Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Qupperneq 23
DV Menning föstudagur 27. júní 2008 23
Útvarpsleik-
hús Rásar 1
Smá sögur er fyrst í röð há-
degisleikrita Útvarpsleikhúss-
ins Rásar 1 í sumar. Smá sögur
er eftir Kristínu Ómarsdóttur.
Lestnar verða tíu smá sögur eða
ein á dag frá mánudeginum 30.
júní til 11. júlí. Sögurnar verða
lesnar í hádeginu klukkan eitt.
Fjöldi leikara kemur fram í sög-
unni en hver þeirra eingöngu
í einni sögu, því hver saga er
sjálfstæð og segir frá nýjum
ævintýrum sannra Íslend-
inga. Meðal leikara eru Tinna
Hrafnsdóttir, Pálmi Gestsson og
Edda Björgvinsdóttir. Smá sög-
ur voru tilnefndar til Grímunn-
ar í ár sem Útvarpsverk ársins.
Síðar í sumar verður vasaleik-
húsið, þar sem rifjað verður
upp vasaleikhúsverk Þorvaldar
Þorsteinssonar og Dauði trúðs-
ins, nýtt sakamálaleikrit eftir
samnefndri skáldsögu Árna
Þórarinssonar.
Málverkasýn-
ing í Flatey
Jón Bogason, rannsóknar-
maður og frístundamálari, hefur
opnað málverkasýningu í Flatey
á Breiðafirði. Jón er áttatíu og
fimm ára, borinn og barnfædd-
ur í eyjunni. Myndefnið tengist
allt Flatey eða sjónum í kring því
er umhverfið alveg ólýsanlegt.
Sýningin er haldin í Samkomu-
húsi Flateyjar og er þetta í fyrsta
skiptið sem málverkasýning er
í húsinu. Sýningin var opnuð í
síðustu viku og stendur til loka
júlí.
Latínlög á
Jómfrúnni
Kvartett kontrabassaleik-
arans Tómasar R. Einarssonar
mun leika á þriðju sumartón-
leikum veitingahússins Jómfrúr-
innar við Lækjargötu á morgun,
laugardag. Auk Tómasar skipa
kvartettinn Haukur Gröndal á
saxófón og slagverk, Agnar Már
Magnússon á hljómborð og Sig-
tryggur Baldursson á slagverk.
Kvartettinn mun spila latín-
lög Tómasar R. af plötunum
Kúbönsku, Havönu og Romm
Tomm Tomm, ásamt sígrænum
djasslögum í nýjum búningi.
Tónleikarnir hefjast klukkan
þrjú og standa til klukkan fimm.
Ef veður leyfir verður spilað
utandyra á Jómfrúrtorginu. Að-
gangur er ókeypis.
Systur setja saman upp myndlistarsýningu:
Konungleg sýning
„...Og konungar hrundu úr há-
sætum sínum“ nefnist sýningin sem
verður opnuð í dag, föstudag, klukk-
an fimm í Gallerí Íbíza Bunker. Syst-
urnar og listakonurnar, Ingibjörg og
Lilja Birgisdætur, standa að sýning-
unni.
„Við erum með teikningar, vídeó,
gamlar ljósmyndir og innsetningar,“
segir Ingibjörg Birgisdóttir listamað-
ur.
Á opnuninni verða tónleikar
klukkan sex og þar mun Únettinn
Harpa leika á hörpu og setja tóninn
fyrir konunglegri sýningu í neðan-
jarðarbyrgi í Þingholtunum.
„Undirbúningurinn tók allt of
stuttan tíma, eða eina viku. Í seinni
tíð erum við byrjaðar að vinna sam-
an og það gengur alveg rosalega vel.
Þess vegna gekk þetta svona hratt
fyrir sig, því við þekkjum hvor aðra
svo vel,“ segir Ingibjörg.
Gallerí Íbíza Bunker er nýtt sýn-
ingarrými í galleríflóru Reykjavíkur
og er í Þingholtsstræti 31. Markmið
gallerísins er að sýna verk framsæk-
inna myndlistarmanna óháð aldri,
menntun og fyrri störfum. Fleiri sýn-
ingar verða haldnar í sumar og hefj-
ast þær allar klukkan fimm á föstu-
degi. „Það eru fjórar sýningar eftir í
sumar hér í Gallerí Ibíza Bunker. Við
fáum marga mjög ólíka listamenn til
að setja upp hjá okkur, því eru sýn-
ingarnar mjög fjölbreyttar, þótt þær
séu allar myndlistasýningar,“ segir
Ragnheiður Káradóttir, annar eig-
enda Gallerí Íbísa Bunker.
en hefur verið viðriðin tónlistina
alla tíð. „Hún hefur til að mynda far-
ið með pabba í nánast allar lúðra-
sveitarferðirnar. Og hún hefur haft
hellings áhrif á mig. Mamma hefur
æðislegan tónlistarsmekk og djass-
áhugi minn er mikið til kominn frá
henni,“ segir Ari. Þess má geta að
auk þess að vera trompetleikari er
faðir Ara aðstoðarskólastjóri Tón-
listarskólans á Seltjarnarnesi, en Ari
er alinn upp þar í bæ.
