Fréttatíminn - 20.03.2015, Blaðsíða 24
„Eftir að ég fór
heim hugsaði ég
bara um það hvort
ég ætti að þora að
senda henni vina-
beiðni á Facebook
en þorði því svo
ekki.“ Dhanak seg-
ist hinsvegar hafa
verið hugrakkari
því hún sendi Jó-
hannesi vinabeiðni
þá um kvöldið og
þannig hófust kynni
þeirra fyrir alvöru.“
Ást við
fyrstu sýn
Dhanak Naz og Jóhannes Ari Lárusson Hólm hittust fyrst á
bænastund á heimili Dhanak og segja það hafa verið ást við
fyrstu sýn. Jóhannes tók íslamstrú viku síðar og tveimur vikum
síðar voru þau trúlofuð. Þau ætla alltaf að setja fjölskylduna í
fyrsta sæti og dreymir um að eiga gott líf, sama hvar í heim-
inum það býðst. Samband þeirra mætti mótlæti í byrjun en þau
segjast aldrei finna fyrir fordómum í sinn garð. Fordómar gagn-
vart íslam komi frá mjög afmörkuðum hópi fólks.
Þ að eru tvö ár síðan við kynnt-umst og það er dálítið fyndin saga á bak við það,“ segir
Dhanak aðspurð um það hvernig
þau Jóhannes hafi kynnst. Við
erum stödd á heimili þeirra á stúd-
entagörðunum í Grafarholti þar
sem þau búa með þriggja mánaða
gamalli dóttur sinni, Söru Soffíu.
Jóhannes Ari er að læra rafmagns-
og tölvunarverkfræði í Háskóla Ís-
lands en Dhanak hefur tekið sér hlé
frá námi í grafískri miðlun og nýtur
þess að vera í fæðingarorlofi.
Mikilvægt að halda í hefðirnar
„Jóhannes og systir mín voru í
sama vinahóp í Tækniskólanum
og Jóhannes var mjög forvitinn um
íslam og langaði greinilega að læra
meira um okkar trú og hefðir,“ seg-
ir Dhanak en hún er frá Pakistan
og er múslimi líkt og allir hennar
fjölskyldumeðlimir. Fjölskyldan
mætir alla föstudaga á bænastund-
ir í Ýmishúsinu við Skógarhlíð þar
sem Menningarsetur múslima á Ís-
landi hefur aðsetur en auk þess er
faðir Dhanak alltaf með bænastund
fyrsta sunnudag hvers mánaðar fyr-
ir stórfjölskylduna á heimili þeirra
við Kleppsveginn. „Þá biðjum við
saman en pabbi gerir þetta fyrst og
fremst til að stórfjölskyldan geti hist
reglulega. Lífið á Íslandi er svo mik-
ið þannig að allir eru alltaf upptekn-
ir og hafa sama og engan tíma fyrir
fjölskylduna svo þetta er góð leið til
að fá alla saman. Þetta er okkar leið
til að halda hópinn og halda í gaml-
ar hefðir svo enginn gleymi menn-
ingunni sem við komum úr.“ Systir
Dhanak ákvað að bjóða forvitna vini
sínum á bænastund svo hann gæti
kynnst íslam og fjölskyldunni.
Dhanak var hugrakkari
„Það var bara ást við fyrstu sýn,“
segir Dhanak. „Ég var nú á báðum
áttum,“ segir Jóhannes þá og þau
skellihlæja bæði tvö. „Eftir að ég
fór heim hugsaði ég bara um það
hvort ég ætti að þora að senda henni
vinabeiðni á Facebook en þorði því
svo ekki.“ Dhanak segist hinsvegar
hafa verið hugrakkari því hún sendi
Jóhannesi vinabeiðni þá um kvöldið
og þannig hófust kynni þeirra fyrir
alvöru.
