Listin að lifa - 01.12.2000, Page 31
það er Guðdómur, Guð.
Trúin á Guð er hjá Jónasi, sá rauði
þráður sem gengur í gegnum allan
hans kveðskap. Þar fann hann
lausnina - að ganga til góðs götuna
fram eftir veg.
Hér kemur forsendan að þeirri
framtíðarsýn sem ég hef lii nýrrar
aldar. Heimurinn þarf að komast á
þann grundvöll sem Jesús Kristur
hefur lagt. Til þess er nú kallað á alla
kristna mpnn að svo megi verða.
Kirkjan á ekki að vera spegilmynd
þjóðar, heldur salt hennar og ljós, eins
og Kristur tekur fram í upphafi
fjallræðunnar. Þjóðkirkjan hefur verið
farsæl og kær þjóðinni - er það og
mun áfram verða. Hér er trúfrelsi og
mönnum því frjálst að velja það
trúfélag sem þeir vilja, svo fremi sem
sá átrúnaður sé ekki andstæður góðu
siðferði eða allsherjarreglu.
Mér er í fersku minni það sem
Þórarinn heitinn Björnsson skóla-
meistari, sá vitri og ágæti maður,
sagði í blaðaviðtali: „Ég met siðgæði
meira en gáfur“, og hann bætti við
eitthvað á þessa leið: „Gáfur eru
hæfileikar sem maður þarf að vinna
úr, en til að það megi vel takast þarf
góða siðgæðisvitund en þar liggja
rætur guðstrúar. Þetta segir í raun eitt
og allt varðandi hvern einstakling sem
og heiminn í heild sinni.“
't&.ddmj' Sv'.cí%jmquins'
Daginn sem séra Pétur var settur inn í biskupsembættið - í sömu kápunni og
þegar hann var vígður til vígslubiskups að Hólum.
alla dáð? Nú er það vitað mál, að
vísindin ein og sér eru hlutlaust
hugtak, eins og tölvan og önnur
vísindaleg tæki. Þar skiptir öllu máli,
hvaða hugarfar býr að baki, hvað er
skrifað. í seinni hluta erindisins í
kvæðinu Til herra Páls Gaimard
kemur fram, hvað veldur því að mati
Jónasar að vísindin efla alla dáð. Hjá
honum er aflvakinn guðdómseldur -
Séra Pétur og Sólveig vilja nota
þetta tækifœri og flytja vinum og
vandamönnum og landsmönnum
öllum einlœgar jóla- og nýársóskir.
Megi Guð blessa Island á nœstu öld
og um allaframtíð.
Internet ráðgjöf
SÍMINNint ernet'
-tengir þig viö lifandi fólk
www.simnet.is 800 7575 Armúli 25
31