Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2008, Blaðsíða 14
þriðjudagur 17. júní 200814 Fréttir DV
Gabriele Paolini, ítalskur tals-
maður smokkanotkunar, á yfir höfði
sér fangelsisivist nema hann láti
af iðju sinni. Paolini hefur skapað
sér nafn með því að koma aftan að
fréttamönnum í sjónvarpsútsend-
ingu á almannafæri og mæla með
notkun smokksins.
Samkvæmt heimsmetabók Gu-
inness er Paolini afkastamesti mað-
urinn á því sviði í heiminum og hefur
afrekað að trufla um tuttugu þúsund
fréttaskot með þessum hætti. En nú
er ítölskum yfirvöldum nóg boðið og
hæstiréttur þar í landi hefur staðfest
þriggja ára skilorðsbundinn fangels-
isdóm yfir Paolini sem hann hlaut
fyrir að trufla fréttaútsendingu rík-
issjónvarpsstöðvarinnar RAI í júní
2001. Til að taka af öll tvímæli um
skoðun sína á athæfi Paolinis úr-
skurðaði rétturinn aukinheldur að
hver sá sem laumar sér af ásettu ráði
inn í fréttaútsendingar á almanna-
færi geti hugsanlega verið að brjóta
af sér jafnvel þó viðkomandi sé þög-
ull og hreyfingarlaus.
Dauði vinar Paolinis úr eyðni
varð til þess að hann tók upp þetta
athæfi og að hans sögn er ekki um
athyglissýki að ræða. Hann vill vekja
athygli á málefnum eyðnisýktra og
ein leiðin til þess er að trufla útsend-
ingar með þeim hætti sem hann hef-
ur nú orðið þekktur fyrir.
Viðleitni hans hefur ekki alltaf
verið vel tekið og fréttamenn hafa
átt það til að hella sér yfir hann í
bræði í beinni útsendingu. Nú er
ljóst að Gabrele Paolini verður að
sitja á strák sínum, að minnsta kosti
í einhvern tíma, nema hann telji sig
geta boðað boðskap sinn um ágæti
smokka á bak við lás og slá.
Hefur laumast inn í 20.000 sjónvarpsútsendingar:
Smokkaprakkari varaður við
Æfðu sig fyrir ungfrú alheim
Lögreglan í Víetnam æfði sig svo
hún gæti verndað fegurðardísirnar
sem taka þátt í ungfrú alheimi. Æf-
ingin var haldin svo unnt yrði að
taka á hugsanlegri hryðjuverkaár-
ás þegar keppnin fer fram 13. júlí
Æfingin gekk út á að bjarga þrjá-
tíu gíslum úr klóm hryðjuverka-
manna, og á meðan samið var við
þá braust lögreglan inn, drap þrjá
gíslatökumenn og handsamaði
fimm.
Yfirmaður lögreglunnar í Nha
Trang, sagði að nú væri lögregl-
unni ekkert að vanbúnaði að gæta
öryggis hinna fögru fljóða.
InnIlokuð
í átján ár
Nýtt óhugnanlegt mál þar sem um er að ræða innilok-
un konu til margra ára komst í sviðsljósið um síðustu
helgi. Þar var um að ræða fjörutíu og sjö ára konu
sem hafði verið fangi fjölskyldu sinnar í átján ár.
Enn er langt í að fenni yfir mál
Elísabetar Fritzl og Natöschu
Kamupsch, sem báðar voru inni-
lokaðar um margra ára skeið. Nú
hefur komist upp um mál af svip-
uðum toga á Ítalíu og ef að líkum
lætur munu augu alheimsins nú
beinast frá Elísabetu Fritzl og að
Maríu Monaco frá Santa Maria
Capua Vetere norður af Napólí á
Ítalíu.
