Dagblaðið Vísir - DV - 17.06.2008, Síða 30
þriðjudagur 17. júní 200830 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Mynd Ólafs Jóhannesson-
ar, The Amazing Truth About
Queen Raquela, heldur áfram
að vinna til
verðlauna.
Mynd-
in hlaut
nú tvenn
verðlaun á
nýlokinni
NewFest-
kvikmynda-
hátíðinni í
New York. Annars vegar sem
besta alþjóðlega kvikmyndin
en dómnefnd hafði orð á því að
myndin væri í senn hreinskilin,
hvetjandi, fyndin og sorgleg og
slægi ekki eina feilnótu. Hins
vegar hlaut hún Vanguard-verð-
launin sem veitt eru af dóm-
nefnd á vegum sjónvarpsstöðv-
arinnar Showtime en stöðin
hýsir ekki ómerkari þætti en
Dexter og Californication.
n Eins og DV greindi frá var und-
arlegt misræmi á milli tveggja
mynda sem
birtust í
Fréttablað-
inu fyrir
helgi. Önnur
þeirra, sem
var á for-
síðu, sýndi
sköllótta,
íslenska
knattspyrnumenn, auk þjálf-
arans Ólafs Kristjánssonar,
uppstillta fyrir auglýsingu fyrir
Wella-hárvörur. Einn skar sig
þó úr á myndinni, FH-ingur-
inn Davíð Þór Viðarsson, sem
skartaði ágætislubba. Inni í blað-
inu var svo önnur mynd af hópn-
um, og þar var Davíð orðinn
sköllóttur. Staðfesting á því hvort
um var að ræða fótosjopptakta
Fréttablaðsmanna eða hvort
Davíð hafi látið sköfuna vaða á
kollinn á milli mynda fékkst um
helgina þegar sandkornsritari sá
piltinn í Kringlunni. Fótósjopp
var það heillin. Davíð er enn
hárprúður mjög, líkt og nafni
hans í Seðlabankanum.
n Leikarar og gestir Grímunnar
héldu allir niður í Þjóðleikhús-
kjallarann eftir hátíðina sjálfa
síðastlið-
ið föstu-
dagskvöld
og héldu
veislunni
áfram. Fjöl-
mennt var
í kjallar-
anum enda
Gríman upp-
skeruhátíð leikara. Leikhúsband
Akueyrar spilaði fyrir dansi og
hélt upp þrusu stemmningu allt
kvöldið, nema hvað að enginn
dansaði. Það vita allir að leikar-
ar eru feimnir, en þeir geta ekki
verið það feimnir.
Hver er maðurinn?
„Bergvin Oddsson. Léttur og ágæt-
lega jákvæður strákur, þrjóskur en
stundum dálítið kærulaus.“
Hvað drífur þig áfram?
„Lífsgleðin.“
Uppáhaldsstaður í æsku?
„Margir staðir í Vestmannaeyjum.“
Hver er aðalatvinna þín?
„Í dag er það að reka kaffihús og að
selja bókina mína Allt fer úrskeiðis.“
Hvernig kviknaði hugmyndin
að bókinni?
„Ég var að horfa á Kastljóstið í byrj-
un desember 2004 og það var bóka-
gagnrýni í þættinum. Mig langaði
að fá bókagagnrýni svo ég slökkti á
sjónvarpinu, settist niður og byrjaði
að skrifa.“
Um hvað er bókin?
„Þetta er unglingaskáldsaga sem
fjallar um Hemma, 17 ára töffara sem
veit ekki alveg hvað hann á að gera
við líf sitt. Tommi, vinur hans, kemur
út úr skápnum og það reynist þeim
erfitt. Á sama tíma er Hemmi ást-
fanginn af stelpu og reynir að heilla
hana upp úr skónum, svo fer allt úr-
skeiðis.“
Kemur bókin þín út á blindra-
bókasafninu?
„Já, hún gerir það og ætti að vera
komin.“
Hvar verður kaffihúsið?
„Í húsi Blindrafélagsins í Hamrahlíð
17. Það er opið á morgun frá 11 til
18 og virka daga milli 11 og 15 til 20.
júlí.“
Hverjir þjóna til borðs?
„Ungmenni Blindrafélagsins, fimm
krakkar frá 17 til 22 ára. Þetta er sam-
starfsverkefni við Hitt húsið sem
skaffar þeim augu, tvo aðstoðar-
menn.“
Hvað verður á boðstólum?
„Léttir réttir, súpur og salöt og svo
bakkelsi allan daginn.“
Hvað er á döfinni?
„Það er að reka kaffihús núna í einn
mánuð og svo langar mig að skrifa
nýtt uppistand í sumar og fara á
þeyting með það í haust. Ég var dug-
legur í uppistandinu 2004, 2005 og
2006 en svo hef ég verið latur að búa
til nýtt efni en nú er komið að því.“
Hver er uppáhaldstónlistin
þín?
„Ég er voðalega íslenskur, hlusta á
allt íslenska rokkið og poppið eins
og á Bubba, KK, Sálina, Á móti sól og
fleira.“
Hvernig er að vera blindur á
Íslandi í dag?
„Ég kvarta allavega ekki. Við höfum
til dæmis Ferðaþjónustu blindra og
fáum öll hjálpartæki sem við þurfum.
Stundum kemur það fyrir að maður
rekst óvart á einhvern úti á götu, þá
spyr maður bara hver sé sjónlaus.“
Hver er draumurinn?
