Fréttatíminn - 02.04.2015, Síða 38
H önnunarfyrirtækið Svein-björg hefur verið starfandi í átta ár og selur vörur sínar
um land allt sem og í Noregi, Dan-
mörku, Svíþjóð og Frakklandi. Aðal-
áherslur eru á gæði og notagildi á
hagstæðu verði og selur fyrirtæk-
ið meðal annars hitaeinangrandi
krúsir, svokallaðar thermo krúsir,
með loki og thermo bolla sem hafa
verið afar vinsælar vörur um ára-
bil. Reikna má að tíundi hver Íslend-
ingur eigi thermo krús eða bolla frá
Sveinbjörgu sem er afar skemmtileg
nálgun á fjölda seldra krúsa og bolla
á undanförnum árum, eða síðan þær
vörur komu á markað fyrir um fjór-
um árum síðan.
Mismunandi litir og mynstur
„Við skiptum um liti í mynstrum og
uppröðun á thermo krúsunum og
bollunum með reglulegu millibili sem
frískar upp vöruna og gefur henni
nýjan blæ. Sumir kaupa því fleiri en
eina og eiga því sína krús í vinnu,
bolla heima og jafnvel enn aðra bolla
eða krúsir í bústaðnum,“ segir Fjóla
Karlsdóttir, fjármálastjóri hjá Svein-
björgu. „Við leggjum mikið upp úr að
koma með vöru á markað sem hefur
gott notagildi og hafa thermo krús-
irnar og bollarnir hitt beint í mark,
bæði hér heima og erlendis.“
Nýjungar á væntanlegar með
vorinu
Vöruúrvalið hjá Sveinbjörgu er
mjög breitt, alls eru um 120 vöru-
númer á skrá hjá fyrirtækinu, og í
vor og sumar mun úrvalið aukast
enn frekar þar sem margar nýj-
ungar eru væntanlega á markað.
„Við erum að bæta við á bilinu 30-
40 nýjum vörum á næstu sex mán-
uðum og verður afar spennandi að
sjá viðbrögðin við þeim. Við erum
ekki enn farin að segja frá hvaða
nýjungar þetta eru en það stytt-
ist í að við afhjúpum sýniseintök
og sýnum hvað koma skal,“ segir
Fjóla. Það eru því afar spennandi
tímar framundan hjá Sveinbjörgu,
en fyrirtækið er ekki aðeins að
auka umfang sitt á heimamark-
aði heldur erlendis líka. „Þó ber
að vera varkár því miklum vexti
geta fylgt ýmsir erfiðleikar svo
við reynum að haga seglum eftir
vindi af skynsemi. Við erum fyrst
og fremst íslenskt fyrirtæki, byggt
upp af íslenskri hönnun og hug-
sjón eiganda og eigum íslensku
þjóðinni okkar velgengni fyrst og
fremst að þakka. Við stígum því
varlega til jarðar er varðar inn-
göngu á erlenda markaði, en vissu-
lega er framtíðin björt og við erum
afskaplega glöð með það,“ segir
Fjóla að lokum.
Unnið í samstarfi við
Sveinbjörgu
heimili & hönnun Helgin 2.-5. apríl 201538
Thermo bollarnir frá Sveinbjörgu hafa notið mikilla vinsælda og hefur hönnunar-
teymið verið iðið við að koma með nýja liti og mynstur á markað sem fríska upp á
bollana.
Tíundi hver Íslendingur
á thermo krús eða bolla
frá Sveinbjörgu
Hágæða hnífapör
Hnífapör frá Hardanger Bestikk.
Hágæða norskt ryðfrítt stál.
Sett með 53 stykkjum á 42.900 kr.
Amira
Ármúla 23
S:553-0605
Flott norsk hönnun
Kökuspaði og hnífur frá Har-
danger Bestikk.
Hágæða norskt ryðfrítt stál.
Verð: 8.800 kr. settið
Amira
Ármúla 23
S:553-0605
Borðbúnaður
við öll tækifæri
Handunnin
kólumbískur leir
Keramík borðbúnaður unninn úr
svörtum leir.
Sanngirnisvottaðar vörur í miklu úrvali.
Heimahúsið
Ármúla 8
S: 568-4242
kolaportið
Kolaportið er opið
skírdag, laugardag
og annan í páskum
frá kl. 11 - 17.
Á annan í páskum munum
við gefa börnunum ís í
tilefni 26 ára afmælis
Kolaportsins.