Fréttatíminn - 02.04.2015, Side 8
V ið hjá lögreglunni á höfuð-borgarsvæðinu höfum úthlutað tveimur neyð-
arhnöppum til þolenda heimlisof-
beldis. Þegar ég var hjá lögreglunni
á Suðurnesjum höfðum við úthlut-
að þremur neyðarhnöppum,“ seg-
ir Alda Hrönn Jóhannesdóttir, að-
stoðarlögreglustjóri lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu. Alda sér
um innleiðingu á nýjum verklags-
reglum um meðferð og skráningu
heimilisofbeldismála sem tóku gildi
í lok síðasta árs hjá ríkislögreglu-
stjóra. Hún var yfirlögfræðingur hjá
embætti lögreglustjórans á Suður-
nesjum til nóvember 2014 en hún
tók við sem aðstoðarlögreglustjóri
á höfuðborgarsvæðinu í október og
starfaði því tímabundið hjá báðum
embættum. Alda starfaði því á Suð-
urnesjum þegar átak gegn heimil-
isofbeldi hófst þar í ársbyrjun 2013
og hefur síðan orðið þar gríðarleg
fjölgun sakfellinga hjá Héraðsdómi
Reykjaness í heimilisofbeldismál-
um. Þá hefur fjöldi heimilisofbeldis-
mála hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu tvöfaldast eftir að sérstakt
átak hófst þar gegn heimilisofbeldi.
Alda telur af og frá að þetta bendi til
þess að heimilisofbeldi sé að aukast
heldur séu málin betur skráð hjá
lögreglu og fleiri mál sem eru til-
kynnt til lögreglu.
Þyngsti dómurinn 2 ár
Alda segir að einn mælikvarði á
það hvernig tekist hefur til í átaki
gegn heimilisofbeldi sé fjöldi sak-
fellinga. Þegar litið er til Suður-
nesja sést gríðarlegur munur á því
hvernig dómarnir hafa þróast þar
síðustu ár. Þrjú heimilisofbeldismál
komu til kasta dómstóla árið 2011
og aftur 2012, og er einn sýknudóm-
ur á hvoru ári. Enginn sýknudómur
hefur hins vegar fallið í heimilisof-
beldismáli á Suðurnesjum síðan en
málafjöldi hefur margfaldast hjá
héraðsdómi Reykjaness eins og sést
í meðfylgjandi töflu. Þyngsti dómur-
inn er 2 ára fangelsi en algengast er
að um nokkurra mánaða skilorðs-
bundna dóma sé að ræða.
Fyrsti neyðarhnappurinn var tek-
inn í notkun á Suðurnesjum sum-
arið 2014. Lögregla getur látið
þolanda heimilisofbeldis fá slíkan
hnapp ef það er metið svo að „þol-
andi sé í mjög viðkvæmri stöðu
gagnvart geranda,“ eins og segir í
verklagsreglum. Þá er málið metið
mjög alvarlegt, nálgunarbanni hef-
ur verið beitt, geranda vísað brott af
heimilinu og/eða brot eru ítrekuð.
Neyðarhnappurinn er tengdur ör-
yggismiðstöð og er Neyðarlínunni
og Fjarskiptamiðstöð ríkislögregl-
stjóra gert viðvart ef ýtt er á hnapp-
inn. „Það þarf að vera mikil hætta
til staðar og að við metum sem svo
að öryggi viðkomandi sé ógnað
en við getum ekki tryggt það með
vægari hætti. Að hluta til er þetta
íþyngjandi fyrir þolanda því stað-
setning hans er alltaf skráð í gegn
um GPS-tækni þannig að brotaþoli
þarf að vilja þetta sjálfur. Þetta er
tæki sem kostar sitt og það þarf að
hlaða hann þannig að það eru að-
eins ábyrgir aðilar sem geta fengið
hann,“ segir Alda.
Enn með neyðarhnappinn
Sá lögreglumaður sem er ábyrgur
fyrir hverju heimilisofbeldismáli
vinnur áhættumat málsins með því
að fylla út áhættumatseyðublað fyr-
ir ofbeldi í nánum samböndum sem
kallast B-SAFER. Slíkt mat er nauð-
synlegt að hafa til að meta hættu á
ítrekun og gott að hafa til hliðsjónar
áður en tekin er ákvörðun um inn-
grip. Hættumat er síðan í sífelldri
endurskoðun eftir því sem mál þró-
ast. Í síðustu viku var hér á landi
einn helsti sérfræðingur Noregs
í heimilisofbeldismálum, Camilla
Grimsæth aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í Noregi, sem þjálfaði íslenska
lögreglumenn í notkun áhættu-
matsins. „Hún benti á að þegar
manndráp er framið þá er allt lagt
í að rannsaka það, sama hvað rann-
sóknaraðferðin kostar. Það sem lög-
reglan þarf að gera er að leggja allt
í að rannsaka þau heimilisofbeldis-
mál sem fá hátt hættumat áður en
manndráp er framið,“ segir hún en
töluverð fylgni er milli manndráps-
mála og ofbeldis í nánum sambönd-
um bæði á Íslandi og hinum Norður-
löndunum. .
