Listin að lifa - 01.12.2000, Page 4
Frá því síðla sumars cða í byrjun hausts hefur á ýmsum vett-
vangi verið vaxandi umraeða um málefni eldri borgara.
Fjölmargar blaðagreinar hafa verið skrifaðar um efnið, við-
tals- og umræðuþættir á sjónvarps- og útvarpsstöðvum og
síðast en ekki síst sérstök umræða á einum af fyrstu starfs-
dögum Alþingis nú í haust.
Öll þessi mikla umræða leiðir vonandi til þess, að stjómmála-
menn glöggvi sig á því að verulega hefur hallað á þennan hóp
að undanförnu, og beiti sér fyrir úrlausnum sem mark verði á
tekið.
Við, sem störfum að félagslegum málefnum aldraðra, höfum
líka fundið fyrir verulegri vakningu eldri borgara sjálfra að
beita sér fyrir úrbótum. Félög eldri borgara víða um land hafa
boðað til umræðufunda og farið yfir stöðuna, hvernig hún hefur
verið að breytast að undanförnu, hvernig hún sé í dag og hvem-
ig hún þyrfti að breytast á næstunni.
Kallaðir hafa verið til ýmsir fræðimenn og aðrir sem best
þekkja málaflokkinn til að skýra þróunina og stöðuna. Á ýms-
um stöðum hafa einnig verið fengnir til alþingismenn úr við-
komandi kjördæmum til þátttöku í umræðunni, t.d. á Suður-
nesjum, á Akranesi og í Garðabæ. Voru þeir fundir allir mjög
fjölsóttir og umræður málefnalegar.
Þá hafa einnig í haust verið haldnir fjölsóttir fundir í Reykja-
vík, á Siglufirði og víðar um kjara- og aðstöðumál eldri borgara
og fleiri slíkir eru í undirbúningi.
Þá má heldur ekki gleyma að á hinum stóru þingum ASÍ og
BSRB nú í nóvember, voru málefni eldri borgara og velferðar-
þjónustan almennt verulega til umræðu.
Ég vil hvetja aðildarfélög Landssambandsins til áframhald-
andi umræðu um efnið, kannski slá sér saman á svæðum, fá
fyrirlesara sem þekkja efnið vel og bjóða alþingismönnum kjör-
dæmisins á fundina - það kemur jú til þeirra kasta á hverju
þingi að taka ákvarðanir um fjármagn til málaflokksins.
^ÍÍeneAiízt %<uuÁ&saw
formaður LEB
Fi/rirhugaðar
feröir
FEB í Reykjavík
sumarið 2001
Dags-
ferðir:
2. APRÍL
Grindavík - Bláa-
lónið - Svartsengi.
9. MAÍ
Garðskagi -
Reykjanes - fugla-
skoðun.
29. MAÍ
Hafnarfjörður -
Heiðmörk.
13. JÚNÍ
Nesjavellir -
Grafningur - Eyr-
arbakki.
18. JÚNÍ
Söguferð í Dali.
10. JÚLÍ
Þórsmörk.
14. JÚLÍ
Gullfoss - Geysir
- Haukadalur.
7. ÁGÚST
Hítardalur -
Straumfjörður.
18. ÁGÚST
Fjallabaksleið
syðri.
28. ÁGÚST
Veiðivötn.
5. SEPT.
Sögustaðir í
Rangárþingi.
22. SEPT.
Þingvellir - Bás-
inn.
Lengri
ferðir:
27.-29. APRÍL
Snæfellsnes -ferð
á Snæfellsjökul.
6.-8. JÚNÍ
Vestmannaeyjar.
10.-12. JÚNÍ
Skaftafellssýslur.
19.-22. JÚNÍ
Trékyllisvík.
26.-31. JÚLÍ
Þingeyjarsýslur -
Eyjafjörður -
Skagafjörður.
8.-15. ÁGÚST
Hringferð um
Norðausturland,
Hérað og Aust-
firði.
Ekið norður
Sprengisand.
Heim sunnan
jökla.
2.-7. JÚLI
Vestfirðir.