Frjáls verslun - 01.08.2010, Qupperneq 28
28 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Þóranna segir að við stjórnun breytinga þurfi að gæta þess að framtíðarsýnin sé skýr. Með öðrum orðum: Það þarf að vera skýrt hvert sé takmark breytinga og hvert förinni sé heitið. „Breytingar hjá fyrirtækjum eru af ýmsum toga. Sumar breytingar verða vegna
þess að stjórnendur sjá tækifæri í að róa á önnur mið. Þá er mikilvægt að dregin sé skýr
mynd af því hvert skuli halda þannig að starfsfólk geti lagst á árarnar og áfangastað verði
náð. Aðrar breytingar eiga rætur að rekja til atburða eða áfalla sem verða í umhverfinu
eða eru þess eðlis að stjórnendur fá litlu um þær ráðið. Þá er lykilatriði að leiðtogarnir
sam mælist um hver sé besta, eða illskásta, leiðin út úr ógöngunum og tryggi að starfs
mönnum sé ljóst hvert skuli stefna.“
Þóranna segir að breytingar séu sjaldan auðveldar; óvissa um hvers vegna ráðist er í breyt
ingar og hverju þær eigi að skila geri þær enn erfiðari. „Skýr sýn um hvert sé tak mark og
ávinningur breytinga eykur líkur á árangri og gerir leiðina yfirstíganlegri.“
ón Snorri Snorrason bendir á
að bankarnir séu byrjaðir að
selja sína hluti í fyrirtækjum
sem þeir hafa yfirtekið og sé
það fyrr en margir bjuggust við.
„Fyrir tækin eru flest auglýst til sölu í
blöðum og öllum gefinn kostur á að
taka þátt og bjóða í. Alltaf má deila um
tíma setninguna og hvort fjárfestar séu
tilbúnir meðan enn er mikil óvissa í
samfélaginu.
Í auglýsingu frá Arion banka kemur
fram að kjölfestuhlutur í Högum er
boðinn til sölu en fyrsti hluti sölu
ferlisins er opinn þannig að bankinn
hefur fallið frá fyrri tilhögun, að leyfa
fyrri eigendum eða stjórnendum að
eiga forkaupsrétt. Erlendir aðilar geta
líka komið að þessu og í ljósi gengis
krónunnar á erlendum mörkuðum
verður spennandi að sjá hvort erlendir
aðilar sjá sér hag í því að nýta sér
þá einstöku stöðu.“ Jón Snorri segir
ánægjulegt að bankarnir skuli ekki ætla
að eiga og reka þessi fyrirtæki lengur
en ekki sé sopið kálið þótt í ausuna sé
komið. „Það á eftir að koma í ljós hvort
þessar sölur ganga eftir því bankarnir
hafa lagt rekstrarfé í fyrirtækin og vilja
endurheimta það ásamt stórum hluta
skulda þeirra.“
ÞAU HAFA ORÐIÐ
Í UPPHAFI SKYLDI
ENDINN SKOÐA
Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri sam skipta
og viðskiptaþróunar hjá Auði Capital:
BREYTINGASTJÓRNUN06
FERLA-
STJÓRNUN
ER MÁLIÐ
Thomas Möller,
framkvæmdastjóri Rýmis:
TÍMASTJÓRNUN08
Thomas Möller bendir á að í dag séu flest fyrirtæki að lækka kostnað og bætir við að hægt sé ná góðum árangri með að skilgreina og
hagræða í ferlum fyrirtækja. „Í öllum rekstri
er unnið eftir ferlum sem eru endurteknir
aftur og aftur. Hjá stórri heildsölu í Reykjavík
eru til dæmis sendar út 278 þúsund pantanir
á ári. Hjá stórri verslunarkeðju á landsvísu
eru afgreiddir 11,8 milljón viðskiptavinir við
kassann á ári.
Það er kúnst að stjórna þessu endurtekna
efni þannig að vinnan fari sem oftast fram
samkvæmt forskriftinni. Endurteknir ferlar
geta orðið leiðigjarnir og verða oft að rútínu.
Þess vegna er mikilvægt að starfsfólkið upplifi
vinnuna sem ánægjulega rútínu sem skilar
árangri hjá fyrirtækinu í formi ánægðra
viðskiptavina og þess að varan er framleidd
og afhent á réttum tíma í réttu ástandi.“
Thomas bendir á fimm atriði sem skipta
mestu máli á þessu sviði.
Í fyrsta lagi er að skilgreina ferlana þannig
að þeir skili hámarksþjónustu við lágmarks
kostnaði. Gott er að hafa starfsfólkið með
í ráðum þegar ferlarnir og störfin eru
skipulögð.
Í öðru lagi að hafa ferlana skráða og sjáan
lega, helst á stórum skiltum á vinnu stöðum.
Í þriðja lagi þarf að þjálfa starfsfólkið og
endurmennta reglulega. Það þarf að kunna
ferlana og þekkja algengustu mistök til dæmis
við skráningar, pökkun, afgreiðslu, samskipti
við viðskiptavini og frágang vöru til flutnings.
Í fjórða lagi þarf að hafa mælanleg markmið
og veita reglulega svörun á frammistöðu
starfsfólks.
„Að lokum þarf starfsfólkið að geta leyst
óvænt vandamál og truflanir sem verða á
ferlum. Það þarf að vita hvernig á að nálgast
upp lýsingar um ferlana og hvernig eigi að
leysa úr aðsteðjandi vanda. Starfsfólkið þarf
að hafa heimildir til að leysa vandann án þess
að kallað sé til yfirmanna.“
EKKI SOPIÐ KÁLIÐ
Jón Snorri Snorrason,
lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands:
FYRIRTÆKIÐ OG ÞJÓÐFÉLAGIÐ07
Sniðið að þörfum
þíns fyrirtækis
Gott dreifikerfi og traust þjónusta skiptir
lykilmáli. Hafðu samband við söluráðgjafa
í 599 9500 og við finnum leið sem hentar
þínu fyrirtæki.
Treystu Vodafone fyrir þínum
fjarskiptamálum
vodafone.is