Fréttatíminn - 02.04.2015, Qupperneq 60
M argrét Alice Birgisdóttir heilsumarkþjálfi mælir alltaf með því við við-
skiptavini sína í upphafi þjálfunar
að þeir hafi meltinguna í góðu lagi.
„Meltingarstarfsemi er mitt hjart-
ans mál og mér finnst sérstaklega
mikilvægt að meltingarfærin starfi
eins og þau eiga að gera. Ef bakt-
eríuflóra líkamans er í ójafnvægi
starfar líkaminn ekki eins og hann
á að gera. Upptaka næringar, niður-
brot fæðu og stór hluti ónæmiskerf-
is okkar eru háð því að við viðhöld-
um þessum aðstoðarher baktería.
Bio Kult hefur reynst afar vel til að
bæta starfsemi meltingarinnar.“
Laus við sjúkdómseinkenni
Sjálf greindist Margrét með Colitis
Ulcerosa eða sáraristilbólgu fyrir
fjórtán árum. „Í dag er ég lyfja- og
einkennalaus og hef verið það að
mestu til margra ára. Ég er sann-
færð um að bakteríurnar sem ég
hef tekið í gegnum tíðina samhliða
jákvæðum breytingum á lífsstíl hafi
sitt að segja varðandi það hversu vel
mér gengur.“
Bio-Kult Candéa og Bio-Kult
Original
Ef litið er til matarvenja þá hafa
flest lönd ákveðna rétti sem inn-
halda gerjaðan mat eða eru til þess
fallnir að viðhalda náttúrlegri bakt-
eríuflóru líkamans. „Fyrir þá sem
ekki borða slíkan mat eru bakterí-
ur í hylkjum það sem kemur næst.
Ég mæli heilshugar með Bio-Kult,
bæði Candéa með hvítlauk og
greip fræjum til að halda einkenn-
um niðri, og með Bio-Kult Orig-
inal til að viðhalda batanum. Báð-
ar tegundir hafa reynst mér vel.“
Bio-Kult Candéa-hylkin geta virk-
að sem öflug vörn gegn candida-
sveppasýkingu en hún getur komið
fram með ólíkum hætti hjá fólki, til
dæmis sem munnangur, fæðuóþol,
pirringur og skapsveiflur, þreyta,
brjóstsviði, verkir í liðum, mígreni
eða ýmis húðvandamál.
Bio-Kult fyrir alla
Innihald Bio-Kult Candéa-hylkj-
anna er öflug blanda af vinveittum
gerlum ásamt hvítlauk og Grape
Seed Extract. Bio-Kult Original er
einnig öflug blanda af vinveittum
gerlum sem styrkja þarmaflór-
una. Bio-Kult Candéa og Bio-Kult
Original henta vel fyrir alla, einnig
fyrir barnshafandi konur, mjólk-
andi mæður, sem og börn. Fólk
með mjólkur- og sojaóþol má nota
vörurnar. Mælt er með Bio-Kult í
Mælir heilshugar
með Bio-Kult
Bio-Kult er öflug blanda vinveittra gerla sem styrkja þarmaflóruna
Bio-Kult Original og Bio-Kult
Candéa:
n Mikilvægt er að viðhalda réttri
bakteríuflóru líkamans.
n Bio-Kult reynist vel til að bæta
meltinguna.
n Hægt er að fá bakteríur úr fæðu en
þeir sem borða ekki slíkan mat geta
tekið bakteríur í hylkjum.
n Margrét Alice mælir bæði með Bio-
Kult Candéa og Bio-Kult Original.
Margrét Alice Birgisdóttir heilsumark-
þjálfi segir að mikilvægt sé að hafa
meltinguna í góðu lagi. Hún mælir
heilshugar með meltingargerlunum frá
Bio-Kult.
bókinni Meltingarvegurinn og geð-
heilsa eftir Dr. Natasha Campbell-
McBride.
Unnið í samstarfi við
Icecare
Í takt við tÍMann Eyþór Úlfar þórisson
Geng eiginlega bara í fötum úr H&M
Eyþór Úlfar Þórisson er 21 árs tónlistarmaður í dúettinum September auk þess sem hann spilar í þætti Svala og
Svavars á Skjá einum. Eyþór Úlfar hefur áhuga á fótbolta, á ekki tölvu en syngur mikið í sturtunni.
