Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2008, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2008, Side 12
þriðjudagur 17. júní 200812 Neytendur DV Lof&Last n Lofið í dag fær regnboginn. Bíómiðinn hjá þeim kostar aðeins 650 krónur á meðan hann kostar yfir 1000 krónur annars staðar. þetta tilboð gildir í allt sumar. það er því full ástæða til að fara frekar í bíó þar heldur en á hinum okurstöðunum. n Lastið í dag fær 10- 11 fyrir rándýran mat. Viðskiptavinur kom að kvöldi og keypti sér lítið pitsustykki. Stykkið sem bæði var hart og kalt kostaði hvorki meira né minna en 250 krónur. Viðskiptavininum fannst hann hafa hent peningum út um gluggann eftir að hafa borðað stykkið. Leikurinn DV gefur milljón gengur vonum framar: Frábært Framtak „Mér finnst þetta frábært fram- tak og ég segi að hin blöðin ættu að fylgja þessu,“ segir Helgi Svein- björnsson, einn þeirra heppnu í leiknum DV gefur milljón. Leikur- inn hefur nú gengið í rúman hálfan mánuð og hafa 55 matarkörfur verið gefnar. Helgi hefur bæði tekið þátt í leiknum fyrir sig og foreldra sína. Hann tók þátt á fimmtudaginn að fyrirskipan móður sinnar og á föstu- daginn var hann dreginn út. Hann lét þá nafn móður sinnar og í gær var hún dregin út. „Þau eru mjög ánægð og þetta er mjög góð búbót fyrir þau,“ segir Helgi. Fyrir þá sem ekki eiga tölvu hef- ur verið erfiðara að taka þátt. Helgi segir föður sinn hafa verið skúffaðan í byrjun leiksins að eiga ekki tölvu og bauðst hann því að taka þátt fyr- ir hann. DV býður nú viðskiptavin- um sínum sem ekki eiga tölvu kost á því að hringja í blaðið sem mun taka þátt fyrir þá. „Það er mjög gott að það sé gert þannig og nú getur fólk, sérstaklega aldrað fólk sem á ekki tölvu, tekið þátt. Pabbi minn hefur verið áskrifandi í áratugi og var það svolítið leiðinlegt fyrir hann að geta ekki tekið þátt.“ Enn eru 45 körfur eftir í pottinum og mun leikurinn standa til 30. júní svo enn eru miklir möguleikar fyrir fólk að vinna sér inn matarkörfu frá Bónus. Sem fyrr segir fer þátttakan eingöngu fram á dv.is og þarf að eiga eintak af blaðinu. Gullinbrú 170,40 186,80 Bensín dísel Öskjuhlíð 168,70 185,20 Bensín dísel Skógarhlíð 168,90 185,20 Bensín dísel Hafnarfirði 166,60 183,10 Bensín dísel Arnarsmára 168,70 185,20 Bensín dísel Smáralind 168,70 185,20 Bensín dísel Skógarseli 168,90 185,30 Bensín díselel d sn ey t i Fátt er jafn svekkjandi og að vera kominn heim úr búðinni og uppgötva að maður hef- ur keypt útrunna vöru. DV fór á stúfana föstudaginn 13. júní og athugaði í nokkrum verslunum hvort útrunnin vara væri til sölu. Í öllum tilfellum var útrunnið gos í hill- um. Verslunareigendur segja það á ábyrgð gosframleiðenda. Útrunnið til sölu Stækkun gullhringa gamlir gullhringar geta eignast nýtt líf við stækkun. Kannað var hvað kostar að stækka einfaldan gullhring um tvö númer. Lægsta verð er uppgefið en þau geta breyst eftir þykkt hringsins. Tímadjásn í glæsibæ og Carat í Smáralind komu best út. Útrunna matvöru er erfitt að forð- ast og sérstaklega þegar verslanir hafa ekki gætur á því. DV fór í heim- sókn í fjórar verslanir til að ahtuga hvort útrunnin matvara væri til sölu. Í þremur þeirra var útrunnin matvara til sölu. Á Olís við Rauða- vatn var engin vara sem fannst út- runnin. Ábyrgð búðanna Verslunin 11-11 í Grafarholti kom verst út úr athuguninni en alls fundust fjórar matvörur í lauslegri yfirferð. Það var gos, unnin kjöt- vara og ferskvara. Áberandi var að útrunnið gos var í öllum búðunum. „Ég veit ekki hvað hefur komið upp þarna,“ segir Halldór Breiðfjörð, verslunarstjóri í 11-11 í Grafarholti. Hann segist harma það hversu margar vörutegundir voru útrunn- ar í versluninni. Það á að vera í verkahring starfsfólksins að fara yfir vörurnar á hverjum morgni auk yfirferðar á daginn. „Við eigum að sjálfsögðu að fylgjast með þessu,“ segir Halldór. Ekki þeirra „Það er erfitt að sjá við svoleið- is löguðu endalaust en við reyn- um okkar besta að minnsta kosti,“ segir Guðjón Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Vífilfells, um hvar ábyrgðin liggi. Guðjón segir að þeir raði ekki í hillur í öllum búðum. Á þeim stöðum verða þeir að treysta á starfsfólkið. Þær búðir sem Vífil- fell raðar í hillur eru Bónus, Nóa- tún og Krónan. Hins vegar gera þeir aldurskannanir í Hagkaupum, 10- 11 og 11-11 einu sinni í mánuði. „Ef það koma kvartanir um gamalt gos sendum við starfsmenn á staðinn til að athuga það betur,“ segir Guð- jón. „Það skiptir máli að fólk sé að kaupa vöruna okkar ferska. Skilaréttur Réttur neytenda er allur þeg- ar kemur að útrunninni matvöru. Fyrst og fremst á viðskiptavinur- inn að leita til verslunarinnar sem seldi útrunnu vöruna. Mikilvægt er að geyma kvittunina komist það upp strax að varan sé skemmd til að hægt sé að staðfesta dagsetn- ingar. Til að fylgja kvörtuninni eftir þarf að gera hana skriflega og leggja hana inn. Á vef talsmanns neyt- enda er hægt að leggja inn skrifleg- ar kvartanir vegna skemmdrar eða útrunninnar vöru. Slóðin er www. talsmadur.is. Stækkun gullhringa tímadjásn 3.500 Carat 3.500* Gull og silfur 3.700 Jens 4.000 Franc michelsen 4.200 meba 4.300 Jón og Óskar 5.300* *Lægsta verð VinningShafar DagSinS Vinningshafar 13. júní í leiknum dV gefur milljón. þeir hlutu í verðlaun 10 þúsund króna inneign í Bónus. dV óskar þeim innilega til hamingju. Bjarni hjartarson helena Líf Magnúsdóttir helga helgadóttir Jóhann guttormur gunnarsson Margrét Emilsdóttirneytendur@dv.is umSjón: áSdíS Björg jóhanneSdóTTir asdisbjorg@dv.is Neyte ur góð búbót helgi Sveinbjörnsson vann í matarkörfuleik dV, sem stendur til 30. júní. 45 körfur eru enn eftir í pottinum. ÁSDÍS BJÖrg JÓhannESDÓTTir blaðamaður skrifar: asdisbjorg@dv.is „Ábyrgðin er hjá starfsfólki verslana“ Verslanir Fylgjast ekki nógu vel með útrunninni matvöru í búðinni hjá sér. Útrunnar vörur þessar vörur fundust útrunnar í verslun 11-11 í grafarholti við athugun. athugið að kartöflusalatið á myndinni er eina varan sem ekki er útrunnin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.