Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Page 48
föstudagur 27. júní 200848 Helgarblað DV
Sakamál
Í gÍslingu veitingahússeiganda
Eigandi veitingastaðar í almelo í Hollandi tók fjóra ein-
staklinga í gíslingu á mánudaginn. Ástæða gíslatök-
unnar var ágreiningur eigandans og bæjaryfirvalda
sem vildu ekki endurnýja rekstrarleyfi vertsins. Veit-
ingastaður hans er við hliðina á ráðhúsi bæjarins
og þar hélt hann til ásamt gíslunum. að sögn vitna
kveikti veitingamaðurinn í bifreið sinni og í óreiðunni
sem skapaðist við það tókst honum að brjóta sér leið
inn í ráðhúsið.m Blablablabalabalalajumsjón: KolBEinn ÞorstEinsson kolbeinn@dv.is
Fljúgandi
endurkoma
Nautabaninn Jose Tomas
er meðal þekktustu og virtustu
nautabana í heimi. Fyrir um
tveimur vikum sneri hann aft-
ur á leiksvið nautabana eftir
um sex ára fjarveru. Tomas er
þekktur sem hinn hugsandi
nautabani sem óttalaus horfist
í augu við stærstu naut sem
skipuleggjendur geta fund-
ið. En fyrr í vikunni hitti hann
ofjarl sinn og áhorfendur setti
hljóða þegar nautið náði að
krækja í annan fótlegg Tomas-
ar og senda hann í loftköstum
yfir sig.
Þegar hann örfáum andar-
tökum síðar stóð á fætur var
hann hylltur af lýðnum, en ekki
fer sögum af örlögum nautsins.
SmáStelpna-
morðinginn
Einn alræmdasti fjöldamorðingi Japans var tekinn af lífi 17. júní. tsutomu Miyazaki
var heltekinn af japönskum teiknimyndum og hlaut nafngift sem skírskotaði til jap-
anska „anime-manga“-stílsins.
Á þjóðhátíðardegi okkar Ís-
lendinga, 17. júní, var tekinn af lífi
í Japan Tsutomu Miyazaki, einn al-
ræmdasti fjöldamorðingi landsins.
Á árunum 1988 til 1989 limlesti og
myrti Miyazaki fjórar stúlkur á aldr-
inum fjögurra til sjö ára og níddist
að því loknu kynferðislega á líkum
þeirra. Auk þess drakk hann blóð
einnar stúlkunnar og át aðra hönd
hennar.
Tsutomu Miyazaki var að öllu
jöfnu dagfarsprúður maður, en þeg-
ar til kom valdi hann fórnarlömb sín
af handahófi og hrelldi fjölskyldur
þeirra. Á meðal þess sem hann gerði
var að senda fjölskyldunum bréf þar
sem hann lýsti í smáatriðum hvern-
ig hann hefði meðhöndlað fórnar-
lamb sitt.
Eitt fórnarlamba Tsutomu Mi-
yazaki var Erika Nanba og til fjöl-
skyldu hennar sendi hann póstkort.
Á póstkortinu gat að líta orðin „Er-
ika. Köld. Hósti. Háls. Hvíld. Dauði“.
Orðin voru mynduð með stöfum
sem hann hafði klippt út úr tíma-
ritum.
Lík fyrsta fórnarlambsins, Mari
Konno, lét hann rotna í hæðum fyrir
ofan heimili sitt. Síðan hjó hann af
líkinu hendur og fætur og geymdi
í skáp á heimili sínu, þar sem þau
fundust eftir að hann var handtek-
inn. Afganginn af beinagrindinni
brenndi hann og muldi í duft og
sendi til fjölskyldu hennar, ásamt
með nokkrum tönnum, myndum
af fatnaði hennar og póstkort sem
sagði: „Mari. Brennd. Bein. Rann-
saka. Sanna“.
Flýr af vettvangi og
handtekinn
Eitt áttu fjölskyldur fórnar-
lambanna sameiginlegt og það var
að allar höfðu fengið undarleg-
ar símhringingar. Þegar svarað var
var þögn á hinum enda línunnar. Ef
fjölskyldurnar svöruðu ekki hringdi
síminn frekjulega í allt að tuttugu
mínútur.
Í júlí 1989 var Tsutomu Miyazaki
truflaður við iðju sína þar sem hann
var að reyna að koma aðdráttarlinsu
upp í sköp ungrar stúlku í garði
skammt frá heimili hennar. Sá sem
stóð þar Miyazaki að verki var faðir
litlu stúlkunnar, en ódæðismannin-
um tókst að komast undan. En hann
sneri aftur á vettvang til að ná í bif-
reið sína og var undir eins handtek-
inn.
Við leit á heimili hans fann lög-
reglan gríðarmikið safn mynd-
banda, sem mörg hver innhéldu
teiknimyndaklám og „splatter“-
kvikmyndir. Í þessu safni leyndust
einnig myndbönd og ljósmyndir af
fórnarlömbum hans.
„Otaku-morðinginn“
Hann varð þekktur í Japan sem
„Otaku-morðinginn“ en það nafn
skírskotar til þeirra sem eru hel-
teknir af teiknimyndum í japönsk-
um „anime“- og „manga“-stíl. Fyrir
vikið var hann brennimerktur af al-
menningi sem „morð-njörður“ og
hefur sú nafngift verið fest á hvern
þann morðingja í Japan sem virðist
heillaður af þeim teiknimyndastíl.