Síðastliðinn föstudag slapp
María Monaco úr prísundinni sem
faðir hennar og fjölskylda höfðu
dæmt hana til fyrir átján árum eft-
ir að hún varð barnshafandi utan
hjónabands. Ekki er loku fyrir það
skotið að fjölskyldan hafi gripið til
þess óyndisúræðis til að forða fjöl-
skyldunni frá rætnum almanna-
rómi, enda barneignir utan hjóna-
bands ekki vel þokkaðar víða í
samfélögum rómversk-kaþólskra.
Í átjan ár var Maríu gert að hír-
ast í grútskítugu svefnherbergi án
nokkurs samneytis við aðra en
móður sína og systkini.
Meðfylgjandi myndir lýsa bet-
ur en nokkur orð þeim aðbúnaði
sem hún hafði búið við; salern-
ið svart af saur og herbergið, sem
ekki státaði af mörgum húsgögn-
um, skítugra en orð fá lýst.
Fnykur vakti grunsemdir
María Monaco getur þakkað
nágrönnum sínum fyrir nýfeng-
ið frelsi því mikill og stækur fnyk-
ur olli því að nágranninn hafði
samband við lögreglu. Við eftir-
grennslan fann lögreglan Maríu
Monaco og batt enda á þau örlög
sem hún hafði verið dæmd til átj-
án árum áður.
Lögreglan hefur handtekið átt-
ræða móður Maríu, fimmtíu og
fjögurra ára systur Maríu, og fjöru-
tíu og fjögurra ára bróður. Þeim er
gefið að sök að hafa haldið Maríu
fanginni og að sögn ítalskra fjöl-
miðla má rekja ástæðuna til árs-
ins 1990 þegar María eignaðist son
utan hjónabands.
Hver faðir sonar Maríu er er
ekki vitað eins og sakir standa.
Hvatir þessarar ítölsku fjöl-
skyldu eru í hróplegri mótsögn
við það sem stóð að baki ákvörðun
Jósefs Fritzl og þeirri áratugalöngu
ánauð kynlífs og sifjaspells sem
Elísabet bjó við í kjallara heim-
ilis Fritzl-fjölskyldunnar. Ekki er
fráleitt að ætla að trúarlegar hug-
myndir fjölskyldu Maríu um vel-
sæmi og kynlíf utan hjónabands
hafi ráðið gjörðum hennar fyrir
tæpum tveimur áratugum. Barn-
eign utan vébanda hjónabands
er litin hornauga víða á meðal
strangtrúaðra rómversk-kaþólskra
Ítala og gerir fjölskyldu viðkom-
andi ævarandi hneisu.
Vissi ekki um móður sína
Ekki er neitt sem gefur vísbend-
ingar um að sonur Maríu, sem er
sautján ára, hafi vitað um örlög
hennar. Hann hefur engu að síð-
ur búið á heimili fjölskyldunnar,
en ef satt reynist hefur ömmu hans
og frændfólki tekist með ótrúleg-
um hætti að halda honum í fáfræði
hvað móður hans varðaði.
Að sögn ítalskra fjölmiðla hefur
María Monaco beðið verulegt tjón
á geðheilsu sinni eftir átján ára ein-
angrun og fangavist og var hún lögð
inn á geðdeild sjúkrahúss í Napólí.
Of snemmt er að segja með
hvaða hætti ættingjar Maríu Mon-
aco munu svara þeim ákærum sem
bíða þeirra vegna athæfis þeirra síð-
astliðin átján ár.
Þess má geta að páfadæmið hef-
ur löngum lagt á það þunga áherslu
að kynlíf og barneignir utan hjóna-
bands beri syndsamlegri hegðun
vitni.
Mál Maríu Monaco sýnir svo ekki
verður um villst að ekki er vert að
meta hús og heimili út frá því sem
að götunni snýr og að víða kann sitt-
hvað óhugnanlegt að leynast innan
veggja sem í fljótu bragði virðast
bera vott um siðsemi og dyggðugt
mannlíf.
Kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Móðir, systir og bróðir Eru í haldi lögreglu á ítalíu.
Gabriele Paolini Á heimsmet í að trufla sjónvarpsútsendingar á almannafæri.