Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Qupperneq 45
DV Helgarblað föstudagur 27. júní 2008 45
Hann þrammaði yfir Alpana með stríðsfíla sína og mætti rómverska
hernum við Cannae. Herforinginn frá Afríku hefði getað breytt gangi sögunn-
ar en honum mistókst og Rómverjar lögðu heimaborg hans, Karþagó, í eyði.
Miðjarðarhaf
Eyjahaf
adríahaf
korsíka
sardínía
sikiley
Trasímenó-
vatn 217 f.Kr.
HANNIBAL
te x ti : all an Klynne
K
a
r
ta
: sv
a
n
t
e st
r
ö
m
Karthagiskt område.
Romerskt område.
Hannibals väg till och från
Italien 219–202 f Kr.
Hasdrubals väg till Italien
och slaget vid Metaurus
208–207 f Kr.
Scipio Africanus väg till
Zama 204–202 f Kr.
Karthagisk seger.
Romersk seger.
Yfirráðasvæði Ka þagó.
Yfirráðasvæði Rómverja.
Leiðangrar Hannibals til og frá
Ítalíu, 219-20 f.Kr.
Leið Hasdrubals til Ítalíu og
orru t n við Maetaurus,
20 -207 f.Kr.
Leið Scipios Africanusar
til Zama, 204-202 f. r.
Sigrar Karþagómanna.
Sigrar Rómverja.
stjörnubjört nótt við Marm-
arahafið í núverandi Tyrklandi
183 árum f.Kr. Í húsi við strönd-
ina horfir 64 ára gamall maður
um öxl.
Hann heitir Hannibal Barca,
herforingi frá Karþagó og skelfir
Rómverja. Hann hefur verið ára-
tug í útlegð, á flótta undan óvin-
um sínum. Ef til vill verður honum
hugsað til látinna bræðra sinna
eða hann rifjar upp ótal sigra
og um leið allt sem fór úrskeið-
is. Rómverja hafði hann næstum
sigrað en þeir ríkja nú ekki bara
yfir Karþagó heldur líka yfir Spáni,
Makedóníu og hluta Litlu-Asíu.
Hann tekur hring af fingri sér
og dreypir á eitri. Í fjarska heyr-
ist hófadynur, rómversk hersveit
nálgast húsið.
Hann fæddist 247 árum f.Kr.
og var sonur eins af leiðtogum
Karþagóborgar, Hamilkars Barca.
Ásamt yngri bræðrum sínum,
Hasdrubal og Mago, átti hann eftir
að leika stórt hlutverk í valdabar-
áttu Rómverja og Karþagómanna.
Í því stríði var tekist á um yfirráðin
yfir Miðjarðarhafinu.
Faðirinn, Hamilkar, var bitur
maður. Hann hafði verið sjóliðs-
foringi í fyrsta púnverska stríð-
inu (265-241 f.Kr.) og neyðst til
að samþykkja friðarskilmála þar
sem Karþagó lét Sikiley af hendi.
Að auki mátti hann greiða him-
inháar upphæðir í stríðsskaða-
bætur. Hann varð líka að berja
niður uppreisn meðal málaliða
Karþagómanna og í kjölfar henn-
ar afhenda Rómverjum Sardiníu.
Sór Rómverjum fjandskap
Þegar Hannibal var tíu ára flutt-
ist fjölskyldan til Spánar en þar áttu
Karþagómenn verslunarnýlendur.
Á Pýreneaskaga voru líka kopar-
og silfurnámur. Hamilkar lagðist í
landvinninga til að afla fjár til frek-
ari stríðsrekstrar gegn Rómverjum.
Fræg er sagan af því þegar hann
lét Hannibal litla sverja þess eið að
„vingast aldrei við Rómverja“.
Faðirinn féll í bardaga og Hanni-
bal var valinn til að leiða baráttuna.
Þetta var 221 ári f.Kr. og hann var
26 ára. Hannibal fylgdi áætlunum
föður síns í fyrstu en eftir umsátrið
um borgina Saguntum á Spáni suð-
vestanverðum versnaði staða Kar-
þagómanna. Borgin var í viðskiptum
við Massalíu, núverandi Marseilles í
Frakklandi, en hún var aftur í félagi
við Róm. Straumhvörf urðu þegar
Saguntum féll 219 f.Kr. og Hanni-
bal fór yfir Ebrófljót á Norðaustur-
Spáni. Fljótið skipti nefnilega lönd-
um deilandi stórveldanna.
Sendiboði frá Róm krafðist skýr-
inga á framferði Karþagómanna.
Hann tilkynnti að um tvær leið-
ir væri að ræða, stríð eða frið, og
að menn yrðu að gera upp við sig
hvora leiðina þeir veldu. Þeir svör-
uðu og sögðu að hann skyldi ákveða
það. Hann valdi stríð. Hannibal
hafði með ferð sinni yfir Ebrófljót
ögrað Rómverjum en þeirra var að
lýsa yfir stríði.
Annað púnverska stríðið hófst
(218-202 f.Kr.) að frumkvæði Hanni-
bals. Hann hugðist ráðast inn í Ítalíu
og berjast við Rómverja á heima-
slóðum þeirra. Bróðir hans, Hasdru-
bal, var settur yfir Spán en Hannibal
sjálfur kallaði saman her Spánverja
og Númidíumanna frá Norður-Afr-
íku. Þeir síðasttöldu voru berbar
frá austurhluta Alsír og einstak-
ir hestamenn. Talið er að þessi her
Hannibals hafi talið 35.000-40.000
fótgönguliða, 10.000 riddara og 37
stríðsvana fíla.
Komu Rómverjum á óvart
Rómverjar vissu ekki sitt rjúk-
andi ráð. Publius Cornelius Scipio
ræðismaður fór fyrir her inn í Frakk-
land sunnanvert en fann ekki Kar-
Framhald á
næstu síðu