Ari, sem er nýorðinn nítján ára,
var í Tónlistarskóla Seltjarnarness
alla barnæskuna og fékk svo inn-
göngu í Tónlistarskóla FÍH. Þaðan
útskrifaðist hann í maí síðastliðn-
um, sá yngsti sem það hefur gert
frá upphafi. Ari tók bæði klassísk-
an trompet og djasstrompetinn og
framan af var hann samfara því í
námi við Fjölbrautaskólann við Ár-
múla. „Þetta var mjög strembið. Í
fyrra kúplaði ég mig svo út úr FÁ til
að geta einbeitt mér að FÍH því ég
var búinn að ákveða að sækja um
skóla í Bandaríkjunum,“ segir Ari.
Getur valið sér kennara
Fyrir ekki alls löngu fékk Ari svo
inngöngu í New School listaháskól-
ann í New York. Skólinn er afar virt-
ur innan tónlistarheimsins og Ari
er því eðlilega hæstánægður með
að hafa komist inn í hann. „Það eru
ekki margir trompetleikarar sem
komast þarna inn þannig að þetta er
algjör heiður. Ég var líka spenntast-
ur fyrir New School og Manhattan
School of Music, en eftir að ég fékk
jákvætt svar frá New School var mér
eiginlega slétt sama um hina,“ seg-
ir Ari en hann sótti um fjóra skóla
allt í allt, þar á meðal í Juilliard skól-
anum þekkta sem Víkingur Heiðar
Ólafsson píanóleikari stundar nú
nám við. Í inntökuprófunum þar
komst Ari í tveggja manna úrslit, en
sautján ára, svartur tropmpetleik-
ari frá Queens var að lokum tekinn
fram yfir. „Þannig að þú sérð að ég
átti eiginlega ekki séns,“ segir Ari og
hlær dátt.
Það sem Ara fannst einna efti-
sóknarverðast við New School var
að það eru engir fastráðnir kennar-
ar við hann. „Þegar þú mætir í skól-
ann segir þú bara hvaða listamanni
í New York þú ert hrifinn af og værir
til í að læra hjá, þau á skrifstofunni
hafa svo samband við viðkomandi
listamann og spyrja hvort hann væri
til í að kenna einum nemanda skól-
ans yfir veturinn. Í New York er það
svo þannig að um leið og einhver
skóli biður þig um að kenna ertu
kominn með fastar tekjur, þannig
að það segja allir já. Svo fer kennsl-
an líka fram á daginn á meðan allir
tónlistarmenn spila á kvöldin. Rétt-
ur kennari finnst mér líka skipta
öllu máli.“
Námið við New School er alldýrt
- skólagjöldin eru fjórar milljónir
króna á ári. Ari fékk hins vegar ekki
einungis inngöngu í skólann heldur
líka vænan styrk. Þá fékk hann ný-
lega styrk úr Minningarsjóði Árna
Scheving, auk þess sem námið er
lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna.
Erfitt fyrir rasskinnarnar
Hvaða kostum þarf góður tromp-
etleikari að vera gæddur? „Það er
góð spurning. Ætli hann þurfi ekki
bara að hafa nógu djöfulli stórt egó
til að nenna að standa í þessu. Þetta
er líkamlega mjög erfitt hljóðfæri og
tekur langan tíma fyrir líkamann að
ná tökum á því. Þetta eru rosalega
mikil átök, þú þarft til dæmis að
kreppa saman rasskinnarnar alveg
eins og þú getur og því meira eft-
ir því sem þú ferð hærra,“ segir Ari
og hlær.
„Svo þarftu náttúrlega að vera
með öflug lungu og þola þennan
hávaða. Ef það er trompet í gangi
fer það ekki framhjá neinum, það er
svo mikill hávaði í honum. Síðan er
stundum talað um trompetleikara-
syndrómið sem felur í sér alvarlegt
egóflipp. Ég veit að ég hef eitthvað
af því, en samt kannski ekki alveg
jafnrosalega mikið og syndrómið
segir til um,“ segir Ari og hlær dátt.
