóð- líf og menningarlíf en vill rúmast á síðum dagblaðanna. Margir leggja til efni í blaðið, bæði Ís- lendingar og erlendir ferðamenn sem sjá land og þjóð með glöggu gests auga. Reykjavík Grapevine er prentað í 30 þúsund eintökum einu sinni í mánuði yfir veturinn en annars kemur það út á tveggja vikna fresti. „Ég hóf störf á Reykjavík Grapevine síðsumars 2006“, segir Haukur, „og var í fullu starfi sem blaðamaður fram í mars 2007. Þá kúplaði ég mig út en skrifaði frílans fyrir blaðið áfram, enda veittu þeir mér jafnan fullt frelsi til að velja efnistök og að- ferðafræði – þrátt fyrir að borga kannski ekkert svo vel ... Þeir sem þekkja til geta vottað að slíkt frelsi er vandfundið á ís- lenskum fjölmiðlamarkaði.“ Of mikið af texta? „Síðan kom ég aftur til starfa á blaðinu í maí á síðasta ári og var hálfur blaðamaður og síðar hálfur aðstoðarritstjóri. Ég vann það samhliða því sem ég skipulagði og annaðist framkvæmdina á alþjóðlegri tónlistarráðstefnu sem haldin var í Reykjavík með- fram Iceland Airwaves núna í október. Í kjölfarið fylgdi mán- aðarfrí frá störfum, sem ég eyddi aðallega í ferðalög um Bandaríkin – akkúrat þegar doll- arinn var eins dýr og hann hafði nokkurn tímann verið! Tók svo við ritstjórastólnum á Reykjavík Grapevine núna í des- ember og gaf út mitt fyrsta blað 9. janúar. Mér hefur verið legið á hálsi að hafa of mikið af texta í blaðinu, en ég er þeirrar trúar að fólk geti haft mikla unun af því að lesa vandað og vel unnið efni sem framsett er á fallegan hátt og samkvæmt því hyggst ég starfa. Auðvitað verða samt myndir með!“ segir Haukur og hlær. „Ég var hrifinn af blaðinu áður en ég fór að vinna við það. Mér fannst það vera með skemmti- lega stefnu. Fyrst var ég ótta- lega stressaður að skrifa á ensku og gerði mér litlar von- ir um að verða ritfær á henni. Var Haukur Sigurbjörn Magnússon frá Ísafirði hefur komið víða við þótt enn vanti hann fáein ár í þrítugt. Svo eitthvað sé nefnt vann hann ungur nótt og dag við löndun og slægingu, við afgreiðslu á myndbandaleigu, lauk stúdents- prófi hjá Birni Teitssyni í fyllingu tímans, var blaðamaður á Bæjarins besta, lagði stund á heimspeki og síðar blaðamennsku á dagblaði, hefur unnið að málefnum tónlistarfólks og sjálfur ferðast sem tónlistarmaður um heiminn með hljómsveitinni Reykjavík! Hann semur tónlist og ekki spillir í þeim efn- um andinn í íbúðinni þar sem hann býr – þar átti sjálfur Gunni Þórðar heima um árabil. Hér á eftir segir frá öllu þessu. Og núna fyrir stuttu var Haukur að taka við ritstjórastólnum á Reykjavík Grapevine, blaði á enskri tungu sem fjórir vinir úr Menntaskólanum á Laug- arvatni stofnuðu árið 2003, þá nýskriðnir úr námi. Þeir standa enn að blað- inu – án nokkurrar aðkomu Bauga, Rauðsóla, Árvakra eða annarra battería. Reykjavík Grapevine er í rauninni einn fárra fjölmiðla hérlendis í dag sem kallast mega frjálsir – fyrir utan héraðsfréttamiðla. reyndar nokkuð vanur að skrifa fréttir, bæði sem blaðamaður á Bæjarins besta og í dagblöð.“ Talaði við fólkið sjálft „Fyrsta greinin sem ég skrifaði í Reykjavík Grapevine á sínum tíma fjallaði um Flateyri. Ég var fyrir vestan þegar ég fékk kallið, skrifaði grein um ástand mála á Flateyri og hvernig fólk plumaði sig þar og tók nokkur skemmtileg viðtöl. Það var búið að skrifa einhverja grein um Flateyri sem birtist í Mannlífi þar sem var bara sagt hvað það væru margir nýbúar þarna en ekki reynt að ná neinu sambandi við fólkið sem var til umræðu. Ég var búinn að vera að vinna með nýju Flateyr- ingunum í slægingu og öðru og vildi gefa innsýn í þeirra heim þar sem þeir fengju að segja sitt, svona fyrst þeir voru sjálfir til umfjöllunar. Já, og núna er ég bara orðinn ritstjóri. Það gekk mjög vel hjá mér að fara að skrifa á ensku. Ég horfði mikið á vídeó í gamla daga í Pólarvídeó heima og las mikið af bókmenntum á ensku, tók það fram yfir þýðingarnar sem eru margar hverjar hroðvirknislega unnar.“ Við nánari umhugsun finnst Hauki að þessi ummæli um þýð- ingarnar séu kannski dálítið spjátrungsleg og yfirlætisleg en fellst á að draga þau samt ekki til baka. Kerfið batt enda á námsferilinn Haukur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði vorið 2001, í síðasta árganginum sem Björn Teitsson skólameistari út- skrifaði. „Hreint ágætum ár- gangi“, segir hann. „Ég veit ekki hvort það hefur borið svo mikið á honum en þetta er allt prýðilega gott fólk sem er að gera ágæta hluti hér og þar í heiminum.“ Eftir stúdentsprófið var Hauk- ur eitt ár blaðamaður á Bæjarins besta, flutti svo suður og stundaði heimspekinám í nokkur ár. „Ég kláraði ekki heimspekina. Ég var svo heillaður af þessari grein að ég ákvað í stað þess að skrifa bara ritgerðina seinasta vet- urinn að taka fleiri kúrsa og ætl- aði strax í mastersnámið. Svo var eitthvert vesen í stjórnsýsl- unni í skólanum þannig að ég mátti það ekki. Ég gat ekkert einbeitt mér að því heilan vetur bara að skrifa ritgerð, þannig að ég fékk mér vinnu eins og góðir Vestfirðingar gera. Fór að skrifa í Blaðið eins og það hét þá en seinna 24 Stundir. Og hafði nú lítið gaman af, þér að segja. Fór að vinna á innblaðinu hjá þeim.“ Geðveikis- góðæris-eitthvað „Ef ég taldi mig hafa verið stundum að skrifa léttmeti inn á milli þegar ég var á Bæjarins besta, þá var það léttmeti hátíð miðað við það sem viðgekkst á Blaðinu, sem kannski væri helst hægt að líkja við einhvers konar geðveikis-góðæris-sjónvarps- vísi. Ég sagði upp í janúar 2006 eftir að tilkynnt hafði verið að starfsfólkið fengi ekki frekari frí ut- an sumartímans nema

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.