Tveir af þeim þremur neyðar-
hnöppum sem var úthlutað á Suður-
nesjum hafa verið teknir til baka,
annar þeirra var í notkun í 8 mánuði
en hinn í 5 mánuði. Sá þriðji er enn
í notkun, sem og þeir tveir sem lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu hefur
úthlutað. „Við höfum heyrt að þess-
ir hnappar veiti fólki mikla öryggis-
tilfinningu,“ segir Alda en um
er að ræða fimm konur sem
hafa fengið hnappana. Ekki
er nauðsynlegt að sakamál
sé í gangi fyrir dómstólum
til að hnappi sé úthlutað,
hættumat lögreglu nægir. Í
því máli á Suðurnesjum sem
hnappur er enn í notkun er
Heimilisofbeldismál
hjá héraðsdómi
Reykjaness
eftir árum
2011
30 daga skilorðsbundið fangelsi,
Ákvörðun refsingar frestað í 2 ár
Sýknudómur
2012
Sýknudómur
9 mánaða skilorðsbundið fangelsi
4 mánaða skilorðsbundið fangelsi
2013
10 mánaða skilorðsbundið fangelsi
2 ára fangelsi og bótagreiðsla.
Dómur staðfestur í Hæstarétti
4 mánaða skilorðsbundi fangelsi
3 mánaða skilorðsbundið fangelsi
12 mánaða fangelsi + bótagreiðsla.
Áfrýjað til Hæstaréttar
2014
2 mánaða skilorðsbundið fangelsi
2 mánaða skilorðsbundið fangelsi
4 mánaða skilorðsbundið fangelsi +
bótagreiðsla
4 mánaða skilorðsbundið fangelsi
6 mánaða skilorðsbundið fangelsi
4 mánaða skilorðsbundið fangelsi
4 mánaða fangelsi, þar af 3 mánuðir
skilorðsbundnir + bótagreiðsla
30 daga skilorðsbundið fangelsi
Fimm fengið neyðarhnapp
vegna heimilisofbeldis
Yfir 100 heimilisofbeldismál hafa verið tilkynnt til lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu frá því sérstakt átak hófst í ársbyrjun.
Tveimur neyðarhnöppum til þolenda heimilisofbeldis hefur
verið úthlutað á höfuðborgarsvæðinu en áður hafði lögreglan á
Suðurnesjum úthlutað þremur slíkum hnöppum. Frá árinu 2011
hafa 17 sakfellingardómar fallið í heimilisofbeldismálum, átta af
þeim eru vegna mála sem komu til kasta Héraðsdóms Reykja-
ness á síðasta ári.
um að ræða konu sem enn hefur
hnappinn eftir að ofbeldismaður-
inn var dæmdur í fangelsi en bíður
þess að hefja afplánun.
Gríðarleg fjölgun hefur orðið á
fjölda mála hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu eftir að þar hófst
átak gegn heimilisofbeldi í árs-
byrjun í samstarfi við velferðar-
svið Reykjavíkurborgar og Barna-
vernd. Alda segir að eitt af því sem
bætt hefur verið í verklagi lögreglu
sé betri skráning heimilisofbeldis-
mála. Verið er að ljúka nákvæmri
samantekt á fjölda mála sem tilkynnt
voru til lögreglu frá 12. janúar til 12.
mars en Alda segir að þau séu yfir
eitt hundrað. Áður hafi að meðaltali
um 20 heimilisofbeldismál verið
tilkynnt í hverjum mánuði. „Þessi
aukni fjöldi tilkynninga er vonandi
merki um að fleiri treysti sér til að
leita til lögreglu,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Lögreglan þarf að leggja
allt í að rannsaka þau
heimilisofbeldismál sem
fá hátt hættumat áður
en manndráp er framið
Alda Hrönn Jóhannes-
dóttir, aðstoðar-
lögreglustjóri
lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu,
segir gríðarlega
aukningu á fjölda
heimilisofbeldis-
mála sem tilkynnt
eru til lögreglu
vonandi vera
til marks um að
þolendur treysti því
nú betur að lögreglan
komi til bjargar. Ljós-
mynd/Hari
8 fréttaúttekt Helgin 2.-5. apríl 2015
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
67
62
8
Barcelona
1. maí í 4 nætur
Frá kr. 82.900
Hotel Atiram
Frábært verð
Frá kr. 99.900
Netverð á mann frá
kr. 99.900 m.v. 2 í
herbergi m/morgunmat.
Abba Balmoral
Frábært verð
Frá kr. 94.900
Netverð á mann frá
kr. 94.900 m.v. 2 í
herbergi m/morgunmat.
Hotel Derby
Frábært verð
Frá kr. 84.900
Netverð á mann frá
kr. 84.900 m.v. 2 í
herbergi m/morgunmat.
Hotel Salles Pere
Frábært verð
Frá kr. 82.900
Netverð á mann frá
kr. 82.900 m.v. 2 í
herbergi m/morgunmat.
Í Barcelona er auðvelt að njóta sín enda iðar þessi
einstaka borg af lífi! Borgin býður bókstaflega upp á
allt sem hugurinn girnist en Barcelona er stórkostleg
menningarborg þar sem listasöfn Miró og Picasso
ber hæst. Þá fanga byggingar borgarinnar athygl-
ina á hverju götuhorni og gamli hluti borgarinnar,
Barrio Gotico, þar sem fyrstu byggingarnar risu á
13. öld, er einstakur. Römbluna, með sínu lífi og fjöri,
þekkja allir en finna má allskonar veitingastaði, kaffi-
hús og bari eftir endilangri götunni. Ekki má heldur
gleyma ströndinni og ólympíuþorpinu sem hafa líka
sitt aðdráttarafl. Þá er matur og drykkur hér í hæsta
gæðaflokki og tapas-menningin er einstök. Hægt
er að finna verslanir og verslunarmiðstöðvar um alla
borgina sem gerir hana að einstakri verslunarborg.
49.900
Flugsæti frá kr.