Ari hefur spilað víða undanfarna
mánuði og misseri, til að mynda
með Stórsveit Reykjavíkur og Big
Bandi Samúels Jóns Samúelssonar
(Samma í Jagúar). Í sumar er hann
svo í skapandi sumarstarfi hjá Hinu
húsinu. „Í því felst að ég spila úti um
allar trissur, og er ég þá á eins konar
listamannalaunum við að æfa mig
og spila. Ég var til dæmis að spila
til klukkan hálf tvö í gærnótt í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í gær
í tilefni af Jónsmessunótt. Svo eru
ýmis aukaverkefni sem maður tek-
ur; ég held að ég sé til að mynda að
spila í tíu brúðkaupum í sumar.“
Hrósið frá Bubba
Eitt af stærstu giggunum sem Ari
hefur troðið upp á að undanförnu
eru útgáfutónleikar Bubba Mort-
hens sem hann hélt í Borgarleik-
húsinu í byrjun júní til að fylgja eftir
útgáfu plötunnar Fjórir naglar. Eins
og þeir kannski muna sem annað-
hvort voru í salnum, eða heyrðu
tónleikana á Rás 2 17. júní, sagði
Bubbi þar að Ari væri einn af bestu
trompetleikurum þjóðarinnar. „Það
er heiður að heyra það frá Bubba,“
segir Ari bljúgur.
Þú spilar ekki á plötunni sjálfri.
Hvernig kom það til að þú spilað-
ir á tónleikunum? „Jóel Pálsson
saxófónleikari fékk giggið og hann
bara hringdi í mig og spurði hvort
ég væri laus. Sem ég var,“ útskýr-
ir Ari og bætir við að það hafi ver-
ið mjög skemmtilegt að fá að spila
á þessum tónleikum. „Ég leit bara
á þetta sem hvert annað gigg sem
þurfti að tækla prófessjonal. Maður
gerir náttúrlega ekkert upp á milli
heldur gefur alltaf allt sem maður
á. En þetta voru flottir tónleikar og
flottir tónlistarmenn sem ég var að
spila með, þannig að þetta var mjög
gaman.“
Mundi eftir leikskólastráknum
Þetta var þó ekki í fyrsta sinn sem
leiðir Ara og Bubba liggja saman því
trompetleikarinn ungi var með elsta
syni kóngsins á leikskóla. „Við fór-
um oft heim að leika saman á þeim
árum, en svo fórum við svolítið hvor
í sína áttina þegar við byrjuðum í
Mýrarhúsaskóla. Það var hins veg-
ar mjög fyndið að þegar ég labbaði
inn á fyrstu æfinguna með Bubba
þá horfði hann djúpt í augun á mér
og sagði: „Ari! Gaman að sjá þig.“ Ég
átti ekki von á því að hann myndi
þekkja mig aftur, en mér finnst það
aðdáunarvert að hann skyldi muna
eftir mér síðan á leikskóla,“ segir Ari
og brosir í kampinn.
Ari segir ekki í kortunum að hann
spili á fleiri tónleikum með Bubba á
næstunni. En ef nota á brassband
kæmi Ara ekki á óvart að hann og
Jóel yrðu fengnir í það. „Það er oft-
ast þannig - ef þú spilar einu sinni
og kannt lögin þá er yfirleitt hringt
aftur í þig,“ segir Ari.
Ari flytur út eftir tæpa tvo mán-
uði. Fram að því mun hann spila
úti um allar trissur, auk þess sem
hann fer á tíu daga námskeið í Dan-
mörku. Ari er núna á fullu að leita
sér að húsnæði í New York á netinu,
en hann hefur hingað til búið í for-
eldrahúsum. Það hlýtur því að vera
svolítið kvíðvænlegt að flytja einn út
í Stóra eplið? „Já, já, ég er tiltölu-
lega hræddur. Ég viðurkenni það
fúslega.“
kristjanh@dv.is
Menning Fólk á uppleiðUngir hönnuðir og listamenn á uppleið verður þemað um helgina í Organ-portinu í Hafnarstræti eitt til þrjú. Margar uppákomur verða um helgina, meðal annars tónleikar og tískusýning á laugardeginum sem hefst klukkan fjögur og fimm upprennandi hönnuðir sýna afrekstur sinn. Grillið verður opið báða dagana og mun Dj- Tara spila fyrir gesti á laugardeginum. Íslenskir listamenn í ChelseaNíu íslenskir listamenn opna sýningu í Chelsea í dag. Listamennirnir eru Birgir Andrésson, Hrafnhildur Arnardóttir, Ásmundur Ásmundsson, Ásdís Sif Gunnars-dóttir, Unnar Örn, Haraldur Jónsson, Ragnar Kjartansson, Katrín Sigurðardóttir og Magnús Siguraarson. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson í samstarfi með Ragnari Kjartanssyni. Sýningin nefnist It´s Not Your Fault og stendur til 8. ágúst.
MYNDLIST
Fjölbreyttar sýningar
fjórar sýningar eru eftir í
sumar í gallerí Ibiza Bunker.
Trompet-
leikari á leið á toppinn
Tekið á trompetinum „Þetta er líkamlega mjög erfitt hljóðfæri og tekur langan tíma fyrir líkamann að ná tökum á því. Þetta
eru rosalega mikil átök, þú þarft til dæmis að kreppa saman rasskinnarnar alveg eins og þú getur og því meira eftir því sem þú
ferð hærra.“ DV-MYNDir: Ásgeir