Fréttatíminn - 02.04.2015, Page 62
Magni borðar heima eftir páskana en um helgina kemur hann fram í Reykjavík, á Akureyri og á Siglufirði. Ljósmynd/Hari
TónlisT 7 Tónleikar á 4 dögum hjá magna ásgeirssyni
Söngvarinn Magni Ásgeirsson segir páskana vera vertíð fyrir
marga tónlistarmenn. Að minnsta kosti hefur hann undan-
farin 16 ár unnið alla dagana og yfirleitt ekki séð fjölskylduna
fyrr en seint á öðrum degi páska. Í ár syngur hann í Jesus
Christ Superstar og í kóversveitinni Killer Queen.
s ennilega hef ég eytt páskum síðast heima hjá mér þegar ég var 16 ára,“
segir Magni Ásgeirsson tónlistar-
maður.
„Ég var byrjaður að spila á böll-
um í menntaskóla, en síðan 1999
hef ég ekki borðað með konunni
minni um páska,“ segir Magni.
„Þetta er bara vertíð í vinnunni
minni. Við getum bara borðað
páskamatinn saman á þriðjudag-
inn,“ segir Magni.
„Í gamla daga þegar maður
var í rútuferðunum þá var maður
ekkert viðræðuhæfur fyrr en á
fimmtudeginum eftir páska. Bú-
inn að búa í rútu í 5 eða 6 daga og
spila jafnmörg böll. Þetta er að-
eins öðruvísi í dag,“ segir Magni
sem kemur fram á sjö tónleikum
á fjórum dögum um páskana.
Á skírdag er hann í uppfærslu
á Jesus Christ Superstar sem
verður flutt tvisvar í Eldborgarsal
Hörpu, sem og í Hofi á Akureyri
á föstudeginum langa. Á laugar-
daginn fer hann með Queen sveit-
ina sína Killer Queen og heldur
tónleika á Rauðku á Siglufirði, og
endar svo helgina með tvennum
tónleikum á Græna hattinum með
sömu sveit. „Við í Killer Queen
spilum svona tvisvar á ári á Hatt-
inum og það er alltaf fullt og mik-
il stemning,“ segir Magni sem
stofnaði sveitina ásamt félögum
sínum fyrir sjö árum. „Þetta er
svona spari saumaklúbbur.“
Hljómsveitin Á móti sól sem
Magni hefur leitt í fjöldamörg
ár hefur alltaf farið mikinn um
páska, en ákváðu að taka frí í ár
og þá myndaðist rými fyrir annað
hjá Magna. „Þetta er bara vinnan
mín og hún er alla daga ársins,
líka um páska. Þess á milli er
ég heimilisfaðir og svo rek ég
tónlistarskólann Tónræktina á
Akureyri ásamt öðrum,“ segir
Magni. „Þetta passar allt saman
mjög vel saman. Það er allavega
nóg að gera fram á sumar en ég
ætla samt að reyna að vera heima
á Borgarfirði í júlí,“ segir Magni
sem ásamt fjölskyldu sinni heldur
utan um Bræðsluna á Borgarfirði
eystri á hverju ári.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Hef ekki borðað heima
um páskana í sextán ár
Unnur Sara Eldjárn
hefur sent frá sér sína
fyrstu plötu. Hún heldur
tónleika á Rósenberg
síðar í mánuðinum.
Ljósmynd/Hari
TónlisT unnur sara eldjárn sendir frá sér fyrsTu plöTu sína
Engin pressa sem fylgir eftirnafninu
Þ egar ég var 17 ára fannst mér eðlilegt markmið að gefa út mína fyrstu plötu 22 ára og
það gekk eftir,“ segir Unnur Sara
Eldjárn sem sendi frá sér sína fyrstu
plötu á dögunum. „Platan átti að
vera bara með sex lögum en vinn-
an við hana gekk svo vel að í janúar
ákvað ég að gera bara alvöru plötu,“
segir Unnur.
Unnur Sara hefur, þrátt fyrir
ungan aldur, haldið fjölda tónleika
og tekið þátt í alls konar tónlistar-
verkefnum. Hún hefur vakið athygli
fyrir góða túlkun á lögum franska
tónlistarmannsins Serge Gainsbo-
urg en sú tónleikadagskrá var fyrst
flutt á Þjóðlagahátíð á Siglufirði
2014. Gerð þessarar plötu var aðal-
verkefni Unnar í vetur ásamt undir-
búningi á burtfarartónleikum úr
söngnámi við Tónlistarskóla FÍH
sem hún lauk í mars. „Ég ætla að
halda tónleika með Gainsbourg
efninu á Rósenberg 14. apríl og svo
aðra þann 23. með mínu eigin efni,
líka á Rósenberg,“ segir Unnur. „Ég
byrjaði að taka upp í ágúst á síðasta
ári og hef svo unnið þetta hægt og
rólega í samstarfi við Halldór Eld-
járn, föðurbróður minn.“
Lögin á plötunni eru mjög fjöl-
breytt en eitt þeirra tileinkar Unn-
ur pabba sínum, gítarleikaranum
Kristjáni Eldjárn, sem lést langt
fyrir aldur fram. Unnur var níu ára
þegar hann lést.
