Fréttatíminn - 02.04.2015, Side 16
dóttir og Margrét Helga Erlings-
dóttir sem starfa innan lista- og
hugsjónahópsins Barnings sem
síðustu ár hefur unnið að velferðar-
og jafnréttismálum, en þær til að
mynda stofnuðu Facebook-hópinn
„Kynlegar athugasemdir“ þar sem
kynjamisrétti í samfélaginu var rætt
opinskátt.
Sá sem áreitti fékk fría pulsu
„Ljóst er að kynferðislegt áreiti í
garð starfskvenna í þjónustugeiran-
um er landlægt vandamál sem þarf
að taka á,“ segir Elín. „Það er hvorki
viðunandi að fjöldi sagna sé virtur
að vettugi né að hver saga sé af-
greidd sem hending. Vandamálið er
stórt og það er kerfisbundið,“ segir
hún. Þær stofnuðu hópinn „Kyn-
legar athugasemdir“ fyrir tæpu ári
þegar Elín hafði verið að vinna á
kaffihúsi og ofbauð sú áreitni sem
hún varð fyrir í starfi sínu. „Fyrst
hafði ég sagt vinkonum mínum frá
þessu og þá kom í ljós að þær höfðu
allar svipaða sögu að segja. Það
virðist vera sama hvar ber niður, ef
um er að ræða unga stúlku þá hef-
ur hún reynslusögu um kynferðis-
lega áreitni,“ segir Elín. Þótt ekki
hafi verið lagt sérstaklega upp með
það safnaðist mikill fjöldi af
slíkum reynslusög-
um saman í Kyn-
leg um athuga -
semdum. Þær Elín
og Margrét munu
vitna í þessar sögur
í erindi sínu og brot
af þeim er að finna
hér þessari blaðsíðu.
„Vinir mínir,
strákar, hafa
komið til mín
eftir að þess-
ar sögur fóru
að birtast og
sögu að þeir
hefðu hrein-
lega bara ekki
áttað sig á því
hvað ójafnréttið
birtist víða,“ segir
hún. Elín rifjar upp
sögu af stúlku sem vann á bensín-
stöð og neitaði að afgreiða fasta-
kúnna eftir að hann hafði ítrekað
áreitt hana. „Viðbrögð yfirmannsins
voru þau að segja að hún gæti ekki
valið sér viðskiptavini, og gaf mann-
inum síðan fría pulsu og kók því
stelpan vildi ekki afgreiða hann,“
segir Elín.
Fréttatíminn sagði frá því í síð-
ustu viku að árlega bærust að með-
altali fimm tilkynningar til stærsta
stéttarfélags landsins, VR, vegna
kynferðislegrar áreitni á vinnustað.
Elín segir greinilegt að stúlkur og
konur veigri sér við að fara áfram
með þessi mál. „Þegar stelpur reyna
að segja frá áreitni er þeim gjarnan
sagt að taka þessu bara sem hrósi.
Áreiti er aldrei hrós. Áreiti er alltaf
áreiti,“ segir hún.
Í lögum um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustöðum er
ekki minnst einu orði á kynferðis-
lega áreitni. Þar er heldur ekki
sagt til um hvernig bregðast skuli
við þegar upp koma atvik þar sem
kúnni sýnir af sér lítillækkandi
hegðun í garð starfsfólks. Í núver-
andi reglugerð um aðgerðir gegn
einelti á vinnustað eru engin úrræði
sem snúa að samskiptum við við-
skiptavini, aðeins er fjallað um sam-
skipti starfsmanna á milli.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Starfsfólk í
þjónustustörfum
mikið áreitt
kynferðislega
Fyrsta íslenska rannsóknin á kynferðislegri áreitni á
vinnustað stendur yfir en niðurstöður hennar verða kynntar
á samnorrænni ráðstefnu sem haldin verður á Íslandi í
sumar. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir
ungt og reynslulítið fólk á vinnumarkaði berskjaldaðra fyrir
áreitni. Í lögum um öryggi á vinnustöðum er hvergi minnst
á kynferðislega áreitni. Ungum stúlkum er jafnvel sagt að
taka því sem hrósi þegar þær eru áreittar kynferðislega.
V ið þurfum að setja spurn-ingamerki við möntruna um að „kúnninn hefur alltaf rétt
fyrir sér“ þegar viðskiptavinir eru
farnir að áreita kynferðislega starfs-
fólk í þjónustustörfum,“ segir Drífa
Snædal, framkvæmdastjóri Starfs-
greinasambandsins. „Oft er þetta
ungt starfsfólk sem er reynslulítið
á vinnumarkaði og er því berskjald-
aðra gagnvart þessu áreiti,“ segir
hún.
