Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 13
DV Helgarblað föstudagur 27. júní 2008 13 ER STARFIÐ ÞITT KREPPUHELT? Rólegheit hjá bílasölum Það sama hefur gilt um bílasala síðustu ár og um fast- eignasala. Mikið líf hefur verið á markaðnum, en það er breytt. Samkvæmt tölum frá Umferðarstofu voru ný- skráningar nýrra bifreiða 1.363 talsins frá áramótum til loka maí. Á sama tímabili árið 2007 voru nýskráningar nýrra bifreiða 2.300 talsins. Þessi mikli sam- dráttur í nýskráningu bifreiða nemur 59 prósentum. Bílasalar eru þegar byrjaðir að bregð- ast við sam- drættinum og hafa pantað færri bíla og reynt hvað þeir geta til að minnka birgðir. aukin innheimta Á samdráttartímum sem þess- um eykst velta þeirra fyrirtækja sem fást við innheimtu. Sig- urður Arnar Jónsson, forstjóri Intrum Justita, bendir þó á að aukin velta segi ekki alla söguna. „Flestir halda að við græðum á tá og fingri í þessu efnahags- ástandi, en það þurfa að vera peningar í umferð til þess að hægt sé að innheimta kröfurnar. Við finnum fyrir því að við fáum fleiri kröfur til innheimtu, en aftur á móti tekur lengri tíma að fá þær greiddar og innheimtuhlutföllin eru lakari. Það er lausafjárskortur í landinu og menn þurfa lausafé til að borga kröfur,“ segir hann. Sigurður Arnar segist finna fyrir því að síðustu þrjá mánuði hafi Intrum farið að berast fleiri kröf- ur, jafnt á einstaklinga og fyrirtæki. „Þetta er alls ekki gott ástand fyrir okkur. Bæði eru kröfueigendur og greiðendur miklu meira og lengur í sambandi við okkur og okkar atvinnugrein sveiflast af- komulega með efnahagssveiflunum.“ kReppiR að hjá bændum Bændur finna sannarlega fyrir efnahagsástandinu. Olíuverð hefur hækkað gífurlega og kostar lítr- inn af dísilolíu víða tæplega 200 krónur. Óhagstætt gengi krónunnar hefur gert það að verk- um að innflutt aðföng til bænda hafa einnig hækkað mikið. Þannig hefur verð á áburði hækkað um allt að 70 prósent frá síðasta ári. Til þess að bændur geti mætt þessari miklu hækkun þurfa þeir að hækka söluverð á kjöti um tæpar 64 krónur hvert kíló. Landssamtök sauðfjárbænda ályktuðu í vetur að nauðsynlegt sé að mæta þessum vanda. Takist það ekki muni það hafa víðtæk áhrif í greininni og þar með á búsetu í hinum dreifðu byggðum landsins. Fínt að veRa í skóla Skynsamur maður sækir sér menntun á erfiðum tímum og fer á vinnumarkaðinn á góðæristím- um. Nú þegar kreppir að getur það verið ágætt að eiga lítið og skulda ekkert, eins og námsmanna er gjarnan siður. Námsmönnum bjóðast framfærslulán á miklu hagstæðari vöxtum en þekkjast annars staðar í samfélaginu. Nú þegar vonir um örskjótan frama innan fyrirtækja hafa minnkað er rétt að sækja sér menntun og bíða eftir næstu veislu. heilbRigðisstéttiR Finna lítið til Niðursveiflan mun ekki leiða til fjöldauppsagna á spítölum lands- ins. Hjúkrunarfræðingar, læknar og aðrir sérfræðingar í heilbrigð- iskerfinu geta unnið sína vinnu áfram án þess að óttast um starfsöryggi sitt. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur þó boðað til yfirvinnu- banns frá og með 10. júlí næstkomandi til að knýja fram nýjan kjara- samning. Mikil óánægja hefur ríkt í starfsstéttinni undanfarið og sam- þykktu 95 prósent félagsmanna að beita þessum aðgerðum. Það hefur samt sem áður lítil sem engin áhrif á starfsöryggi þeirra. Störf innan heilbrigðis- kerfisins eru því skotheld í slæmu efnahagsástandi. gengið heFuR engin áhRiF á guðsoRð Sveiflur í efnahagnum hafa engin áhrif á presta og predikara, sem breiða út boðskap drottins, hvernig sem viðrar. Gengi krónunnar hefur engin áhrif á guðsorðið. Til marks um það hefur Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins, farið mik- inn á síðum DV síðustu daga um það hvernig hækkandi matvæla- og bensínverð bendir til hins mikla hruns Vesturlanda í alþjóðasamfé- laginu. Prestar þjóðkirkj- unnar eru auk þess ríkisstarfsmenn og þola því samdrátt betur en stéttir á almenna mark- aðnum. Framhald á næstu síðu Verðbólgan í júní mælist 12,7 prósent og hækkaði um 0,4 prósent á milli mánaða. Verðbólgan hefur ekki ver- ið meiri hér á landi síðan í ágúst árið 1990, þegar hún mældist 14 prósent.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.