Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 18
föstudagur 27. júní 200818 Umræða DV Notalegt á Þingvöllum „Ætli það sé í gær. Ég var í sumarbú- stað á Þingvöllum með systur minni og börnunum okkar. Við fengum okkur að borða góðan mat og það var endalaus sól. Gott að gleyma kreppunni aðeins og hafa það notalegt. Ég var líka að koma heim frá Bandaríkjunum frá hinni systur minni. Við vorum allar saman þar. Þannig að þessi vika er búin að vera viðburðarík í tengsl- um fjölskyldunnar. Við fjölskyldan fórum í viku frí og þar hittumst við allar systurn- ar og höfðum það notalegt. Hápunktur- inn í ferðinni var þegar tveggja ára sonur minn sá ljón í dýragarðinum, það var mjög skemmtilegt augnablik og ábyggilega það stærsta í lífi hans. Annars hef ég verið á samningafundum í vikunni og lítið að ger- ast í því, þannig að það hefur ekki borið hátt í vikunni. Að vera með fjölskyldunni er það besta í lífinu og það sem skiptir máli.“ Þórunn Lárusdóttir, leikkona og söngkona Veita hugmyndir „Í rauninni er það helsta sem er í gangi hjá mér núna Stundin okkar, ég er að reyna berja hana saman svo hún verði tilbúin þegar tökur byrja í ágúst. Ég er að fá fullt af hugmyndum frá krökkum og fullorðnu fólki. Hugurinn minn getur bara hugsað um eitt í einu og konan mín fékk mig samt til að taka sumarfrí og við förum í nokkra daga til Seyðisfjarðar. Svo fékk ég sent bréf þar sem er verið að hvetja alla til að standa saman gegn olíufélögunum, maður er farinn að finna rosalega fyrir kreppunni. Maður er farinn að hugsa allt öðruvísi en maður gerði, maður er farinn að huga að því að koma með kaffi að heiman og borða heima. Ég á pínulítinn Polo og það kom mér verulega á óvart að ég gat ekki fyllt hann fyrir 6.000 kall. Svo finnst mér líka rosalega skemmtilegt að heyra af Spur Cola sem kom inn á Ölgerðina í vikunni, það fyrsta sem maður kveikir á er Sódóma Reykjavík.“ Björgin Franz Gíslason, leikari Erlendis með fjölskyldunni „Það helsta er að ég skellti mér til út- landa með fjölskyldunni til Tenerife. Við komum á þriðjudaginn og erum hérna í brjáluðum hita svo eigum við eftir að vera hérna í tvær vikur. Það var nú líka rosalega skemmtilegur fótboltaleikur á miðvikudag og mér fannst að Tyrkir hefðu átt að vinna þetta, maður var nokkuð svekktur með það því mér fannst Tyrkir eiga það skilið að fara með sigur af hólmi. Svo vil ég nú ekki gleyma frábærum sigri hjá íslenska kvenna- landsliðinu í fótbolta sem ég horfði á með miklum áhuga og er stoltur af stelpunum. Ég skrifaði líka undir tveggja ára samn- ing við Skallagrímsliðið, ég er búin að vera meiddur í öxlinni allan síðasta vetur og fer í myndatökur þegar ég kem heim svo ég verði klár fyrir tímabilið. Svo fer ég strax að æfa þegar ég kem heim og við vorum að fá nýjan Kana sem er mjög spennandi þar sem hann hefur gert það gott á ýmsum stöðum.“ Pálmi Þór Sævarsson, körfuboltakappi Passar barnabörnin „Það sem er mest að gerast í þessari viku er að ég er að passa tvö af barnabörnunum mínum. Sem eru eins og tveggja ára. Sigga elsta dóttir mín og Steini sem er í Hjálmum fóru í 5 daga. Það er alveg ótrúlega gaman að vera með svona eins árs og tveggja ára gömul börn og mörg skemmtilegt uppá- tæki sem við höfum tekið upp á. Svo er bara yndislegt veður, bara búin að vera eðlileg vika. Það er fyndið að fara aftur í það hlut- verk að vakna klukkan sex á morgnana til að vera með börnum. Ég er búin að passa í fjóra daga og í dag er síðasti dagurinn sem ég passa. Ég fer svo á blúshátíð á Ólafsfirði á laugardaginn. Svo var ég að taka þátt í Á allra vörum og ég og dóttir mín frumflutt- um eitt lag, það var rosalega skemmtilegt að vera með í þessum hópi. Maður getur gert svo rosalega margt bara með því að gera hlutina. Svo er ég bara rosalega svekkt yfir því að missa af umhverfistónleikunum á laugardaginn með Sigur Rós, Björk og Ólöfu Arnalds þar sem ég verð farin norður.“ Ellen Kristjánsdóttir, tónlistarkona HVAÐ BAR HÆST í Vikunni? MENNINGARVEISLA FYRIR ALLA Í SUMAR Njálusýning Kaupfélagssafn Listagallerí Föstudaginn 4. júlí kl. 18.00 Njálusúpa og erindi: Hestamennska í Njálu Opið alla daga: 9-19 l www.njala.is l njala@njala.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.