Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Side 56
föstudagur 27. júní 200856 Helgarblað DV
Tækni
umsjón: PÁLL sVanssOn palli@dv.is
Intel vIll ekkI vIsta Intel-fyrirtækið, helsti framleið-
andi örgjörva í heiminum og náinn samstarfsaðili Microsoft í gegnum
tíðina, hefur samkvæmt heimildum frá háttsettum starfsmanni fyrir-
tækisins ákveðið að uppfæra ekki tölvur starfsmanna sinna með nýj-
asta stýrikerfi Microsoft, Windows vista. Ákvörðunin var tekin eftir að
ljóst varð að enginn ávinningur væri af uppfærslunni fyrir starfsemi
Intel og gífurlegur kostnaður yrði henni samhliða vegna uppfærslna
á vélbúnaði til að keyra hið nýja stýrikerfi. Um áttatíu þúsund starfs-
menn Intel munu því áfram nota Windows XP stýrikerfið og aðeins
þeir sem þurfa vinnu sinnar vegna uppfæra í vista.
Manchester í Englandi var á
tímum seinni heimsstyrjaldar-
innar eitt helsta vígi nýrrar tækni,
tölvutækninnar. Við háskóla
borgarinnar voru samankomnir
vísindamenn og stærðfræðing-
ar til að skapa fyrstu stafrænu
tölvuna - Baby eða Barnið, tölvu
sem gæti leyst flókin stærðfræði-
leg verkefni á broti þess tíma sem
það tæki hóp stærðfræðinga.
Verkefnið var ekki aðeins í
þágu vísindanna, austar í Evr-
ópu starfaði hópur þýskra vís-
indamanna við sama verkefnið
því öllum var ljóst að tölvur gætu
komið að miklu gagni í stríðs-
rekstri, ekki síst vegna dulmáls-
lykla og ráðningar þeirra.
Það varð þó ekki fyrr en eftir
lok stríðsins eða árið 1948 sem
Barnið gat leyst sína fyrstu stærð-
fræðijöfnu og þá eftir nokkrar til-
raunir sem höfðu engum árangri
skilað.
Báknið
Báknið, sem frumburðurinn
var í raun og veru, vó nærri eitt
tonn, samsett úr ýmsum málm-
um, mörgum kílómetrum raf-
lagna og hundruðum lampa.
Minnið var geymt í ljósatúbu, líkri
þeim er notaðar hafa verið gegn-
um tíðina í sjónvarpsskjái, og gat
geymt 128 bæti. Afl tölvunnar var
þó minna en finnst í venjulegum
vasareikni í dag, hún gat aðeins
skilað 600-800 aðgerðum á sek-
úndu en öflugasta tölva samtím-
ans, Roadrunner frá IBM, skilar
um þúsund trilljónum aðgerða á
sekúndu. Þrátt fyrir viðmiðunina
varð Barnið algjör bylting. Flók-
in stærðfræðiverkefni, sem áður
hafði tekið margar vikur að leysa,
voru nú leyst á nokkrum mín-
útum og menn fóru að gera sér
grein fyrir að bylting væri í aðsigi,
sérstaklega í iðnaði.
Seinna þetta sama ár bættist
stærðfræðingurinn Alan Turing
í hóp vísindamannana en hann
varð heimsfrægur fyrir að ráða
dulmálslykla nasista í Bletchley
Park, hlustunar- og fjarskipta-
miðstöð breska hersins sem ein-
hverjir kannast við úr kvikmynd-
inni Enigma. Turing vann síðan
ásamt hópnum við smíði næstu
tölvu sem hlaut nafnið Mk 1 og
varð fyrsta tölvan sem hægt var
að kaupa á almennum mark-
aði og fyrirboði þess sem koma
skyldi – heimilistölvunnar.
Fyrsta stafræna
tölvan leit dagsins
ljós í skugga heims-
styrjaldarinnar
síðari. „Barnið“
eins og hún var
kölluð vó um eitt
tonn og fæðingin
gekk ekkert allt of
vel. Tæknin sem
hún byggðist á varð
hins vegar grund-
völlur byltingar í
iðnaði og upplýs-
ingatækni og ger-
breytti samfélögum
heimsins.