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn samanstendur nánast
eingöngu af fötum úr H&M en það læðast
með nokkrar flíkur úr öðrum búðum eins
og Suit RVK, Jack & Jones og fleirum. En
alls gríns þá er örugglega 70% af fötunum
mínum úr H&M. Svo er ég mikill Calvin
Klein maður.
Hugbúnaður
Ég er að vinna á Skjánum í Skipholtinu
sem hljóðmaður og kem fram í þætti
Svala og Svavars. Svo erum við Birgir
Steinn stórvinur minn saman í dúett-
inum September og höfum við verið að
spila svolítið í kringum það. Ég hef lítinn
áhuga á einhverju hörku djammi en þykir
voða fínt að kíkja með félögunum að horfa
á enska boltann og fá sér 1-2 bjóra með.
Ég hef einmitt mjög gaman af fótbolta
þrátt fyrir nokkra vankunnáttu og reyni
að kíkja með strákunum í bumbubolta
tvisvar í viku. Bestu bíómyndir allra
tíma eru Lord of the Rings-myndirnar
en Breaking Bad og Friends deila saman
efsta sætinu yfir bestu sjónvarpsþættina.
Vélbúnaður
Ótrúlegt en satt þá á ég hvorki fartölvu
né borðtölvu en það er á dagskrá að fá sér
eina slíka. Ég er í „Team Apple“ og læt
iPhone 6+ duga mér fyrir allt sem ég þarf
að gera á netinu. Svo er ég með eina PS4
sem ég nota til að horfa á þætti, myndir
og fyrir leiki. Call of Duty, Fifa og GTA
eru mínir leikir.
Aukabúnaður
Stjúpmamma mín gerir alveg sjúklega
klúbbsamloku sem ég held mikið upp á.
Svo gerir mamma líka alveg geðsjúkan
pastarétt og þessir tveir réttir eru í mjög
miklu uppáhaldi. Þegar ég fer út að borða
þá finnst mér Fabrikkan þægilegur og
góður staður en ef maður ætlar að taka
út að borða á næsta stig þá finnst mér
Apótek restaurant frábær. Af áhugamál-
um mínum get ég nefnt tónlist, fótbolta,
ferðalög og svo finnst mér alveg sjúklegt
í snóker. Svo syng ég alveg svakalega
mikið í sturtu!
Ljósmynd/Hari
Hljómsveitin Apparat Organ Quartet heldur tón-
leika á KEX Hostel, fimmtudagskvöldið 9. apríl.
Sveitin er að undirbúa ferðalag til Vesturheims,
þar sem mun hún spila á tvennum tónleikum.
Annars vegar í Toronto þar sem hún mun leika á
Drake Hotel og hins vegar á NOW hátíðinni á Ís-
lendingaslóðum í Winnipeg. Það ríkir mikil eftir-
vænting í hópnum að skemmta á slóðum Vestur-
Íslendinga.
Apparat Organ Quartet hefur undanfarna
mánuði verið að semja efni fyrir nýja plötu sem
kemur væntanlega út síðar á árinu, og það verða
nokkur splunkuný lög á dagskránni á KEX
Hostel í næstu viku. Apparat hefur ekki komið
mikið fram að undanförnu. Síðast lék sveitin á
Karlsvöku sem haldin var í Eldborgarsal Hörpu
í september á síðasta ári, og þar áður á Iceland
Airwaves árið 2013. Það eru margir sem bíða
með eftirvæntingu eftir næstu plötu kvartettsins
en síðasta plata þeirra, Pólýfónía, kom út árið
2010.
Tónleikarnir á KEX Hostel á fimmtudag hefjast
klukkan 21. -hf
tónlEikar apparat á kEX
Apparat til Kanada
Apparat á Airwaves 2013.
... það
verða
nokkur
splunkuný
lög á dag-
skránni á
KEX Hos-
tel í næstu
viku.
60 dægurmál Helgin 2.-5. apríl 2015