Fréttatíminn - 02.04.2015, Blaðsíða 64
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Hildur Einarsdóttir
Bakhliðin
Með skugga-
lega góðan
húmor
Nafn: Hildur Einarsdóttir.
Aldur: 30 ára.
Maki: Gunnleifur Gunnleifsson.
Börn: Signý María 14, Ester Ósk 8,
Gunnleifur Orri 6, Arnar Bjarki 4.
Menntun: BS í Sálfræði með áherslu
á markaðsfræði frá Háskólanum í
Reykjavík.
Starf: Auglýsinga- og markaðsstjóri
tímaritsins Glamour.
Fyrri störf: Markaðsfulltrúi á visir.is
Áhugamál: Mitt stærsta áhugamál er
fótbolti og er ég gallharður stuðnings-
maður Manchester United og Breiða-
bliks. Ég nýti annars allan frítíma í að
vera með fjölskyldu og vinum, og hef þá
sérstaklega gaman af bústaðaferðum,
útiveru og góðum spilakvöldum.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Stjörnuspá: Þú vilt endilega breyta
rétt svo þú þarf að skoða allar hliðar
málsins. Gefðu þér tíma til þess að fara í
gegnum málin og skipuleggja framgang
þeirra.
Hildur er jákvæð með skuggalega góðan húmor. Hún þolir alls ekki óþarfa
vesen og dramatík og ofhugsar
sjaldan einfalda hluti,“ segir
Hanna Steina Arnarsdóttir, vin-
kona Hildar. „Hún hefur reyndar
ekki vott af tímaskyni og er sér-
fræðingur í að misreikna hvað
hlutirnir taka hana langan tíma,
en henni er fyrirgefið um leið og
hún mætir brosandi á svæðið.“
Í síðustu viku kom fyrsta tölublað tíma-
ritsins Glamour Ísland út. Tímaritið fjallar
um tísku og lífsstíl og þykir hið glæsi-
legasta. Markaðsstjóri tímaritsins er
Hildur Einarsdóttir. Tímaritið er eitt af
vinsælustu lífsstílstímaritum fyrir konur
í heiminum og verður íslenska útgáfan
af Glamour sautjánda erlenda útgáfan
af tímaritinu. Þetta er í fyrsta sinn sem
alþjóðlegur fjölmiðill kemur út í íslenskri
útgáfu.
Hrósið...
... fær Eiður Smári Guðjohnsen
sem sneri aftur í íslenska landsliðið
með stæl þegar hann skoraði og lék
firnavel gegn Kasakstan.
Flott
fermingargjöf
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is
Verð 39.900,-