Listin að lifa - 01.12.2000, Síða 25
Kristin þjóð í þúsund ár
þoldi marga raun og fár,
gleðibros og tregatár
tókust á um hana.
Einn var heill, en annar sár
uns þeir biðu bana.
Kristin þjóð á ætíð að
æðri mátt í hjartastaö
er hún finnur brotið blað
í brautargengi sínu,
að biðja guð að bæta það
bægir kvöl og pínu.
Kristinn siður breytti brag,
bætti lítilmagnans hag,
efldi frið og færði í lag
fjölmörg deiluefni
að allir nytu nótt sem dag
náða í vöku og svefni.
Kristinn siður kom með jól,
kætti meðan lægst var sól,
hátíð Ijóssins „heims um ból"
hverju barni sendi,
frelsarans að flýja í skjól
fólki öllu kenndi.
Þökkum þeim sem tóku trú
tíu öldum fyrir nú
að við hérna eigum bú
enn í drottins nafni.
Ni/r fremkvæmdastjóri
FEB í Reykjevík
Stefanía Björnsdóttir tók við starfi
framkvæmdastjóra hjá FEB í
Reykjavík fyrsta nóvember sl.
Stefanía er eldri borgurum að
góðu kunn, en hún er búin að
vinna á skrifstofu félagsins síðan
í mars 1989, lengi sem gjaldkeri
og sem skrifstofustjóri frá 1998.
Fáir þekkja því innviði félagsins
betur en hún.
Stefanía er fædd í Reykjavík 26.
desember 1953. Hún tók verslunar-
próf frá Verslunarskóla íslands
1972 og stúdentspróf frá sama
skóla 1983. Stefanía var ritari hjá
Heklu á árunum 1973 til 1979. Síð-
an heimavinnandi húsmóðir með
ung börn þar til hún hóf störf hjá
FEB.
Eiginmaður Stefaníu er Jón
Helgason verkfræðingur hjá Vega-
gerðinni. Þau hjónin eiga þrjú börn
og tvö barnabörn.
Ahugamál Stefaníu eru útivera,
gönguferðir og samvera með fjöl-
skyldunni.
Félag eldri borgara í Reykjavík
óskar Stefaníu til hamingju með
starfið og væntir góðs af henni sem
framkvæmdastjóra félagsins.
Ragtiar kveður
Ragnar Jörundsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri I. nóvember sl.
Hann byrjaði hjá félaginu 1. febrúar 1997. í hans tíð stækkaði félagið
verulega við sig, seldi húseignina á Hverfisgötu 105 og flutti starfsemina í
Glæsibæ. Á þessum árum hefur félagafjöldinn aukist úr tæpum 6.000 upp í
7.700. Stjórn FEB þakkar Ragnari fyrir störf í þágu félagsins.
Verndi okkur vonin sú
að vegur trúar dafni.
Þökkum trúnni órin öll
er við tróðum lífsins völl.
Það var hún sem „flutti fjöll"
fyrir oss að hljóta,
reisti bjarta himinhöll
hamingju að njóta.
Ivar Björnsson frú Steðja
yáiasiiemusAeíáln'
2000
Bjúgnakrækir er sá níundi af bræörum sínum.
Verð 4.950. - stgr.
Frí heimsending til eldri borgara
Gull- og silfursmiðjan Erna hf.
Skipholti 3 s. 552-0775
25