Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Page 50
föstudagur 27. júní 200850 Ferðir DV
Hjá sumum snýst lífið bara um ís... Aðalstræti 3 - Akureyri
Birgir Þór Halldórsson stofnaði síðuna samferda.net þar sem fólk getur fundið sér ferðafélaga til að spara
eldsneytiskostnað. Síðunni hefur verið vel tekið og skráningum hefur fjölgað mikið að undanförnu. Það
getur verið skemmtilegt að kynnast nýju fólki á ferðalagi um landið.
„Skráningum hefur fjölgað um
þriðjung að undanförnu, kannski
vita fleiri um síðuna en ætli það megi
ekki rekja margt af þessu til hækk-
andi olíu- og bensínverðs,“ segir Ís-
firðingurinn Birgir Þór Halldórsson,
stofnandi síðunnar samferda.net.
Heimasíðan er vefsíða fyrir ferða-
langa sem vilja deila bensínkostnaði
og þannig ferðast ódýrar. Notendur
hennar skrá hvert ferðinni er heitið
og hvort þeir eru að leita eftir farþeg-
um eða fari. Það eru ekki bara Íslend-
ingar sem nýta sér síðuna því upp-
lýsingarnar hafa verið þýddar bæði á
ensku og þýsku. „Það er mikil aukn-
ing á erlendum ferðamönnum sem
nota síðuna, auðvitað er það lang-
mest á sumrin en það er alltaf eitt-
hvað sem tínist inn yfir vetrartím-
ann,“ segir hann.
Birgir heldur síðunni út sjálfur og
stendur straum af þeim kostnaði sem
í hana fer. Ljósmyndirnar á síðunni
eru einnig úr hans eigin smiðju. „Ég
hitti einu sinni íslenska stelpu sem
var að segja mér frá þessari frábæru
síðu sem hún sá á netinu. Hún hafði
ferðast um allt landið á stuttum tíma
til að fylgja eftir hringferð hljómsveit-
arinnar Sigur Rósar sumarið 2006.
Hún áttaði sig ekkert á því að það
var ég sem stóð á bak við þetta,“ seg-
ir hann.
Hann stofnaði síðuna fyrir versl-
unarmannahelgina árið 2005 eftir
að hin þýska Anita Hubner kynnti
hann fyrir hugmyndinni og fékk í
lið með sér. Núna nýlega kom upp
hugmynd frá háskólanemum um að
skrá fastar ferðir til og frá skólunum
til að spara peninga. „Kannski læt
ég einhvern tímann verða af þessu,
það á bara eftir að koma í ljós,“segir
hann. Sjálfur hefur hann nokkrum
sinnum nýtt sér þjónustu annarra:
„Já, það hefur komið fyrir að ég hef
nýtt mér þetta, hef fengið fólk með
mér og þannig sparað peninga, það
getur verið mjög skemmtilegt,“ seg-
ir Birgir.
Ísland er fallegt
Það er gaman að ferðast
um ísland.
Samferða ókunnugum
um landið
taka BensÍn á BÍlinn
Það getur munað miklu að
samnýta bíla.