Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Page 30
„Fjölskyldan hafði enga trú á þessu
í upphafi,“ segir Emil Helgi Lárus-
son, annar stofnenda skyndibita-
keðjunnar Serrano. „Fyrstu mán-
uðirnir fóru í að sanna sig, bæði
fyrir sjálfum okkur, fjölskyldunni og
þeim sem við versluðum við. Sem
betur fer tókst það,“ segir hann.
Áður en Emil gerðist veitinga-
maður starfaði hann við útgerð
og fór á sjóinn með skólanum:
„Framan af sinnti ég þessu hvoru
tveggja en eftir að umsvifin jukust
höfum við báðir verið í fullu starfi
við Serrano, það var ekki annað
hægt enda um að gera að nýta þau
tækifæri sem manni bjóðast,“ seg-
ir Emil.
Hugmyndin kviknaði fyrir
nokkrum árum þegar hann og Ein-
ar Örn Einarsson voru á bakpoka-
ferðalagi um Suður-Ameríku. Þeim
fannst úrval skyndibita á Íslandi
dapurt og vildu geta keypt sér góð-
an, hollan og fljótlegan mat. „Til-
finning okkar var sú að markaður
væri fyrir aðra hluti en djúpsteikt-
an og fremur óhollan mat, fram-
tíðin kallaði á eitthvað nýtt því fólk
væri orðið meðvitaðra um hvað
það léti ofan í sig,“ segir Emil. Serr-
ano notar mikið af fersku hráefni
sem er unnið á hverjum stað und-
ir ströngu eftirliti. „Nafnið á staðn-
um kemur einmitt frá einni af
chili-tegundunum sem við notum
í uppskriftirnar, hún heitir serra-
no,“ segir hann.
Tilraunaeldhús
í stúdentaíbúð
„Eftir bakpokaferðalagið var
þetta í umræðunni í einhvern tíma
en svo hringdi Einar í mig og vildi
kýla á þetta svo ég sló bara til.“ Á
þeim tíma bjó Einar í Bandaríkjun-
um þar sem hann lærði hagfræði
við Northwestern University en
Emil var að ljúka námi í viðskipta-
fræði frá Háskólanum í Reykjavík.
„Einar var búinn að hugsa þetta
í langan tíma og hafði til dæmis
unnið mikið að því að þróa upp-
skriftir fyrir staðinn í litlu eldhúsi
í stúdentaíbúðinni sinni,“ segir
Emil.
„Ég vann í því að smíða fyrsta
staðinn á meðan Einar sá um
matinn, ég smakkaði hann reynd-
ar aldrei fyrr en staðurinn var
opnaður,“ segir Emil. Til að byrja
með fór salan hægt af stað en hef-
ur vaxið jafnt og þétt með árun-
um. „Við þurftum að kenna fólki
hvernig það borðar þennan mat,
það voru til dæmis ekki allir hrifn-
ir af álpappírnum í fyrstu en svo
vandist það,“ segir hann. „Það er
mjög gaman að sjá hvað kúnna-
hópurinn er dyggur, það gefur
manni líka mikið að fá viðbrögð í
tölvupósti, hvort sem þau eru góð
eða slæm, það er alltaf hægt að
gera betur,“ segir hann.
Opna stað í Svíþjóð
Sex ár eru liðin síðan þeir félag-
arnir opnuðu fyrsta Serrano-stað-
inn í Kringlunni. Núna eru staðirnir
fjórir og sá fimmti verður opnað-
ur á Bíldshöfða í júlí. Til stendur
að færa enn frekar út kvíarnar og
opna stað í Stokkhólmi í haust. Um
þessar mundir leita þeir félagarnir
að hentugu húsnæði ytra og von-
ast til að geta opnað þar í haust.
Síðustu misserin hafa þeir orðið
sér úti um fjölda markaðskannana
á Norðurlöndunum með hjálp fyr-
irtækis sem sérhæfir sig á því sviði.
Svíþjóð var vænlegasti kosturinn
og til að byrja með er stefnan sett
á að opna einn stað. „Ef það geng-
ur jafnvel og hér heima opnum við
örugglega fleiri staði í Stokkhólmi,“
segir Emil.
Nýbreytni á Bíldshöfða
Í dag er Guðni Samúelsson yf-
irkokkur á Serrano en hann var
áður yfirkokkur á Tapasbarnum.
Hann prófar sig áfram og stýr-
ir vinnunni við nýjar uppskriftir.
„Við erum með rýnihóp á tölvu-
pósti sem kemur reglulega til okk-
ar og smakkar nýja rétti, það sem
skorar best endar svo mögulega á
matseðlinum í framtíðinni,“ seg-
ir Emil. Í júlí verður fimmti stað-
urinn opnaður á Bíldshöfða. Auk
þess að bjóða upp á hefðbundinn
Serrano-mat er fyrirhugað að þar
verði morgunmatur á boðstólum.
„Það er mjög vinsælt í Bandaríkj-
unum að fá sér tortillu fyllta með
kartöflum, hrærðu eggi og salsa í
morgunmat, það er ótrúlega gott,“
segir Emil. „Þessi nýbreytni mun
þó ekki byrja fyrr en í haust, stað-
urinn mun einnig verða með bíla-
lúgu í framtíðinni og við erum
mjög spenntir að sjá hvernig það
mun ganga,“ segir hann. liljag@dv.is
föstudagur 27. júní 200830 Helgarblað DV
Í útrás með
skyndibita
Emil Helgi Lárusson og Einar Örn Einarsson byrjuðu að þróa uppskriftir í stúdentaíbúð í Bandaríkjunum.
Þeir fengu hugmyndina að hollum skyndibita á bakpokaferðalagi um Suður-Ameríku. Lilja Guðmundsdóttir
ræddi við Emil og Einar um aðdragandann að opnun Serrano og yfirvofandi útrás til Skandinavíu.
Emil Helgi Lárusson annar stofnenda
serranos á nýja staðnum í Hafnarfirði.
„einar var búinn að hugsa þetta
Í langan tÍma og hafði til dæmis
unnið mikið að þvÍ að þróa upp-
skriftir fyrir staðinn Í litlu eldhúsi
Í stúdentaÍbúðinni sinni.“
Quesadilla ristuð pön
nukaka með
grænmeti, osti og öð
ru góðgæti.
Vantar þig fjármálaráðgjöf?
Þarftu að ná áttum í peningamálunum?
lVið gerum heildar yfirlit yfir fjárhagsstöðuna
lVið semjum við kröfuhafa um gjaldfallnar skuldir
lVið aðstoðum þig við fasteignaviðskipti
lVið gerum verðmat á fasteigninni þinni
lVið bendum þér á hvar má spara og minnka útgjöld
Hringdu núna!
Það er auðveldara að taka á vandanum strax!
GH Ráðgjöf
Sóleyjargötu 17, 101 Reykjavík Sími 510-3500 og 615-1020
Guðrún Hulda Ólafsdóttir hdl
Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Geymdu þessa auglýsingu – Hún getur komið sér vel