Bæjarins besta - 29.01.2009, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 2009
Lífs stíll
Obamobile er tæpir sex metrar á lengd.
Obamobile og
fleiri forsetabílar
Utan úr heimi Lincoln Sunshine Special sem var
fararskjóti Franklins D. Roosevelts.
Fordinn sem Bush eldri fékk í arf frá Reagan.
Þeir eru mörg tonn á þyngd og
öryggisbúnaður þeirra er nánast
ríkisleyndarmál. Embættisbíll
Bandaríkjaforseta númer eitt
hverju sinni er einstakur hvað
allan tæknibúnað og öryggisráð-
stafanir varðar. Enda er forseti
Bandaríkjanna valdamesti maður
heims, og reglan er sú, að því
valdameiri sem maður er, þeim
mun fleiri vilja drepa hann.
Barack Obama ekur um á
Cadillac frá General Motors eins
og fyrirrennari hans George W.
Bush. Tengsl Bandaríkjaforseta
við Cadillac ná allt aftur til 1919
eða fyrir 90 árum, þegar Woo-
drow Wilson var á valdastóli.
Samt hafa orðið eyður í þau sam-
skipti og Ford hefur líka lagt til
Forsetabíl nr. eitt. Cadillac Bar-
acs Obama - Cadillac One eða
Obamobile eins og hann er líka
kallaður, sbr. Papamobile páfans
í Róm - er að mörgu leyti ger-
ólíkur Fyrsta bíl George W.
Bush.
Cadillac Obama forseta er tæp-
ir sex metrar á lengd. Aftur í eru
ráðstefnustólar og samskiptabún-
aður allur er svipaður og í sjálfri
forsetaskrifstofunni í Hvíta hús-
inu - Oval Office. Innréttingin er
að sjálfsögðu úr eðalviði og sætin
úr handsaumuðu leðri. Sjónvarp-
ið og barinn eru á sínum stað
(Bush yngri notaði barinn í sínum
bíl aðeins fyrir gestina).
Öryggisbúnaðurinn er síðan
kapítuli út af fyrir sig og má að
því leyti helst líkja bílnum við
skriðdreka. Það sem er þunnt
blikk í yfirbyggingu venjulegra
bíla er fimmtán sentimetra þykkt
eðalstál og rúðurnar eins þykkar
og símaskrá. Dekkin þola auð-
veldlega skothríð úr vélbyssu.
Þótt mótorinn sé gríðarlega
öflugur veldur þyngdin á þessum
lúxus-skriðdreka því, að venju-
lega er hraðinn ekki nema um
160 km á klst.
En það er ekki smíðað aðeins
eitt eintak af Forsetabíl nr. eitt.
Hann á marga tvífara sem hafðir
verða til taks víða um heim þar
sem forsetinn kann að leggja leið
sína.
Tvær myndanna eru af hinum
nýja Obamobile. Önnur hinna er
af Lincoln Sunshine Special frá
Ford, sem Franklin D. Roosevelt
notaði laust fyrir miðja síðustu
öld. Hin er af síðasta embættisbíl
Bandaríkjaforseta frá Ford-verk-
smiðjunum, brynvörðum að
sjálfsögðu í bak og fyrir. George
Bush eldri fékk hann frá Ronald
Reagan fyrirrennara sínum og
notaði hann í byrjun embættis-
ferils síns. Báðir þessir bílar eru
nú varðveittir á söfnum.
Lúxus-skriðdreki Baracks Obama.
Ár nautsins
hringinn í sömu röð, þannig að
næsta ár nautsins byrjar í febr-
úar 2021. Að loknu ári tígris-
dýrsins koma kanínan, drek-
inn, snákurinn, hrossið, hrút-
urinn, apinn, haninn, hundur-
inn, villisvínið og rottan áður
en nautið birtist á ný.
Ár nautsins í Kína hófst 26.
janúar og stendur fram til 13.
febrúar 2010. Nýju ári er vel
fagnað í Kína líkt og gert er
um allan heim. Í kínverska
tímatalinu eru árin nokkuð
mislöng. Þannig hefst ár tígris-
dýrsins 14. febrúar 2010 og
stendur til 2. febrúar 2011.
Dýrin í kínverska dýrahringn-
um eru tólf og ganga alltaf
Utan úr heimi