Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2008, Síða 18
Svarthöfði er hryggur í dag og þunglyndið mun stigmagnast eftir því sem líður á daginn
í jöfnu hlutfalli við bergmálið af
hátíðarhöldunum á götum úti sem
berst inn um gluggann. Í dag ryðst
ein mesta smáborgaraþjóð í heimi
undir lúðrablæstri og fánaþyt í
skrúðgöngur og fagnar sjálfstæði
sem fékkst í gegn með þrasi og
tuði. Dagurinn er notaður til þess
að berja sér á brjóst, hengja orður
á fólk fyrir mismikil og mismerk
afrek og tala um hversu æðislegt
það sé að vera Íslendingur og tala
íslensku sem er æðislegasta tunga
í heimi, alveg meira en 1000 ára
gömul og allt.
Blóði var ekki úthellt svo heit-ið geti í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og kannski liggur
þar aðalástæðan fyrir því hversu
illa við höfum farið með frelsið
sem er fyrir löngu orðið helsi. Ef
fer sem horfir vorum við jafnvel
í betri málum hangandi á hor-
riminni í moldarkofunum undir
oki danakonungs en í veðsettum
steinsteypukumböldunum á 21.
öldinni. Til hvers í ósköpunum
vorum við þá að röfla okkur undan
oki Dana ef niðurstaðan er þessi?
Maður spyr sig.
Nú eru Íslendingar, meint frjáls þjóð í frjálsu landi, kúgaðir af máttlausri rík-
isstjórn sem getur ekki einu sinni
með yfirþyrmandi þingstyrk lyft
litla putta til þess að stöðva þá
helför sem íslenskt efnahagslíf er
lagst í. Ekki gera ekki neitt segja
innheimtumennirnir, sem nú fitna
eins og púkar á fjósbitum, á með-
an lánin falla yfir okkur sem erum
varla stigin úr góðærisvímunni inn
í raunveruleikann. Kannski er samt
farsælast að gera ekki neitt. Það
er í það minnsta voðalega
íslenskt og í dag fá örugg-
lega einhverjir pótintátar
orðu frá forsetanum fyrir
að hafa aldrei gert landi
sínu og þjóð nokkurt ein-
asta gagn.
Seðlabankinn er alltaf að gera eitthvað og afleiðingar þeirra misgjörða eru jafnvel
verri en aðgerðaleysi ríkisstjórn-
arinnar. Stýrivaxtakúgunin verður
á endanum til þess að hvalrekar
verða aftur hvalrekar og ísbirnir
sem villast hingað til lands verða
drepnir af illri nauðsyn
til matar. Súrmatur
tekur við af flatbök-
um og fólk gerist
sauðaþjófar á ný
og mun jafnvel
neyðast til að
taka bandspotta
ófrjálsri hendi.
Nú verður hins vegar ekki spurt hvenær maður drepi mann, heldur hvenær
stjórnvöld drepi þjóð? Enginn
fréttamaður er þó svo dónaleg-
ur að hann muni slengja þess-
ari spurningu framan í landsfor-
eldrana Geir og Ingibjörgu í dag.
Þetta er dagurinn þeirra
og forsætisráðherrann
mun halda innblásna
einræðu yfir landslýð.
Ekki svara brennandi
spurningum en þusa
eitthvað um velsæld
og hvað hér sé frábært
að búa á meðan múg-
urinn á bara fyrir brenni-
víni en ekki mjólk og bensíni. Og á
meðan ráðafólkið mærir íslenska
menningu, tungu og sögu sem
gera okkur að einstakri
þjóð á heimsmælikvarða
horfir pupullinn á am-
erískt rusl í sjónvarp-
inu og talar bjagaða og
enskusletta hryggðar-
mynd af móður-
máli sínu.
Hverju í ósköpunum erum við að fagna í dag? Mátt-lausum gjaldmiðli sem
við ætlum að rígahalda í vegna
þjóðrembu? Útrásarvíkingunum?
Frelsishetjum 21. aldarinnar, sem
eru skriðnir heim með skottið milli
lappanna? Fátækari en nokkru
sinni fyrr? Jón Sigurðsson hlýtur að
snúa sér í gröfinni þegar skuldsett
blóm verða borin að leiði hans.
