Listin að lifa - 01.12.2000, Qupperneq 16

Listin að lifa - 01.12.2000, Qupperneq 16
Nú hrynja visnuð blöðin af grárri aspargrein og gulnað birkilaufið á freðna, kalda rein. Því haustið það er komið og vetur víkur nær völdin bráðum tekur hinn mjallahvíti snær. Höfuð beygir rósin sem greri glugga hjá, glæstur litur horfinn og engin blóm að sjá. Sú spurn í huga vaknar hvort á hún þrótt og þor að þreyja langan vetur uns birtir næsta vor. Asa Ketilsdóttir í dag, 15. október, er komið fast að veturnóttum og ástæða til að líta yfir liðið sumar. Þetta fallega sum- ar, með einstaka árgæsku og gjaf- mildi hér í ísafjarðardjúpi. Enn er jörðin auð og þíð en litaskrúð haustsins horfið að mestu þótt enn dvelji í snjóþungum lautum og hvolfum gulir og rauðir lyngblettir. Það er yndislegt að hafa lifað og notið slíkrar veðurblíðu og séð hvernig allur jarðargróður óx og dafnaði. Það sást áþreifanlega hvers íslensk mold er megnug ef veðráttan er hagstæð. Berjaspretta var alveg einstök. Það voru komin góð ber um mánaðamótin júlí - ágúst og slíkt er fágætt þar sem ég þekki til. Berin héldu áfram að vaxa, voru hvar sem lyng var. Kræki- ber, bláber og aðalbláber sem eru í mestum metum. Aðalbláberjalyngið hélt ekki höfði undir ofurgnótt ávaxta sinna, það svignaði af þyngslunum eins og segir í gömlum ævintýrum. Sveppir uxu um allar trissur og næst því að fara í berjamó er það ríku- leg skemmtun að tína sveppi. Súkkulaðibrúna kóngssveppi, rauð- hettur, þybbnar og þéttar, sprengilega kúalubba og gullna flossveppi sem létu nú óvænt sjá sig. Auk þess ýmsar smærri tegundir sem eru meira til gamans en að magnið skipti máli. Einn var sá sveppur sem maður lætur sér nægja að dást að og kindur sem bíta í hann skyrpa honum snar- lega út úr sér. - Þetta er berserkja- sveppur. Allt í einu sér maður að hann er kominn í lyngmóana, fyrst eins og blóðrautt epli Mjallhvítar, en svo koma hvítar skellur í ljós. Að lokum þenur hann út gulrauðan hattinn og getur orðið á stærð við meðalpottlok um 30 sm og hin mesta prýði. Það er mikil búbót í matsveppum og við konurnar á Laugalandi tíndum margar fötur af þeim og notum með ýmsum réttum. Sveppi þarf að taka í þurru veðri, en til grasa velur maður rekju því að þá eru fjallagrösin rök og mjúk og losna greiðlega úr lyngi og hrísi, en í þurrki og sól brotna þau og ódrýgjast. Ég gríp um móleitt grasablað hjá grænu laufi og rauðum kvist. í lágum skorning lifir það og leggst þar undir snjóinn fyrst. í hörðum vetrum hlaut þar skjól og hafði allt sem jörðin gaf. Vaxið upp hjá vindi og sól og vökvað sumardöggum af. Asa Ketilsdóttir Grasvöxtur var mikill og góður og ágætur heyfengur. Rétt eins og náttúr- an vildi bæta fyrir árið á undan, þegar stórfellt kal var í túnum, allt að 60%. Nú var sáð í vor með nýrri tækni. Úr garðinum á Laugalandi. Stórvirkar vélar settu fræið niður í moldina og þótt þurrkur og vindur hreyfðu yfirborðið náði grasfræið að spíra og skjóta upp kollinum. Það voru menn úr Reykhólasveit sem eru með þá vélaútgerð sem þarf til þessa. Það er samdóma álit ræktunarmanna að koma þeirra og starf hafí borgað sig. Það gleður hjarta þeirra sem horft hafa á dökkan moldarbeðinn að sjá græna slikju vaxa dag frá degi og einn morguninn voru átta hektarar orðnir grænir! Svo er eftir að sjá hvernig vet- urinn fer með þennan unga gróður. Og meira um góða veðrið. í garðin- um mínum vaxa þó nokkrar blómateg- undir sem eiga oft erfitt með að skila sínum blómum. Til dæmis dvergvönd- ur sem hefur orðið æði oft að þola þá raun að himinbláir knappar hans hafi lent undir snjó á þess að geta opnað sig. Einnig hefur gullrunni átt erfitt uppdráttar. Nú voru báðir mánuði fyrr á ferð og glöddu mig með blómskrúði sínu. Enn í dag, 15. október, eru ýms- ar tegundir með blóm, svo sem anemónur, bellis, stjúpur, morgunfrúr, valmúar, garðskriðnablóm og fleira. En víkjum nú að öðru. I síðasta tölublaði „Listin að lifa” las ég með ánægju viðtalið við Úllu í Hrísey um hið stórmerka ræktunar- starf þeirra hjóna og varð þá hugsað til föður míns, Ketils Indriðasonar á Fjalli í Aðaldal. Hann var fæddur 16

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.