Listin að lifa - 01.12.2000, Blaðsíða 50

Listin að lifa - 01.12.2000, Blaðsíða 50
kalkún til margra ára, en fyrstu jólin keyptum við tvær svínakótilettur, önn- ur var steikt í raspi, hin ekki“. Þau brosa til hvor annars að endurminn- ingunni. „Ja, og svo er kannski gaman að geta þess að hér er aldrei keyptur matur fyrir nýársdag. Við vorum nefnilega svo ákveðin í að Margrét nryndi fæðast þá og bjuggumst við að vera á sjúkrahúsinu, svo að ekki var gert ráð fyrir neinum mat. Hún dró það að vísu við sig að koma í heiminn þar til á þrettándanum, en við höfum haldið fast við að kaupa aldrei neitt inn fyrir þennan dag. Okkur finnst það eiginlega svolítið skemmtileg hefð.” En nú er mál að hafa sig á kreik og kveðja þessi elskulegu, samrýmdu hjón. Það er þó varla hægt að fara svo frá þeim listakokki sem hann Benedikt er, án þess að reyna að hafa út úr honum eins og eina uppskrift handa lesendum blaðsins. Og hér er uppskriftin að uppáhalds dessert-sósunni hennar Ragnheiðar - eins og Benedikt lagar hana: Tapioca sósa 2 dl hvítvín 6-8 eggjarauður 50-100gr flórsykur. Þetta er sett í pott og hitað við rúm- lega meðalhita. Nauðsynlegt að hræra stöðugt í. Sósan má alls ekki sjóða og það má bæta við sykri eftir smekk. Þegar sós- an er orðin vel þykk, er hún látin kólna. Hún hentar sérlega vel með ferskum ávöxtum og þau segja að það sé frábært að bera líka fram þeyttan rjóma með. éAqústsdáttiv ígrundun um fátækt aldraðra vegna greinar Péturs H. Blöndal alþingismanns í grein eftir Pétur H. Blöndal al- þingismann sem ber yfirskriftina „Umræða um fátækt aldraðra" í síðasta hefti af Listin að lifa, kem- ur sá hvimleiði og rangi hugsun- arháttur berlega fram - að ellilíf- eyrisgreiðslur frá Tryggingastofn- un séu bætur til fátækra. Ölmusa til þeirra sem ekki hafa með öðr- um hætti í sig og á. Þessi skilningur sem víða er farinn að gera vart við sig, og þá einkum hjá núverandi stjórnarliðum, er í grundvallaratriðum rangur. Trygg- ingastofnun ríkisins var hugsuð og á að starfa sem hvert annað trygg- ingafélag, ekki góðgerðarstofnun. Iðgjaldið greiðir skattþeginn gegn því að stofnunin greiði honum bætur verði hann fyrir því tjóni, t.d. að eldast eða veikjast, fái tjón sitt bætt án tillits til þess hvernig fjár- hag hans er varið. Hvort sem hann er ríkur eða fátækur, hefur litlar eða miklar tekjur. Þetta er sama grund- vallarhugsunin eins og gildir um bíleigendur og húseigendur. Þeir eru skyldaðir til að tryggja eigur sínar lágmarkstryggingu. Verði þeir fyrir tjóni greiðir tryggingafélagið bætur, án tillits til fjárhags viðkomandi, sé tjónið á annað borð bótaskylt. Til upprifjunar er minnt á, að á þeim árum, sem þeir sem nú ættu að vera að njóta bóta greiddu sín ið- gjöld, var sjúkrasjóðsgjaldið og tryggingasjóðsgjaldið eymamerkt sérstaklega. Vegna sérstakra að- stæðna, s.s. vegna skólagöngu eða fráfalls maka, var hægt að fá niður- fellt útsvar og tekjuskatt á þeim tímum, en sjúkrasjóðsgjaldið eða tryggingasjóðsgjaldið fékkst ekki niðurfellt. Þá er hvimleið sú hugsun sem fram kemur í skrifum alþingis- mannsins að „skuldarar hafi fómað“ svo að sparendur gætu fengið spam- að sinn endurgreiddan óskertan, þ.e. verðtryggðan. Það var löngu orðið tímabært að skuldarar endurgreiddu lán sín á raunvirði, sparendur fengju peninga sína til baka á jafnvirði. Að þeir töpuðu ekki við að spara. Það var löngu orðið tímabært að skuld- ararnir þyrftu að huga að arðsemi fjárfestingarinnar, ekki síst það op- inbera. Megin ástæðan fyrir bágri stöðu lífeyrissjóðanna var /er sú að þeim var beinlínis óheimilt að ávaxta fjármuni sína á eðlilegan hátt, sbr. okurlögin. Þeir voru neyddir til að gefa skuldurum stjóran hluta af eig- um sínum, af iðgjöldum sjóðsfé- laga. Að auki voru sumir þegnar landsins með sérstökum lögum neyddir til að spara og gefa eigur sínar til annarra. Að sjálfsögðu tók rfkissjóður til sín langstærstan hluta eignaupptökunnar. Fyrir þá sem hafa gaman af reikningi er hér eitt lítið reiknings- dæmi efninu skylt. Hafi ellilífeyris- þegi kr. 88.000 í tekjur fellur tekju- trygging alveg niður og hann fær frá Tryggingastofnun kr. 17.715 í grunnlífeyri. Samtals hefur hann þá kr. 105.715 fyrir skatta. Skattur er kr. 16.053, til ráðstöfunar kr. 89.662. Ráðstafi hann öllum tekjum sínum til matarkaupa er virðisauka- skatturinn kr. 11.355. Hann greiðir meira í ríkissjóð en hann fær sem ellilífeyri (16.053+11.355 = 27.408 á móti 17.715). Er ekki kominn tími til að íslensk stjórnvöld fari að haga sér af sið- ferðilegri ábyrgð? £/W ^&juÁmundssan

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.