„Ég hef alltaf verið forvitinn um
trú og hefðir annarra landa,“ segir
Jóhannes. „Ætli það hafi ekki byrj-
að þegar pabbi kynntist konu í Mar-
okkó sem var múslimi og ákvað í
kjölfarið að gerast sjálfur múslimi.
Þau giftu sig fyrir mörgum árum og
búa í Portúgal í dag. Það var í raun
pabbi sem leiðrétti mína fordóma
því áður en ég kynntist íslam í gegn-
um hann þá hélt ég að allir múslim-
ar væru hryðjuverkamenn. Pabbi
fræddi mig um sögu og hefðir trúar-
innar og ég var fljótur að sjá að hún
er alls ekki svo ólík kristni, enda
eru þessi trúarbrögð mjög tengd,“
segir Jóhannes sem var alinn upp á
kristnu heimili. „Stjúpfaðir minn er
í Fíladelfíusöfnuðinum svo ég fékk
snemma að kynnast ólíkum trúar-
brögðum. Ég bjó með honum og
móður minni í Danmörku sem ung-
lingur og þá kynntist ég líka inn-
flytjendasamfélaginu þar sem opn-
aði augu mín fyrir því að múslimar
eru ekkert öðruvísi en annað fólk.“
Gerðist múslimi viku eftir
fyrstu kynni
„Viku eftir að við Dhanak kynnt-
umst fór ég á bænastund í Ýmis-
húsinu þar sem ég fór með trúar-
játninguna og gerðist formlega
múslimi,“ segir Jóhannes. „Ég var
auðvitað búinn að vera að spá í
þessa hluti og verið leitandi í lang-
an tíma. Mér finnst nauðsynlegt að
hlúa að hinu andlega en það gleym-
ist oft í hraðanum sem einkennir
íslenskt samfélag. Ég held að það
sé okkur öllum mikilvægt að iðka
einhverskonar trú sama hvers kyns
hún er en þegar ég fór að lesa Kór-
aninn þá fannst mér ég hafa fundið
eitthvað sem höfðaði til mín. Mér
fannst ekkert mál að fara með trúar-
játninguna því ég var kominn með
góða ástæðu til að taka skrefið alla
leið,“ segir Jóhannes en Dhanak
bætir því kímin við að hann hafi
bara þurft að kynnast henni og ást-
inni til að taka skrefið til fulls.
Daginn sem Jóhannes tók trú var
mjög efnaður maður frá Mekka á
staðnum sem heillaðist svo af þess-
um unga Íslendingi sem vildi læra
um íslam að hann ákvað að bjóða
honum til Mekka. „Það var mjög
gaman að fara til Mekka. Mér leið
vissulega ekki eins og flestum í
kringum mig sem margir hverjir
höfðu beðið alla ævi eftir því að
komast, ég var ekki jafn snortinn og
það fólk, en þetta hafði samt mikil
áhrif á mig.“
Trúlofuð eftir tvær vikur
Vikur eftir að Jóhannes gerðist mús-
limi ákvað unga parið að trúlofa sig.
„Við hittumst nokkrum sinnum eftir
trúarjátninguna og við vorum bara
alveg viss,“ segir Dhanak. „Ég sagði
pabba frá því að okkur líkaði mjög
vel við hvort annað og að okkur
langaði til að hittast meira og hann
útskýrði fyrir mér að Jóhannes
þyrfti að biðja hann um leyfi til að
hitta mig.“
Dhanak Naz og Jóhannes Ari ásamt
dóttur sinni Söru Soffíu. Dhanak og
Jóhannes kynntust í gegnum systur
Dhanak fyrir tveimur árum og vissu um
leið að þau vildu eyða ævinni saman.
Eftir að hafa fengið leyfi frá föður
Dhanak til að hittast bað Jóhannes um
hönd hennar tveimur vikum eftir þeirra
fyrstu kynni. Ljósmynd/Hari
Framhald á næstu opnu
24 viðtal Helgin 20.-22. mars 2015