Fréttatíminn - 02.04.2015, Page 42
42 bílar Helgin 2.-5. apríl 2015
ReynsluakstuR BMW X5
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er
verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn
í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
Verð í tveggja manna herbergi
kr. 98.900,-
Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat,
íslensk fararstjórn og rúta til og frá flugvelli.
Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda.
Upplýsingar í síma 588 8900
Úrval veitingahúsa, verslana (m.a. H&M)
og kafhúsa.
Næturlíf eins og það gerist best.
Riga
Lettlandi
Stórfengleg borg
Beint ug frá Keflavík og Akureyri
14.-17. maí
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
s ólin skein þegar ég sótti nýjan BMW X5 til reynsluaksturs og eftir að hafa ekið frá Sævar-
höfða og niður í bæ hreinlega stóðst
ég ekki freistinguna að keyra niður
Laugaveginn í góða veðrinu og horfa
á bílinn, og mig við stýrið, speglast
í búðargluggunum. Því miður sá ég
engan sem ég þekkti en þegar ég loks
mætti renndi aftur í hlað fyrir utan
skrifstofu Fréttatímans var þar sam-
starfsmaður minn á útleið sem hafði
á orði: „Þú ert eins og fín frú úr Ár-
bænum.“ Hvað sem Árbænum líður þá
sómdi bíllinn sér vel fyrir utan heima
hjá mér í Vesturbænum um kvöldið.
BMW X5 er jeppi – lúxusjeppi, það
er nánast fáránlega gott að keyra
hann og fann ekki fyrir því þegar ég
keyrði yfir allar holurnar í malbikinu
á götum borgarinnar. Satt að segja
var það afar notalegt að fjaðra létt yfir
holur sem dagsdaglega hafa valdið
mér miklum óþægindum. Og gera nú
aftur þegar ég er búin að skila BMW-
inum.
Þar sem ég er ekki há í loftinu kann
ég alltaf sérstaklega vel að meta það
þegar einfalt er að stilla ökumanns-
sætið og ekki nóg með það heldur eru
framsætin með minni þannig að ef ég
ætti eiginmann, og þennan bíl, gætum
við hjónin verið búin að festa okkar
uppáhalds sætastillingar í minnið. Og
ef ég ætti eiginmann yrði hann eflaust
jafn þakklátur og ég fyrir sérstaklega
skýra bakkmyndavél sem með litun-
um grænum, gulum og rauðum gefur
nálægð hluta í umhverfinu til kynna.
En það er ekki nóg með það heldur
færist hliðarspegillinn sjálfkrafa niður
þegar maður setur í bakkgír og sér
þannig sem allra best það sem fyrir
aftan bílinn er.
Bíllinn er auðvitað búinn hituðum
framsætum, rafdrifnum afturhlera
(sem ég reyndar opnaði óvart einn
morguninn þegar ég var sest undir
stýri), spólvörn og rafdrifinni hand-
bremsu. Hægt er að velja um mismun-
andi stillingar eftir því hvernig er ætl-
unin að keyra – í boði er hefðbundin
stilling, umhverfisvæn stilling og svo
sportstilling. Eitthvað fyrir alla.
Eins mikil klisja og mér finnst orðið
„akstursánægja“ vera þá get ég sagt
að akstursánægjan var gríðarleg hjá
mér við stýrið á þessum bíl. Þetta var
í fyrsta sinn sem ég ók BMW-jeppa og
oft leið mér hreinlega eins og ég væri
komin heim.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Fegurð og
fjöðrun til
fyrirmyndar
BMW X5 er bíll sem er gaman að keyra, ekki bara af
því það er svo þægilegt að keyra hann heldur líka því
hann er svo fallegur. Þetta er rúmgóður lúxusjeppi,
afar kraftmikill og öll útlitshönnun til fyrirmyndar.
Nýr BMW X5 er einstaklega glæsilegur í útliti en það er ekki allt því það var hrein unun að keyra hann.
Hönnunin á mælaborðinu er afar stílhrein. Í miðjunni er 6,5 tommu litaskjár þar sem meðal annar er hægt að tengja símann og
tengjast stjórntölvu bílsins.
... þannig að
ef ég ætti
eiginmann,
og þennan
bíl, gætum
við hjónin
verið búin að
festa okkar
uppáhalds
sætastillingar
í minnið.