Listin að lifa - 01.12.2000, Qupperneq 47
Alkort - eitt elzta spil á íslandi!
Fyrir tveimur árum tók ég að mér
á vegum Félags eldri borgara hér í
Reykjavík að endurvekja gamalt
spil, sem var alveg að hverfa úr
íslenzku þjóðlífi. Spil þetta nefnist
alkort. Þessu spili var lýst mjög
nákvæmlega í Lesbók Morgun-
blaðsins fyrir síðustu jól og raktar
þær helztu heimildir, sem mér
voru kunnar um það. Eins hefur
stuttlega verið sagt frá alkorti í
blaði FEB. Verður að vísa til þess,
sem þar segir.
Ég get verið ánægður með þær undir-
tektir, sem alkortið hefur fengið, því
að nú er það spilað vikulega á fjórum
borðum og stundum fimm, en fyrsta
veturinn voru borðin aðeins tvö. I al-
korti eru fjórir spilamenn, svo að við
hittumst núna fæst sextán til þess að
læra eða rifja upp þetta spil. Aftur á
móti náum við ekki oft að verða
tuttugu, svo að unnt sé að spila á
fimm borðum. Verðum við þá að
skiptast á um að spila, en það virðist
ekki breyta neinu, enda er mikill á-
hugi og eindrægni í hópnum. Verður
ekki annað fundið en menn skemmti
sér hið bezta við þetta gamla spil.
Alkort spilað í Clæsibæ.
Ég vil enn hvetja menn til þess
að kynna sér alkortið og taka þátt í
spilamennskunni með okkur. Ég
komst svo að orði í fyrra, að
nokkurn tíma tæki að komast niður
í spilinu, enda spilagildi eftir allt
öðrum reglum en í þekktari spilum,
svo sem vist. Satt bezt að segja
virðist þetta samt ekki hafa vafist
fyrir neinum, enda í raun einfalt,
þegar menn hafa áttað sig á hlutun-
um. Og nú er jafnvel enn auðveld-
ara fyrir nýliða að koma í Glæsibæ
og læra alkortið, því að vant spila-
fólk er á öllum borðum, sem leið-
beinir þeim fyrstu skrefin.
Hópurinn hittist á þriðjudög-
um í Ásgarði, Glæsibæ, kl. 13.30,
og er að jafnaði spilað í þrjár
klukkustundir. Allir eru vel-
komnir þangað til þess að kynna
sér hið forna spil og taka þátt í
því með okkur.
Jáiv éAáalsteitui Jánssaiv
Við veitum elli- og örorkulífeyrisþegum
staðgreiðsluafslátt
af verði lyfja og ókeypis heimsendíngu
„innan hverfis" ef óskað er.
Garðs Apótek
Sogavegi 108- 108 Reykjavík
Sími 568 0990
Mikib úrval af fatnaði fyrir
öll tækifæri
Breytum fatnaöi frá okkur
yður að kostnaðarlausu
marion
Strandgata 11 • 220 Hafnarfirði • sími 565 1147
47