Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.03.2015, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 20.03.2015, Blaðsíða 2
Erla Hlynsdóttir erla@ frettatiminn.is H V Í T T S Ú K K U L A Ð I PÁSKARNIR ERU TÍMI FYRIR LINDU facebook.com/goa.is ENGU ÖÐRU EGGI LÍKT Illugi til Kína Þetta er ekkert spurning um heimsyfirráð - mér finnst bara gaman að standa í fram- kvæmdum  Viðskipti ÚtibÚ frá the Laundromat Café í osaka Vilja opna kaffihús Frikka Weiss í Japan Unnið er að því að opna útibú frá The Laundromat Café í Osaka í Japan. Friðrik Weiss- happel, stofnandi veitinga- staðarins, segir þetta spenn- andi verkefni. Hann kveðst hafa tröllatrú á því þótt ekkert sé frágengið enn. Sjálfur stefnir hann að því að opna fjórða staðinn í Kaupmanna- höfn innan tíðar. Þ etta er gríðarlega spennandi en getur auðvitað brugðið til beggja vona þar til samning- ar hafa verið undirritaðir,“ segir Friðrik Weisshappel, veitingamað- ur í Kaupmannahöfn. Unnið er að því að opna útibú frá veitingastað Friðriks, The Laundro- mat Café, í Osaka í Japan síðar á árinu. Friðrik rekur sem kunnugt er þrjá Laundromat-veitingastaði í Kaupmannahöfn. Íslenskt útibú var opnað í Austurstræti árið 2011. Staðurinn í Osaka yrði rekinn með svokölluðu „franchise“-leyfi frá Laundromat í Kaupmannahöfn. „Japanirnir hafa komið tvisvar til mín og eru búnir að rissa upp samning á japönsku. Þeir tala ekki ensku þannig að ég þurfti að ráða túlk,“ segir Friðrik. „Þeir eru byrj- aðir að leita að húsnæði í Osaka og þegar það finnst mun ég fljúga 4-5 sinnum þangað til að setja þetta af stað. Svo verður kokkur í læri hjá okkur í Kaupmannahöfn.“ Hvernig kemur þetta til, að Jap- anir hafi áhuga á því að opna útibú frá The Laundromat Café? „Þeir komu bara til mín. Þeir höfðu frétt af staðnum frá jap- önskum manni sem hafði verið hér ásamt dönskum vinum og voru kannski bara orðnir leiðir á sushi,“ segir Friðrik og hlær. Friðrik hefur kynnst ýmsu á sinni tíð en viðskipti við Japana eru öðruvísi en annað sem hann hefur fengist við. „Þetta er mjög sérstök upplifun. Þeir komu með gjafir og ég færði þeim gjafir á móti. Svo þegar ég skálaði við þá höfðu þeir alltaf glasið undir mínu af því ég er eldri. Ég þurfti að lesa mér til um viðskiptasiði þeirra.“ „Það er vilji frá báðum hliðum að þetta verði að veruleika og ég hef tröllatrú á að svo verði. Við tókumst alla vega í hendur og mér er sagt að þegar japanskur viðskiptamaður tek- ur í höndina á manni geti hann ekki brugðist því sem hann samþykkir.“ Friðrik opnaði fyrsta Laundro- mat-staðinn í Kaupmannahöfn árið 2004 og síðan hefur þeim fjölgað í Friðrik Weiss- happel hefur setið tvær samn- ingalotur með japönskum við- skiptamönnum sem stefna að því að opna The Laundromat Café í Osaka síðar á árinu. Hann mun sjálfur fylgja eftir opnun staðarins þar í landi. Ljósmynd/ Martin Stampe þrjá eins og áður segir. Hann ber sig vel og stefnir á að færa enn frek- ar út kvíarnar. „Það gengur bara vel og ég stefni á að opna fjórða staðinn. Hvenær það verður er ég ekki alveg viss um, það gæti orðið eftir sex mánuði eða tvö ár. Ég er með tvær staðsetningar í huga og langar til að gera þetta. Þetta er ekkert spurning um heimsyfirráð – mér finnst bara gaman að standa í framkvæmdum.