Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 59
DV Helgarblað föstudagur 27. júní 2008 59
The Bank Job
Verulega góð spennumynd, djörf reið
gegnum yfirborðskennt siðferði breskra
stjórnvalda og aðals, skítverk leyniþjón-
ustunnar og hóruhús með háttsettum.
Laxveiðar í Jemen
skemmtilestur af bestu gerð. Bók sem
flestir ættu að geta haft gaman af, ekki
bara þeir sem stunda laxveiðar eða búa
í jemen.
Hálftíminn á Rás 2
Bílalúguþáttur af bestu gerð.
mælir með...
n HróarskelduuppHitun á Organ
Hljómsveitirnar Bloodgroup og dikta ætla að hita
aðeins upp fyrir Hróarskelduna með heljarinnar partíi
á Organ. Plötusnúðarnir andrea jóns og Matti ætla
svo að spila tónlist sem kemur öllum í réttan
Hróarskeldufíling. Bloodgroup spilar sem kunnugt er á
hátíðinni í ár og því ekki leiðinlegt að ná að hita aðeins
upp með sveitinni áður en stóra stundin rennur upp.
að- gangseyrir er þúsund krónur.
n Carl Craig á tunglinu
guðfaðir detroit House-teknósins er loksins
mættur á Klakann og ætlar að spila á Party
Zone-kvöldi á tunglinu í kvöld. Miðaverð á
tónleikana er 1.900 krónur inni á midi.is og
verður húsið opnað klukkan ellefu. Craig
hefur verið gríðarlega vinsæll í danstónlistar-
geiranum síðastliðin 20 ár og er ennþá alveg
eiturferskur.
n Brynjar Már Og rikki g
á sólOn
Það er enginn annar en partídýrið og nánast
heimsfrægi ofurpopparinn BMV sem þeytir skífum
á sólon í kvöld. Hann verður þó ekki einn á ferð
heldur ætlar hans hægri hönd, rikki g, að vera
honum innan vinstri handar og skipta þeir félagar
hæðunum á milli sín líkt og enginn sé morgundag-
urinn.
n Opið svið á Q-Bar
Þetta er þitt tækifæri til að verða stjarna
kvöldsins því það er allt leyfilegt á sviðinu á Q-bar í
kvöld, innan skynsamlegra marka þó. Ekki nóg með
það heldur færðu frían bjór á barnum með því
skilyrði að skila inn fimm tómum bjórglösum. Það er
fátt betra en að leyfa frægðarstjörnunni sinni að skína
eitt kvöld. Þú þarft ekki einu sinni að hafa hæfileika,
bara að vera hress og þora!
n kraftwerk Orange á Organ
stuðkompaníið Kraftwerk Orange ætlar að
bjóða í frítt partí á Organ eftir náttúrutón-
leikana í Laugardalnum. Hafðu það
huggulegt í góða veðrinu, röltu niður á
Organ og haltu áfram að skemmta þér eftir að
Björk, sigur rós og Ólöf arnalds hafa lokið sér
af. Það er staðfest að þú átt
ekki eftir að geta annað en reim-
að á þig dansskóna þegar þú mætir í partíið.
n sálin í sjallanuM
sálin hans jóns míns óskar öllum gleðilegs
sálarsumars og heldur uppi stuðinu á dansgólfinu í
sjallanum á laugardagskvöldið. aldurstakmark er
18 ár og forsala er hafin í gaLLErí ráðhústorgi og
IMPErIaL glerártorgi. akureyringar og ferðalangar
staddir í bænum ættu ekki að sleppa þessu
tækifæri til að njóta sumarsins og
sletta úr klaufunum í þessu sögufræga húsi.
n silent rivers Með útgáfutónleika á
ClassiC rOCk
rokkhljómsveitin silent rivers heldur
útgáfutónleika á Classic rock í Ármúlanum á
laugardagskvöldið. nýja platan ber sama nafn og
hljómsveitin, en hún spilar tónlist undir áhrifum
frá hljómsveitum eins og Iron Maiden, Kiss og
Megadeth. Þorgils Óttar Vilberg Baldursson er söngvari
sveitarinnar. aðgangseyrir er 500 krónur og það er kaldur í
krönunum.
n grillveisla Og wHite trasH á prikinu
Á laugardagskvöldið slær Prikið upp grillveislu í tilefni þess að úrslit í
götulistakeppni verða tilkynnt á staðnum. Vinningshafinn fær að skreyta
portið bak við Prikið og þannig skapa fallegt umhverfi í reykaðstöðunni. auk
þess verður White trash-kvöld sem þýðir að það verður frír drykkur á
barnum milli níu og tólf fyrir þá sem skarta veglegum mottum og flagga
pickup-línum. danni d sér svo um að skemmta okkur hinum.
föstudagur laugardagur
Hvaðeraðgerast
HHHHH
HHHHH
HHHHH