Titrandi smáblóm sem væru betur
lögð að minnisvarða um íslenskt
sjálfstæði sem þjóðin kunni ekki
að fara með þannig að við blasir
að okkur hefði verið betur borgið
undir Dönum og einu bjargráðin
eru að gerast ríki í Bandaríkjunum
eða aðilar að ESB.
Gleðilega hátið.
þriðjudagur 17. júní 200818 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fulltrÚi ritStjóra:
janus Sigurjónsson, janus@dv.is
fréttaStjóri:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
DrEifingarStjóri:
jóhannes Bachmann, joib@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
SjálfStætt fólk
svarthöfði
Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Yfirvöld velja að bregðast ekki við barsmíðum á börnum.
Við fórnum börnum
Leiðari
Í góðærinu undanfarin ár hefur lúxusjeppum fjölgað, blokkir hafa verið byggðar tvist og bast og verslanir með munaðarvör-ur hafa skotið upp kollinum eins og fíflar að vori. Á sama tíma hefur ekki reynst mögulegt að bregðast við auknu ofbeldi gegn
börnum. Ekki einu sinni með því að rannsaka það.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, orðaði ástandið
þannig í DV í gær að þetta væri ískyggileg þróun. Eitt er að ábend-
ingar um ofbeldi gegn börnum hátt í tvöfaldist á þremur árum.
Annað er að 23 ábendingar um líkamlegt ofbeldi gegn börnum
berist daglega. En að yfirvöld sjái sér aðeins fært að rannsaka aðra
hverja ábendingu er ótrúleg viðurstyggð. Þessi ömurlega staðreynd
segir sína sögu um samfélag okkar, því líklega er ekki til neitt ber-
skjaldaðra en barið barn.
Börn eiga oft erfitt með að tjá hugsanir sínar. Þegar þau hafa ver-
ið beitt ofbeldi eiga þau ennþá erfiðara með það. Oft er það líka
þannig, að börnin geta hreinlega ekki sagt neinum frá. Of-
beldið á sér stundum stað innan veggja heimilisins, þar sem
gerandinn er foreldrar barnsins. Slíkt barn á ekki annan að,
nema ef vera skyldi yfirvöld. Nú á það engan að. Af því að við
erum of upptekin við annað.
Ef horft er á samfélag okkar í heild sinni má sjá ákveðna
þróun. Sífellt meira fé hefur farið í lúxusbíla og ýmsa
munaðarvöru. Líklega er ekki hægt að kalla það
góða fjárfestingu til framtíðar, ekki frekar en allar blokkirnar sem
hent hefur verið upp í svefnhverfum höfuðborgarinnar og neyða
fólk út í peningasóun í umferðinni. Að bregðast við því ef börn eru
barin er hins vegar góð fjárfesting. Það kann að vera erfitt að reikna
út krónutöluna, en öllum heilbrigðum mönnum ætti að vera það
ljóst. Rannsóknir í félagsvísindum hafa leitt í ljós að börn sem upp-
lifa ofbeldi eru mun líklegri til að beita sjálf ofbeldi á fullorðinsár-
um. Barin börn eiga það á hættu að skemmast. Þau brotna niður og
geta breyst í andstæðinga samfélagsins. Ef það þarf eitthvað annað
en manngæsku til að sannfæra yfirvöld mætti benda á að glæpum
fylgir kostnaður. Í framtíðinni munu barin börn kosta samfélag-
ið mun meira heldur en nemur kostnaðurinn af þeirri sjálfsögðu
skyldu okkar að rannsaka ofbeldið gegn þeim.
Nú er að rísa glæsilegt Tónlistar- og ráðstefnuhús í miðborg-
inni. Það kostar 17 milljarða. Húsið tekur 3.200 manns í sæti.
Til samanburðar voru 8.400 ábendingar um ofbeldi gegn
börnum í fyrra. Það væri líklega hægt að fylla Tónlist-
arhúsið með börnum sem hafa verið beitt ofbeldi án
þess að það hafi verið rannsakað, þótt það hafi verið
tilkynnt.