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is  toLLgæsLa andabLóð sem Lagt Var haLd á Var sagt ætLað tiL sÚpugerðar Krókódílshaus og andablóð í tollinum Þurrkaður krókódílshaus, hálfur annar lítri af anda- blóði og tugir hrárra eggja voru meðal þess sem ís- lenskir tollverðir stöðvuðu við landamæraeftirlit á síð- asta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tollstjóra. Andablóðið var sagt ætlað til súpugerðar. Innflutn- ingur hrárra dýraafurða er bannaður. Hvað varðar krókódíls- hausinn fellur hann undir svokallaðan CITES samn- ing um alþjóðaverslun með plöntur og dýr í útrýming- arhættu. Sá sem ferðaðist með hann framvísaði föls- uðu CITES vottorði frá Tæ- landi, það er fölsuðu leyfi til útflutnings á hausnum. Mark mið CITES samn- ings ins er að vernda teg- und ir dýra og plantna sem eru í út rým ing ar- hættu með því að stjórna alþjóðleg um viðskipt um með þær. Alls eiga 178 lönd aðild að CITES samn- ingn um Toll stjóri bend- ir á að flutn ing ur dýra og plantna, sem flokkuð eru í út rým ing ar hættu, eða afurða þeirra milli landa er ekki leyfi leg ur nema að fengnu leyfi hjá Um hverfi s- stofn un. Tollstjóri vekur sérstaka athygli á þessu þar sem brögð eru að því að stöðva þurfi send ing ar í tollaf- greiðslu, sem inni halda afurðir dýra sem eru á vá- l ista eins og þessi dæmi. Þurrkaði krókó- dílshausinn sem tollgæsla fann þegar hún stöðv- aði ferðalang sem framvísaði fölsuðu leyfi til útflutnings á hausnum frá Tælandi. Ljósmynd/ Tollstjóri Illugi Gunnarsson mennta- og menn- ingarmálaráðherra fer til Kína í dag í vinnuferð ásamt nokkrum starfs- mönnum ráðuneytisins og fleirum. Einnig verða í för fulltrúar frá Marel og Orku Energy. Í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu segir að ráðherrann haldi fundi með ráðherrum menntamála, menningarmála og vísinda og rannsókna. Lúðrablástur í Banka- stræti Auglýsingastofan H:N Markaðssamskipti hlaut íslensku markaðsverðlaunin fyrir árangursríkustu auglýsingaherferð ársins við afhendingu Lúðursins síðastliðinn föstudag og fögnuðu starfsmenn árangr- inum með lúðrablæstri í Bankastræti. Þetta er í sjötta sinn sem þessi tiltekni lúður fellur H:N í skaut af þeim sjö skiptum sem þau hafa verið afhent. Það var auglýsingaherferð sem unnin var fyrir Happdrætti SÍBS sem þótti skila bestum árangri að þessu sinni. Brandenburg fékk fimm verðlaun á Lúðrinum, flest allra auglýsingastofa. Næst kom Jónson & Le’macks með tvenn verðlaun. Pipar/Tbwa var valin besta auglýsingastofan, og hlaut auk þess verðlaun fyrir bestu herferðina. Handrit í lög- reglufylgd Fimm handrit voru í gærmorgun flutt í lögreglufylgd í Aðalstræti 16, þar sem Landnámssýningin - Borgarsögusafn Reykjavíkur er til húsa. Þar verða þau hluti af sýningunni Landnámssögur - arfur í orðum sem hefst í Borgarsögusafni á laugardag. Á sýningunni gefst fólki loks tækifæri á að sjá hluta af handritunum, helstu gersemum þjóðarinnar, en þau hafa ekki verið til sýnis um langt skeið. Sýningin er gerð í samstarfi við Árnastofnun ís- lenskra fræða og er Guðrún Nordal í for- svari fyrir þau varðandi þessa sýningu. Íslenski ferðaklasinn stofnaður Fjölmennur stofn- fundur Íslenska ferða- klasans var haldinn í liðinni viku en hann er samstarfsvettvangur aðila sem starfa á sviði ferðaþjónustu og tengdum atvinnu- greinum. Hlutverk félagsins er að efla sam- keppnishæfni og auka verðmætasköpun íslenskrar ferðaþjónstu. Klasasamstarfið er, að því er fram kemur í tilkynningu, hrein viðbót við þá starfsemi sem unnin er á sviði ferðamála, eins og hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofu og Íslandsstofu og kemur ekki í stað þeirra. Klasinn mun stuðla að auknu samstarfi við þessa aðila sem og aðra um land allt. For- maður Íslenska ferðaklasans er Sævar Skaptason frá Ferðaþjón- ustu bænda. 2 fréttir Helgin 20.-22. mars 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.