Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
SAMRÁÐ
LYKILATRIÐI
Stefanía Óskarsdóttir, doktor í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands:
STJÓRNMÁL10
Viðræður um nýja kjarasamninga fara nú í hönd. Sjaldan hefur verið mikilvægara að aðilar vinnumarkaðarins komist að samkomulagi sem hafi heildarhagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Í því felst meðal annars að
stuðla að endurreisn atvinnulífsins með nýjum atvinnutækifærum
og vinna gegn verðbólgu. Þessum markmiðum verður þó ekki náð
án aðkomu ríkis og sveitarfélaganna.
Ríkisstjórnin virðist hins vegar hafa lítinn skilning á mikilvægi
slíks samráðs. Sést það til dæmis af tvennu. Í fyrsta lagi rann
stöðug leika sátt málinn út í sandinn vegna vanefnda hennar. Í
öðru lagi voru það mistök að vinna fjárlagafrumvarpið sem felur
í sér svo mikinn niðurskurð án sam ráðs við hagsmunaaðila. Til
að tryggja árangur og betri sátt hefði verið nauðsynlegt að kalla
saman aðila vinnumarkaðarins til að ná samkomulagi sem bæði
fjárlagafrumvarpið og nýir samningar hefðu grundvallast á.“
ÞAU HAFA ORÐIÐ
Allir vita að fyrstu kynni eru mikil væg. Þetta á bæði við í einka lífinu og atvinnulífinu. Fólk man fyrstu kynni lengst og ímynd þín mótast meira af fyrstu kynnum en nokkru öðru.
Vissulega geta menn unnið sig í álit en ef þú býður
ekki af þér góðan þokka á fyrsta fundi tekur það langan
tíma að bæta fyrir mistökin. Af þessu leiðir að þeir sem
mæta í viðtöl hjá mögulegum vinnuveitanda ættu að
vanda sig og hugsa út í hvaða skilaboð vinnuveitandinn
fær með framkomu og klæðaburði.
Ef þú kemur með mömmu í viðtalið og hún hefur orðið
allan tímann bendir það til að þú sért ósjálfstæð(ur) og
illa til þess fallin(n) að taka ákvarðanir. Það er heldur ekki
líklegt til árangurs að svara í farsímann meðan viðtalið
stendur yfir. Það á að vera slökkt á farsímanum. Það er
ófrávíkjanleg regla. Í listum yfir helstu mistök sem fólki
hafa orðið á í viðtölum koma sömu atriðin fram aftur og
aftur. Okkur hættir öllum til að misstíga okkur á sama
stað. Sumir eru þó frumlegri en aðrir í að gera mistök.
Skemmtileg mistök gætu tryggt þér vinnuna.
Hér er listinn yfir það sem á að gera og ekki gera:
Heilsaðu með ákveðnu handbandi. Það vekur traust.
Ekki faðma væntanlegan vinnuveitanda að þér. Það er
vandræðalegt. Og ekki lauma þér í stólinn fyrir framan
vinnuveitandann og segja: Hæ!
Kastaðu tyggjóinu áður en þú mætir á staðinn. Það er
afskaplega ótraustvekjandi að sitja jórtrandi í viðtali.
Vertu snyrtileg(ur) og þrifalegur(ur). Það er ekki gáfulegt að
ofgera í klæðaburði en mikilvægt að fötin séu hrein og heil.
Slökktu á farsímanum. Hafir þú gleymt því og síminn
hringir áttu ekki að svara. Bara slökkva á símanum.
Mættu augnatilliti viðmælanda þíns. Það er ekki vænlegt
til árangurs að líta undan og stara á vegginn.
Sýndu áhuga og veldu orð þín af nákvæmni. Þarna verður
að finna rétt jafnvægi milli þessa að vera drumbsleg(ur) og
flaumósa.
Lestu þína eigin starfsferilsskrá nákvæmlega. Mótaðu
hugsanir þínar um af hverju þú tókst einstakar ákvarðanir.
Það er gott að kunna þessi svör.
Hafðu svörin einföld en samt ekki svo að hver spurning
fái bara eitt einfalt og vélrænt svar.
Hafðu prófskírteini og meðmæli með þér og gjarnan í
fjölriti. Það er allt í lagi að það sjáist að þú hafir undirbúið
þig. Það sýnir áhuga.
Ekki taka mömmu, kærasta eða vini með í viðtalið.
Það sýnir að þú sért ósjálfstæð(ur) og óákveðin(n). Í
vinnuviðtalinu, sem í vinnunni, verða menn að standa á
eigin fótum.
STJÓRNUN12
EKKI TAKA
MÖMMU MEÐ
Gísli kristjánsson
blaðamaður í Ósló:
HÆGT AÐ MISSKILJA
Dr. Valdimar Sigurðsson, Nova, dósent í markaðsfræði
og forstöðumaður rannsókna og doktorsnáms við
viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík:
MARKAÐSHERFERÐIN11
Einn bankinn er með slagorð: „Við ætlum að gera betur.“ Mér finnst þetta vera sérstök framsetning. Er mögulegt að standa sig verr? Bank arnir eru í dag með alls konar slagorð en það þarf að mínu mati að hafa í huga hvernig fólk túlkar og skilur skilaboð og ég efast ekki um að mörgum
neytendum dettur ýmislegt neikvætt í hug sem minnir á klúðrið. Það er
auðvelt að misskilja svona framsetningu.
Ég myndi heldur halda að það borgaði sig núna að hafa hægt um sig
út á við en styrkja sína starfsmenn inn á við – að markaðsherferðin fari
frekar fram á þann hátt að reynt sé að auka virði fyrir neytendur. Margir
eiga gott samband við þjón ustufulltrúann sinn eða gjaldkera þrátt fyrir
að þeim líki ekki við bankann sjálfan sem slíkan. Lykilatriði er að fara
hægt í slagorðin en leggja frekar áherslu á tengsl, persónulega þjónustu,
lausn vandamála og greiningu á nýjum tækifærum.
Höfðatorg 14. hæð, 105 Reykjavík • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri
Sími 545 2600 • sagabanki@sagabanki.is • www.sagabanki.is