Fréttatíminn - 20.03.2015, Blaðsíða 54
54 heilsa Helgin 20.-22. mars 2015
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is
… Á AFMÆLI
Í DAG!
AFMÆLISKÖKUR ÞARF AÐ PANTA MEÐ DAGS FYRIRVARA
APOTEK ER MEÐ
AFMÆLISKÖKUNA
Hjá okkur færðu þessa frábæru afmælisköku. Hún er
tilvalinn eftirréttur fyrir ölskyldur og vinahópa sem hafa
gaman saman á Apotekinu.
Gómsæt súkkulaðikaka með súkkulaðimús og hindberjum,
hjúpuð súkkulaðiganache að hætti Axels Þ., Pastry Chef.
Kakan er hæfileg fyrir 6–10 manns og kostar 3.990 kr.
K vef er líklega algengasti kvilli sem hrjáir jarðarbúa, en reikna má með að þegar
75 ára aldri er náð hafi maður um
það bil 200 sinnum fengið kvef á
ævinni og eytt um tveimur árum
af henni í að berjast við hin hvim-
leiðu óþægindi sem fylgja, eins og
nefrennsli og hnerraköst. Yfir 200
vírusar valda kvefi og því er erfitt
að mynda ónæmi gegn því og að
sama skapi erfitt að finna
lækningu. Tíðni kvefs
lækkar þó með aldrin-
um, börn geta reikn-
að með að fá kvef
að meðaltali 4-8
sinnum á ári en á
efri árum er meðal-
talið komið niður í eitt
skipti á ári.
LGG gerillinn verndar gegn
vírusum
Nýlegar rannsóknir á tengslum
kvefs og LGG gerilsins virðast
benda til verndandi áhrifa gerilsins
umfram lyfleysuáhrif og þá sérstak-
lega hjá börnum. „Í tveimur klínísk-
um rannsóknum Hojsak og félaga
frá 2010 koma fram ótrúleg áhrif
LGG á tíðni kvefs í börnum,“ segir
Björn S. Gunnarsson, vöruþróunar-
stjóri MS. Í rannsóknunum voru
líkurnar á að fá kvef í tilraunahóp-
unum, en allir meðlimir þeirra fengu
LGG, þrisvar sinnum minni en í
samanburðarhópunum sem fengu
lyfleysu. Að auki virtust einkenni
vara skemur í tilraunahópunum sem
þýddi að börnin voru styttri tíma frá
vegna veikindanna í tilraunahóp-
unum en í samanburðarhópunum.
„Ekki er að fullu ljóst hvernig LGG
gerillinn og aðrir heilsugerlar fara
að því að lækka tíðni kvefs, en talið
er að þeir hafi áhrif á ónæmisvirkni
meltingarvegarins. LGG gerillinn á
auðvelt með að festast við slímhúð
þarmaveggjarins og virðist sú bind-
ing gegna lykilhlutverki í ónæmis-
hvetjandi áhrifum LGG gerilsins,“
segir Björn. Það er því ljóst að hinu
hvimleiða kvefi er hægt að halda vel í
skefjum með neyslu á LGG. „Endur-
teknar niðurstöður ólíkra rannsókna
sýna að þrisvar sinnum minni líkur
eru á að börn sem neyta LGG reglu-
lega fái kvef og þá eru ótalin önnur
jákvæð áhrif LGG á meltingarveg-
inn, auk annarra heilsusamlegra
áhrifa.“
Almenn vellíðan og bætt heilsa
Bættu LGG+ við daglegan morg-
unverð fjölskyldunnar og styrktu
ónæmiskerfið. Drykkurinn bætir
meltinguna og kemur jafnvægi á
hana, hefur fjölþætta varnarverk-
un og veitir mikið mótstöðuafl
gegn kvefi og flensu auk þess sem
hann stuðlar að almennri vel-
líðan. „Heilsa okkar á stöðugt
undir högg að sækja vegna alls
kyns áreitis og því er gott að
vita að með litlum styrkjandi
dagskammti af LGG+ styrkj-
um við mótstöðuafl líkamans
og örvum vöxt heilnæmra
gerla í meltingarveginum,“
segir Björn. Til að viðhalda
fullum áhrifum LGG+ er
mikilvægt að neyta þess
daglega og ein lítil flaska er
nóg fyrir fulla virkni.
Unnið í samstarfi við
MS
LGG+ gegn kvefi