„Að komast á Alþingi. Það er draumur
síðan ég var átta, níu ára. Það er verið
að vinna í því, skrifa greinar í blöð og
koma sér í prófkjör.“
Hvað ætlarðu að gera 17. júní?
„Vera í kaffihúsinu og svo er grillveisla
hjá ömmu um kvöldið með allri fjöl-
skyldunni.“
MAÐUR
DAGSINS
Draumurinn að
komast á alþingi
Bergvin Oddsson er ungur
blindur maður með margt á prjónunum.
Hann er nýbúinn að gefa út bókina „allt
fer úrskeiðis“ og opnar í dag „blindra-
kaffihús“ í húsnæði Blindrafélagsins.
BókStAfleGA
„Það er ekki oft sem stóri
reimar á sig
dansskóna.
Vanalega er
ég sexí gæ-
inn á barn-
um, en núna
ætla ég að vera á
dansgólfinu. Gæti jafn-
vel þurft að rífa mig úr að
ofan.“
n Egill „gillz“ Einarsson ætlaði að
mæta á tónleika plötusnúðsins david
guetta í Laugardalshöll í gærkvöldi. -
Vísir.
„Þessir fjölmiðlar birtu
newspeak lögg-
unnar, sem
notar orðið
varnarúða
um pipar-
úða sinn. Af
hverju ekki
ástarúða? Einnig birtu
letingjarnir, að löggan
hafi „þurft að“ beita vopn-
um. Réttara er að birta,
að löggan „sagðist hafa
þurft að“ beita friðartækj-
um sínum.“
n jónas Kristjánsson á bloggsíðu
sinni um fréttaflutning Mbl. og Fbl. af
uppþotunum á akureyri um helgina.
„Ég valdi þennan dag til
að muna hann alla ævi
líkt og öll heimsbyggð-
in. Það er líka
táknrænt að
þegar tví-
buraturn-
arnir féllu
minntu þeir
á logandi sígar-
ettur sem brunnu nið-
ur og eftir urðu rústirnar
einar.“
n Eiríkur jónsson, ritstjóri Séð og
Heyrt, sem hætti að reykja 11.
september 2005. - dV.
„Ég ætla ekki að skilja
eftir einhverja drullu og
hlaupa síðan í burtu. Ætli
maður hreinsi
ekki upp eftir
sig á með-
an maður
gerir þessu
liði eitthvert
gagn.“
n Ólafur Stefánsson, landsliðsmaður í
handknattleik, spurður hvort hann
hyggist taka þátt í undankeppni EM
á næsta ári, eftir að Makedónar komu
í veg fyrir að ísland kæmist á HM í
janúar. - Mbl.
„Við vorum í mikilli krísu
með að finna nafn á
hljómsveitina og ein-
hverjum datt þetta nafn í
hug þegar við vorum að
fylla út umsóknina nótt-
ina áður en fresturinn
rann út.“
n daníel Friðrik Böðvarsson,
meðlimur hljómsveitarinnar reimar
sem tekur þátt í Skapandi sumarhóp-
um Hins hússins í sumar, spurður út í
nafn bandsins. - Mbl.
„Ég hef voða
mikið innra
„drive“, eða
hvað á að
kalla þetta.
Og það er í
hverju sem er,
enda taugaveikluð kona.“
n þuríður Pálsdóttir, heiðursverð-
launahafi grímunnar í ár, aðspurð
hvað drífi hana áfram. - dV.
Fjóla Ósland sigraði í Hönnunarkeppni Hagkaupa sem fram fór á laugardaginn.
„Æðislegt að vinna“
Sex kepptu til úrslita um dömu-
línu í Hönnunarkeppni Hagkaupa
og varð Fjóla Ósland Hermanns-
dóttir hlutskörpust þeirra. Í verð-
laun voru 200.000 krónur auk þess
að fá línuna fjöldaframleidda og
selda í verslunum Hagkaupa: „Það
var æðislegt að vinna, þetta er
mikil hvatning og góð viðurkenn-
ing á því að það sem ég hef verið
að hanna virki,“ segir hún.
Fjóla hannaði hversdagsfatnað
eftir eigin smekk sem á að höfða til
kvenna á öllum aldri. Innblástur-
inn kom frá joggingfatnaði áttunda
og níunda áratugarins en snið-
in á kjólunum eru frá tímabilinu í
kringum 1940: „Ég blandaði sam-
an prenti og bróderíi sem er frekar
óvenjulegt,“ segir hún. Ekki er ljóst
hvenær fötin koma í búðirnar en
Fjóla sjálf verður með í því að velja
efni og fylgir öllu ferlinu eftir.
Fjóla útskrifaðist með BA-gráðu
í textíl og fatahönnun fyrir ári frá
Listaháskóla Íslands. Síðan þá hef-
ur hún verið í fæðingarorlofi og er
enn. Eiginmaður Fjólu er lands-
liðsþjálfari karla í handbolta, Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, svo það
hefur verið mikill hasar á heimil-
inu að undanförnu: „Þetta er búið
að vera hálfgert brjálæði, grasekkj-
an ég að hanna með ungabarn á
arminum, en þetta tókst,“ segir
Fjóla.
liljag@dv.is
Verðlaunahafinn Fjóla með hönnun
sína. grái kjóllinn hægra megin bar sigur
úr býtum.