Einnig samdi Unnur laglínu og
texta yfir gítarupptöku frá honum
sem hann hafði tekið upp þegar
hann var við nám í Helsinki árið
1998. „Halldór fann þessa upptöku
árið 2012 og við ákváðum að gera
bara lag við þetta, þó upptakan
standi líka alveg eins og sér,“ seg-
ir Unnur. „Þetta er því
samstarf okkar pabba.“
Unnur segir ekki mikla
pressu fylgja eftirnafn-
inu sem allir Íslend-
ingar tengja við. „Nei,
en ég er alltaf spurð
hverra manna ég sé,“
segir Unnur. „Það
er bara skemmti-
legt.“
Fjöldi af hæfi-
leikaríku tónlistar-
fólki kom að gerð
plötunnar og má
þar nefna Ragnheiði Grön-
dal og föðurbróður Unnar
Söru, Halldór Eldjárn úr
hljómsveit inni Sykur.
Kjartan Kjartansson sá
um upptökustjórn og
hljóðblöndun. -hf
Bruggarar mættu í gervi KISS
Á Árskógsströnd er á ári hverju haldin rokkhátíð þar sem hljómsveitir og tónlistar-
fólk úr nágrenninu kemur fram og skemmtir. Bruggverksmiðjan Kaldi, sem er á Ár-
skógsströnd, er einn styrktarað-
ila hátíðarinnar og er yfirleitt
með eitt atriði á hátíðinni. Í ár
voru það bruggararnir Sigurður
Bragi Ólafsson, Þorsteinn Ingi
Ragnarsson og Jón Geir Árnason
sem æfðu eitt lag og komu svo
fram í fullum skrúða sem hljóm-
sveitin KISS. „Þetta er í þriðja
sinn sem við erum með atriði
og þetta verður ekki toppað
held ég,“ segir Sigurður Bragi
bruggari. „Við æfðum KISS-lagið
God Gave Rock ń Roll To You og
mættum í fullum herklæðum.
Reyndar settu margir spurningarmerki við að við værum bara þrír, en ekki fjórir
eins og orginallinn, en við sögðum að Ace Freihley hefði verið of fullur til þess að
koma fram,“ segir Sigurður. „Við áttum salinn og við tókum þetta alla leið. það er
aldrei að vita að við tökum á móti gestum í Kalda í fullum skrúða, sérstaklega ef
KISS aðdáendaklúbburinn lætur sjá sig,“ segir Sigurður Bragi Ólafsson, bruggari hjá
Kalda bruggverksmiðju. -hf
José ósigraður
Um síðustu helgi fór fram keppnin um Gull-
klippurnar þar sem keppendur komu víðs
vegar að og öttu kappi í rúningu sauðfjár.
Meistari síðasta árs, José Gutierrez, sem
er bóndi í Hvalfirði, varði titilinn og var það
Englendingurinn Foulty Bush sem keppti
gegn honum í úrslitum.
José, sem kemur frá Uruguay, virðist því
vera ósigrandi í þessari keppni. Keppnin
fór vel fram og var margt um manninn á
KEX Hostel.
Ellen og fjölskylda á
Rósenberg
Tónlistarhjónin Ellen Kristjánsdóttir og
Eyþór Gunnarsson halda, ásamt börnum
sínum, tónleika á Cafe Rósenberg á laugar-
dagskvöld. Ellen
og Eyþór þarf
vart að kynna
en börnin þeirra
fjögur hafa flest
haslað sér völl í
tónlist á undan-
förnum árum.
Systurnar Sigríður, Elísabet og Elín, starfa
saman í hljómsveitinni Sísý Ey, sem hefur
vakið talsverða athygli að undanförnu.
Yngstur barna þeirra hjóna er Eyþór Ingi.
Hann stundar nám í tónlistarskóla FÍH,
leikur á ýmis hljóðfæri og semur raftónlist.
Á efnisskrá tónleikanna verður tónlist úr
ýmsum áttum, lög frá ferli hvers um sig og
uppáhaldslög sem fjölskyldan hefur farið
höndum um og gert að sínum. Tónleikarnir
hefjast klukkan 21.30.
Komdu á skauta um páskana
Opnunartímar
Skírdagur 17.apríl
Föstudagurinn langi 18.apríl
Laugardagur 19.apríl
Páskadagur 20.apríl
Annar í páskum 21.apríl
kl.13-18
kl.13-18
kl.13-18
kl.13-18
kl.13-18
Skautahöllin í Laugardal · S.588 9705
skautahollin.is
ír r 2. ríl kl. 3-18
t ri l i 3. ríl kl. 3-18
r r 4. ríl kl. 3-18
r 5. ríl kl. 3-18
r í 6. ríl kl. 3-18
62 dægurmál Helgin 2.-5. apríl 2015