Listin að lifa - 01.12.2000, Blaðsíða 43

Listin að lifa - 01.12.2000, Blaðsíða 43
nefndarinnar. Hann sagði að það væri hlutverk stjórnarflokkanna að stuðla að sátt í samfélaginu. Og að þeir kynnu að þurfa að brjóta odd af oflæti sínu til að ná því markmiði. Ég fullyrði að stefna og framkvæmd stjómvalda um velferðarþjónustu í þjóðfélaginu er í mikilli ósátt við stóran hluta þjóðarinn- ar. Það er full þörf á að stjórnvöld brjóti einnig odd af oflæti sínu í því máli og leiti sátta, ef þau ætla ekki að einangrast frá þjóðarviljanum. Fundarboðendur hér hafa þegar sent öllum alþingismönnum upplýs- ingabréf um hve alvarlegum augum samtökin líta ástandið. Og með þessum orðum er það á- réttað gagnvart ríkisstjórn íslands sem við einnig afhendum umrætt bréf og þau orð sem ég hér hef látið falla. Mikið fleiri orð ætti ekki að þurfa. Félög eldri borgara og landssam- band þeirra krefjast tafarlausra úrbóta af hálfu ríkisstjómarinnar í þessum efnum, úrbóta sem ekki verði bara mældar í einum eða tveim tugum nýrra hjúkrunarrýma til bráðabirgða fyrir aldraða og úrbóta sem ekki verði bara mældar í 0,- eitthvað prósent hækkun tryggingagreiðslna. ^aoíássatv I brennidepli Hagsmunamál aldraðra Aldraðir geta ekki endalaust horft í gaupnir sér vegna mikilla hækkana þjónustugjalda á und- anförnum árum. Að tillögu for- manns hefur stjórn og fram- kvæmdastjórn samþykkt eftirfar- andi aðgerðir. Könnun í framangreindum þjón- ustuþáttum og áhrif hækkana á lífs- kjör aldraðra. • Hækkun þjónustugjalda, s.s. olíu, bensíns, tryggingagreiðslna, ásamt samgöngum og matarkostnaði. Fyrrverandi ríkisbókari, Torben Fredrikssen, hefur komið á fund stjórnar og hefur hafið þá vinnu. Hann mun leita fanga m.a. hjá Hagstofu Islands, Torben óskar ekki eftir sérstakri greiðslu fyrir verkið. • Hækkun lyfjakostnaðar frá 1995- 2000 í samvinnu við 28 apótek, en þau hafa tölvufært alla lyfseðla frá 1995-1996. Þetta verk er unn- ið í samvinnu við SÍBS, Öryrkja- bandalagið, BSRB og apótekara. SÍBS hefur lagt fram 300.000 kr til þessa starfs og BSRB hefur lofað stuðningi, en kostnaður er vegna tölvuvinnu. Síðan mun Hagfræðistofnun Háskólans yfir- fara verkið. • Könnun á aðbúnaði aldraðra sem fá heimilishjálp. Bergljót Líndal fyrrverandi yfirhjúkrunarfræðing- ur HVSR, sem hafði lengi yfir- umsjón með þessari þjónustu, kannar möguleika á slíkri athug- un. • Þjónustugjöld og þóknanir í bönkum hafa lítið eða ekkert breyst undanfarin ár þrátt fyrir byltingarkennda tölvuvæðingu. Unnið er að því að skoða þetta mál. Líkja má þessari aðferð við aðgerðir Landlæknisembættisins gegn of hárri smásöluálagningu lyfja á árunum eftir 1980. Þrátt fyrir að mest öll lyfjagerð lagðist af í apótekum hafði smásöluá- lagning, sem var 75-78%, ekkert hreyfst. Alagningin var skiljanleg þegar mikil lyfjagerð fór fram í apótekunum fyrir 1970, en ekki eftir að lyfjagerð lagðist af. I þessari deilu náðist að lækka smá- söluálagningu um rúm 20% og heildsöluálagningu urn 5-6%. Tölvuvinnsla og afgreiðsla í bönk- um hefur áreiðanlega komið í stað- inn fyrir mikla handavinnu. fonnaður FEB Fjármagnstekjuskattur Þrír lífeyrisþegar hafa kært skattaálögur til skatt- stjóra. Beðið er með óþreyju eftir svari skattstjóra. Svarið virðist taka langan tíma enda ekki auðvelt fyr- ir skattstjóra að svara greinargerð tveggja lögfræði- prófessora við Háskóla íslands sem gerðu miklar at- hugasemdir við núverandi túlkun á reglum um skattaálögur varðandi fjármagnstekjur lífeyrisþega. FÉLAGSSKÍRTEINI ji@isl.is 43

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.