Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.04.2015, Síða 41

Fréttatíminn - 02.04.2015, Síða 41
EITT ER VÍST: ALNO Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is Sófinn Azul er hannaður af Kristínu Sigurðardóttur innanhúshönnuði fyrir Hönnunarmars. Hann breytist í svefnsófa þegar púðarnir eru teknir frá. Sófaborðið er hannað í stíl. Framsækið alíslenskt hönnunarfyrirtæki H önnunarhúsið Prologus er hugarfóstur Guðmundar Einarssonar sem var lærð- ur iðnhönnuður frá Mílanó. Eftir að Guðmundur féll frá tók eiginkona hans, Fríða Björk Einarsdóttir, við rekstrinum. Til að byrja með sinnti hún fyrirtækinu á kvöldin og um helgar en fyrir tveimur árum lét hún af störfum í fjármálaráðuneytinu og tók alfarið við rekstri Prologus. Prologus hefur sérhæft sig á sviði húsgagna- og innanhúshönnunar, vöruþróunar og framleiðslu á hús- gögnum og fylgihlutum fyrir fyrir- tæki, stofnanir og heimili í 18 ár. „Í dag bjóðum við upp á fjölbreytt úr- val húsgagna og fylgihluta, meðal annars stóla, sófa, ræðupúlt, úti- húsgögn, bæklingastanda og skrif- stofuhúsgögn auk þess að bjóða upp á sérhannaðar lausnir,“ segir Fríða Björk. Meðal verkefna sem Prologus hefur tekið að sér má nefna veitinga- staðinn Smurstöðina í Hörpunni og menningarhúsið Hof á Akureyri. Fríða Björk segir að kjöraðstæð- ur séu á Íslandi fyrir hönnunarfyr- irtæki vegna staðsetningar sinnar, fjölda góðra handverksmanna, ná- lægðar milli manna og trausts og vilja til að vinna saman. „Við fram- leiðum allar okkar vörur innanlands og yfirleitt koma fjórir til fimm aðilar að því að framleiða hvern hlut sem er hannaður. Við leitumst eftir því að fá hvern fagaðila sem bestur er á sínu sviði til að sjá um hvert stykki.“ Prologus hefur einnig tekið þátt í ýmsum skemmtilegum hönnunar- viðburðum og sýndu til að mynda á Hönnunarmars 2014 ásamt íslensk- um húsgagnaframleiðendum sem tóku sig saman og sýndu húsgögn. heimili & hönnunHelgin 11.-13. október 2013 41 Leður og marmari Breska hönnunarfyrirtækið Noble & Wood hanna blaðagrindina Hnakkur eða Saddle. Fyrirtækið leggur mikið upp úr handverki, sígildu útliti og hágæða efnivið. Noble & Wood vildu hanna falleg- an hlut þar sem leður og marmari fengu að njóta sín saman, en grind- in er úr leðri, marmara og valhnetu. Mikið var lagt upp úr því að ekki sæist í neinar festingar og því var útkoman sú að handsaumaður leð- urpoki með vösum er lagður yfir marmarakubb, eins og hnakkur. Falleg íslensk hönnun Fallegu Thermo bollarnir frá Svein- björgu eru fullkomnir fyrir kaffi eða te. Tveir bollar saman í kassa, halda vel heitu og hitna ekki í gegn. Fást í hönnunarverslunum um land allt, m.a. hjá Dúku, Kraum, Epal, Eymunds- son á Laugavegi, Akureyri og Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Garðheimum. Sjá nánar sölustaði, heildarvöruúrval og vefverslun á www.sveinbjorg.is aGROOVE - tímalaus dönsk hönnun sem hljómar vel Fallegur og nettur hátalari með frá- bærum hljómi sem hægt er að nota hvar sem er Gæddur nýjustu gerð af rafhlöðu sem endist 24 tíma Tímalaus dönsk hönnun í bestu fáan- legum gæðum Bluetooth 3.0 og EDR + CSR Fakó verzlun Laugavegi 37 S: 568 0707 fako.is

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.