Yfirvöld velja að bregðast ekki við barsmíðum á
börnum, heldur setja peningana í annað. Við erum
samsek ef við gerum ekkert í því.
DómstóLL götunnar
Finnst þér Íslendingar nota þjóðbúninginn nógu mikið?
„nei, íslendinga skortir áhuga fyrir að
klæðast þjóðbúningnum.“
Sigurður Sigurðsson, 31 árs og er
frá vinnu vegna meiðsla
„nei, mér finnst fallegt að nota
þjóðbúninginn 17. júní og aðra
hátíðisdaga.“
Ingveldur Bjarnardóttir, 63 ára
glerlistamaður
„já ég held það, þetta er bara fastur
siður að þjóðbúningurinn sé notaður.“
Margrét Sigurjónsdóttir, 81 árs og
starfaði áður í tískuiðnaðinum
„nei, mér finnst að það megi nota
þjóðbúninginn miklu meira við
hátíðleg tilefni.“
Pálína Jónsdóttir, 60 ára sjúkraliði
sanDkorn
n Íslenski hlutabréfamarkaður-
inn kólnar enn og er við toppinn
á lista yfir mestu fallista heims-
ins það sem
af er ári. Og
ekki skán-
ar það. Óli
Björn Kára-
son hefur
tekið saman
tölur um fall
markaðar-
ins fyrir við-
skiptavefinn t24.is. Þar kemur
fram að stærstu viðskiptablokk-
irnar þrjár hafa lækkað um sam-
tals 723 milljarða króna á árinu.
Þar af hafa fyrirtæki í viðskipta-
blokk Bakkabræðranna Lýðs og
Ágústs Guðmundssona lækkað
um 279 milljarða, Baugsveldið
um 207 milljarða og Björgfólfs-
veldið um 237 milljarða.
n Tískubylgja ríður nú yfir
stjórnmálamenn. Hún felst í því
að lýsa spurningum fjölmiðla
sem óviðeigandi eða dónaleg-
um. Þetta sagði Geir Haar-
de við fréttamann Stöðvar 2
sem spurði út í efnahagslífið.
Auk þess þótti honum dóna-
skapur og óviðeigandi að tjá
sig um brotthvarf Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar úr borgar-
stjórastólnum. Sigurði Kára
Kristjánssyni þingmanni fannst
óviðeigandi af Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur að tjá sig um
Baugsmálið og formaður fjár-
laganefndar Alþingis telur óvið-
eigandi að tjá sig um fjárlögin
fyrir fram.
n Brautryðjandinn á þessum
vettvangi var Ólafur F. Magn-
ússon, sem hafði verið borgar-
stjóri í nokkrar mínútur þegar
hann sagði það vera óviðeigandi
að spyrja hann út í veikindin
sem héldu honum frá vinnu, en
vitað var að meirihlutinn myndi
springa ef hann færi í veikinda-
leyfi á ný. Hann svaraði með
sama orði
þegar blaða-
maður DV
spurði hann
í vetur hvort
hann væri
flughrædd-
ur, eins
og margir
höfðu nefnt.
Ólafur F. hefur þó brotið ísinn
og flogið í fyrsta sinn til útlanda
á vegum borgarinnar, til Þórs-
hafnar í Færeyjum.
n Allt varð brjálað á Bíladög-
um á Akureyri um síðustu
helgi, líkt og DV greindi frá í
gær. Eins dauði er hins vegar
annars brauð. Þannig var mun
hljóðlátara í nágrenni Granda í
Vesturbæ Reykjavíkur um helg-
ina heldur en í langan tíma. Þar
hafa ungmenni haft fyrir sið að
spóla sportbílum sínum í hringi
með tilheyrandi ýli og ýskri sem
haldið hefur vöku fyrir Vestur-
bæingum. Bílaplan Krónunnar
við Fiskislóð hefur orðið vinsæll
vettvangur fyrir spólið. Meira að
segja ritstjórinn Jónas Kristj-
ánsson hefur vaknað við lætin.
Hann býr í dágóðri fjarlægð á
Seltjarnarnesi.