Listin að lifa - 01.12.2000, Qupperneq 17
Úr hestaferðalagi Svaðilfara 1999. Staddar á Dröngum: Helga Wieber, Jenný
Karlsdóttir og Ása KetiIsdóttir.
1896 og var aðeins 9-10 ára gamall
þegar sú hugsun vaknaði hjá honum
að vernda örlítið birkikjarr - fyrir beit
- í snarbrattri, skriðurunninni og
blásinni fjallshlíð þar ofan við bæinn.
Þetta er brattasti hlutinn í Fljótshlíð og
kallast Fjallshnjúkur.
Drengurinn var trúr hugsjón sinni
og með góðum stuðningi foreldra og
systkina var komið upp öruggri girð-
ingu 1926. Þar voru friðaðir 60 hekt-
arar lands svo að jarðlægt og skriðult
birkikjarrið gat farið að halda höfði og
rétta úr sér. Að taka þannig 20% sauð-
fjárjarðar frá beit var áreiðanlega eins-
dæmi á þeim tíma, en nú er svo komið
að Fjallshnjúkur vekur athygli allra
sem um Aðaldal fara.
Mér þykir vel við eiga að ljúka
þessu haustskrifi með tveimur erind-
um eftir föður minn.
Litadýrð
Ennþá gerir gula díla
græna skóga í.
Sem að bláum berjum skýla,
blikar rautt við ský.
Glitrar dögg á gráum víði,
gyllir bleikan mó.
Gegnum þoku húmsvart hýði
hillir hvítan snjó.
Skrifað 15. október 2000,
SAsa/ 9Cetilsdáttk/
Apótekið þitt
Apótekið leggur áherslu á lipra og þægilega
þjónustu, lægra lyfjaverð og góðar staðsetningar.
Kynntu þér hvar þitt Apótek er að finna og við
leggjum okkur fram við að þjónusta þig.
Gervitanna- og
munnhreinsiefni framleidd úr
náttúrulegum efnum
Maxil „Proteserens" er
gótthreinsandi, græðandi,
sveppadrepandi, deyfandi og
kælandi.
maxil
Maxil framleiðin
• Fljótandi tannsápu
• Tannsteinshreinsi
• Tannburstasett
• Krem við særindum
• Tannlím
• Box
maxil fæst í flestum apótekum
Umboð: AÐAL-TANNSMÍÐASTOFAN sími 552 5511
____________________—-------------
17