Fyrsta íslenska rannsóknin
Starfsgreinasambandið, í samstarfi
við starfsgreinasamtök frá Noregi,
Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi,
standa fyrir samnorrænni ráðstefnu
sem haldin verður á Íslandi þann 8.
júní um kynferðislega áreitni í garð
starfsfólks í framleiðslu- og þjón-
ustustörfum. Ráðstefnan er fjár-
mögnuð af NIKK, Norræna upplýs-
ingasetrinu um kynjafræði, og fékk
Starfsgreinasambandið 3,5 milljóna
króna styrk þaðan til að halda ráð-
stefnuna.
Nú stendur yfir fyrsta rannsókn
sinnar tegundar á Íslandi á kynferð-
islegri áreitni á vinnustöðum en hún
er á höndum Félagsvísindastofn-
unar og Rannsóknastofnun í jafn-
réttisfræðum við Háskóla Íslands og
verða niðurstöður hennar kynntar
á ráðstefnunni, auk annarra nor-
rænna rannsókna.
Eygló Harðardóttir félagsmála-
ráðherra setur ráðstefnuna en þar
verða fjöldi fyrirlesara. Þeirra á
meðal eru þær Elín Inga Braga-
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
Reynslusögur úr íslenskum
veruleika sem birtust upphaflega
á Kynlegum athugasemdum
Margrét Helga
Steindórsdóttir
Ég lenti í því að það kom rígfull-
orðinn maður í sjoppuna þar sem ég
var að vinna og bað um sjeik. Hann
borgar sjeikinn og ég þarf að snúa
mér við til að hræra hann. Þegar
hann er tilbúinn sný ég mér við
brosandi og ætla að rétta honum
sjeikinn þegar hann segir: „Ég keypti
þennan sjeik bara svo ég gæti horft
á rassinn á þér“ og blikkar mig.
Katrín Þöll
Ingólfsdóttir Gallo
„Já, þú mátt setja kortið hér í bara.“
Glott. „Hvar má ég stinga því/
honum inn segirðu?“
Vinnandi í þjónustustarfi á kvöldin
er ég hreinlega löngu búin að missa
tölu á því hversu oft ég fæ þetta
svar þegar kemur að því að nota
posann, karlar úr flest öllum stigum
samfélagsins. Einn þeirra fór þá
leið að setja það í og úr posanum til
skiptis með tilheyrandi stunum.“
María
Kristjánsdóttir
„Taktu nú símann þinn úr rassvas-
anum, rassinn þinn er ekki flottur
ef þú ert með síma í vasanum ...
og snúðu þér svo í hring.“ K.k. við-
skiptavinur við mig þegar ég var að
vinna á bar í vetur.
Hertha Maria
Richardt
Úlfarsdóttir
Ég vann á kaffihúsi/bar þar sem
eigendurnir voru tveir. Annar þeirra
var giftur en gat samt séð sér færi á
því að áreita mig, til dæmis með því
að læðast upp að mér þegar ég var
við barinn og þrýsta sér upp að mér
og hálf riðlast á mér.
Nína Hjálmarsdóttir
Síðasta sumar var ég að vinna
á hóteli úti á landi og oft héngu
rútubílstjórar á barnum þegar ég
var að loka honum. Eitt sinn var
ég óþreyjufull að klára svo ég segi
einum að honum sé velkomið að
taka bjórinn með sér upp á her-
bergi. Hann: „Get ég ekki pantað þig
líka með mér upp á herbergi, svona
sæta og girnilega?“
Drífa Snædal, framkvæmda-
stjóri Starfsgreinasam-
bandsins, segir mikla
umræðu hafa átt
sér stað um innan
verkalýðshreyfinga
á Norðurlöndum
um öryggi
starfsfólks í
þjónustustörfum
eftir að Dominic
Strass-Kahn
var handtekinn
eftir að hafa nauðgað
herbergisþernu á hóteli.
Mynd/Hari
Merki ráðstefnunnar sem haldin verður 8. júní í Reykjavík.
Elín Inga Bragadóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir stofnuðu Kynlegar athuga-
semdir á sínum tíma og verða með erindi um öryggi kvenna í þjónustustörfum á
ráðstefnunni í sumar.
16 fréttaskýring Helgin 2.-5. apríl 2015