Nýjasta dæmið er maðurinn sem
stakk fjölda manns til bana í Tókýó
nýverið. Ódæði Tsutomu Miyazaki
urðu föður hans um megn og hann
neitaði að greiða fyrir málsvörn son-
ar síns og framdi sjálfsmorð 1994.
Réttarhöld yfir Tsutomu Miya-
zaki hófust 1990 og hann sýndi aldrei
iðrun vegna ódæða sinna. Hann
lýsti morðunum sem „góðu verki“.
Miyazaki var hengdur ásamt tveim-
ur öðrum morðingjum sem búið
var að fella dóma yfir, en dauðarefs-
ing í Japan hefur verið undir smá-
sjá alþjóðasamfélagsins. Á næsta
ári verður réttað í morðmálum með
þátttöku kviðdóms, en þá kemur í
ljós hvort hinum venjulega Japana
hugnast að dæma glæpamenn til
dauða.
Lík fyrsta fórnarlambs-
ins, Mari Konno, lét
hann rotna í hæðum
fyrir ofan heimili sitt.
við rannsókn málsins
1989 tsutomu miyazaki
er annar frá vinstri.
Klerkastéttin í Íran fylgir eftir ströngum reglum í klæðaburði:
Herferð fylgir sumarHitum
Vestrænn klæðnaður hefur lengi verið stjórn-
völdum í Íran þyrnir í augum og nú skal enn eina
ferðina látið sverfa til stáls. Lögreglan þar í landi
hefur hleypt af stokkunum herferð gegn „samfé-
lagslegri spillingu“, sem til dæmis myndbirtist í
efnislitlum klæðnaði kvenna. Svo segir í íranska
dagblaðinu Farhang-e Ashti.
Að sögn fréttastofu Reuters er það fastur lið-
ur af hálfu klerkastjórnarinnar í Íran að reyna að
tryggja að íbúar landsins fylgi, þegar heitir sum-
armánuðir ganga í garð, grundvallarreglum ís-
lamstrúar hvað varðar klæðaburð; reglum sem
klerkastéttin setti í kjölfar byltingarinnar 1979. Til
að forðast afskipti lögreglunnar er kvenfólki ráð-
lagt að klæðast síðum og víðum klæðnaði sem
tryggir að útlínur líkamans verða ekki greindar
með góðu móti. Einnig er kvenfólki hollt og far-
sælt að hylja hár sitt.
Tilmæli stjórnvalda um klæðaburð og annað
sem tilheyrir útliti fólks taka hvort tveggja til karla
og kvenna. Í dagblaðinu Farhang-e Ashti segir að
lögreglan muni handtaka kvenfólk sem íklæðist
þröngum yfirhöfnum og stuttum buxum og karl-
menn sem skarta vestrænni hártísku verða einn-
ig handteknir.
Kvenmenn í dreifbýli í Íran, eða á jaðarsvæð-
um landsins fylgja allajafna ströngum reglum
klerkastéttarinnar hvað varðar klæðaburð, en
konur í bæjum landsins eiga það til að leyfa sér
ákveðið frelsi og kasta af sér hinum svarta kufli
og storka með því reglunum. Refsing við slíkum
brotum getur verið hýðing, sekt eða fangelsis-
vist.
Heróín í
bleiunni
Frank Keys, þrjátíu og átta
ára, hefur sennilega verið við
að gera í buxurnar, eða bleiuna,
þegar hann var stöðvaður af
lögreglunni í Flórída í Banda-
ríkjunum. Fíkniefnahundur
sem lögreglan var með fann
lykt af einhverju og krafðist það
frekari athugunar. Frank tjáði
lögreglunni að hann væri með
bleiu, en þvertók fyrir að hún
innihéldi nokkuð óvanalegt.
Lögreglan ákvað að taka
mark á hundinum og bað Frank
að leggjast á jörðina og við leit
fundust 257 grömm af heróíni í
bleiu mannsins.
Frank Keys á yfir höfði sér
fjörutíu ára fangelsi fyrir hinn
ólöglega skít.
Föstudagurinn
þrettándi
Þá hjátrú að föstudeginum
þrettánda fylgi ólukka má rekja
til 13. október ársins 1307, en
þann dag lét Filippus Frakk-
landskonungur til skarar skríða
gegn Musterisriddurunum
alræmdu. Síðan þá hefur föstu-
dagur sem ber upp á þrettánda
dag mánaðar gjarna vakið ugg
hinna hjátrúarfullu. Nú full-
yrða hollenskir tölfræðingar
að föstudagurinn þrettándi sé
öruggari en föstudagar sem ber
upp á aðra mánaðardaga.
Samkvæmt niðurstöðum
Hollendinganna er tilkynnt um
færri eldsvoða, óhöpp og inn-
brot þegar föstudag ber upp á
þann þrettánda en aðra föstu-
daga og kannski tímabært að
endurskoða hjátrúna.
Írönsk kona fær tiltal Klæðnaður íranskra
lögreglukvenna undirstrikar reglur um klæðaburð.
Otaku japanskur teiknimyndastíll sem
miyazaki hreifst af.