Vandræði
með heimsmet
Hin nýja útgáfa Firefox-vafrans frá
Mozilla olli því að netþjónar
fyrirtækisins bókstaflega lögðust
á hliðina þrátt fyrir að ætlunin hafi
verið að slá nýtt heimsmet í
niðurhali. klukkan sex 17. júní
síðastliðinn (að staðartíma
vestanhafs) var Firefox 3.0 gerður
almenningi aðgengilegur til
niðurhals en skömmu síðar hófust
vandræðin þegar milljónir manna
reyndu að nálgast vafrann. Það
var ekki fyrr en fjórum klukkutím-
um síðar sem eðlilegur hraði
komst á milli notenda og vefsíðu
Mozilla-fyrirtækisins. Þetta var
einstaklega pínlegt þar sem mikið
hafði verið haft fyrir því að
auglýsa áform fyrirtækisins um að
setja nýtt heimsmet í niðurhali frá
vefsíðunni. einhverja daga í
viðbót tekur að fara yfir tölulegar
upplýsingar og ráðfærast við
Heimsmetabók Guinness en
enginn flokkur er til eins og er sem
hæfir heimsmeti sem þessu. talið
er að um átta milljónir eintaka af
vafranum hafi verið sóttar fyrstu
24 klukkustundirnar.
ný og lauflétt ferðatölva frá toshiba kemur á markað
vestanhafs á næstunni. tölvan, sem ber nafnið
Portégé r500-s5007V, vegur aðeins um 1.100 grömm
en til viðmiðunar vegur macBook air, þynnsta
fartölvan í dag, um eitt og hálft kíló. tölvan skartar, líkt
og macBook air og thinkpad-tölvan frá Lenovo, ssd-
drifi (solid state drive) sem er 128 gígabæti og
toshiba-fyrirtækið því komið í bullandi samkeppni við
apple og Lenovo. Það vekur sérstaka athygli að
rafhlöðuending er um átta klukkutímar sem verður að
teljast þrusugott enda ætti tölvan að höfða til þeirra
efnameiri í viðskiptaheiminum sem sífellt eru á ferð
og flugi. Verðmiðinn er líka eftir því, 3000 dollarar eða
um 240 þúsund krónur vestanhafs. tölvan sem keyrir
á Intel Core 2 duo u7700-örgjörva með 1.33gHz
klukkutíðni og tveggja gígabæta vinnsluminni, kemur
með innbyggðu geisladrifi sem les og skrifar dVd og
Cd, víruðu og þráðlausu 802.11 a/g/n neti, Blátönn
2,0-stuðningi og höggvörn. palli@dv.is
Ein lauflétt fartölva frá toshibainternet fyrir alla
Áhugaverð ráðstefna var haldin á
dögunum í new York. Frammá-
menn úr ýmsum geirum samfé-
lagsins komu saman og héldu pall-
borðsumræður um ástand netsins
í Bandaríkjunum. Þjóðin sem
skapaði netið er nefnilega komin
langt á eftir öðrum þjóðum í
innleiðingu háhraðaneta eða í
fimmtánda sæti. Það þykir líka
forkastanlegt að um tuttugu
milljónir Bandaríkjamanna sem
búa í dreifbýli skuli ekkert
aðgengi hafa að háhraðanetum né
fyrirsjáanlegt að slíkt verði í
náinni framtíð.
„Barnið“
er orðið sextugt
spammari
sakfelldur
eigendur Myspace-samskiptasíð-
unnar vinsælu höfðuðu mál
nýverið gegn
einstaklingi og
fyrirtæki sem
hann starfar hjá.
scott Richter, sem
starfar hjá Media
Breakaway llC, hafði nýtt sér eig-
in aðgang og annarra á Myspace
til að senda þúsundir ruslpósta á
notendur vefsvæðisins. Póstarnir
voru allir viðskiptalegs eðlis og
auglýstu ákveðnar vörutegundir.
Dómstóll í kaliforníu tók málið
fyrir á dögunum og dæmdi
Richter og fyrirtækið til að greiða
um 480 milljónir króna í
skaðabætur auk málskostnaðar.
Dýr auglýsingaherferð það.
Portégé R500-s5007v Vegur
aðeins um 1.100 grömm.
Mk 1 Varð fyrsta tölvan
sem hægt var að kaupa
á almennum markaði.
BaRn eða BÁkn? Vó nærri
eitt tonn, samsett úr ýmsum
málmum, mörgum kílómetrum
raflagna og hundruðum lampa.