Frjáls verslun - 01.08.2010, Blaðsíða 142
142 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, ræddi um það hvernig hrunið
hefði leikið 300 stærstu fyrirtækin og hvað
væri framundan. Hann sagði að í stuttu
máli væri það þannig að skuldahlið margra
fyrirtækja væri ónýt. Mörg væru í eigu banka
og kröfuhafa. Helstu viðskiptablokkirnar
hefðu farið á höfuðið og fyrirtæki þeirra
lent í krumlu banka og kröfuhafa. Mikil
reiði væri yfir ójafnri samkeppnisstöðu þegar
bankar og kröfuhafar eignuðust fyrirtæki
og rækju þau áfram í samkeppni við
önnur fyrirtæki, jafnvel viðskiptavini sína.
Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja
væri án gegnsæis og forstjórar hefðu það á
tilfinningunni að sömu reglur giltu ekki um
alla. Síðast en ekki síst væri tekist á um það
hvernig best væri að selja fyrirtækin aftur og
hverjir mættu eiga þau. Sumir hefðu nefnt
þetta baráttuna um Ísland.
„Bók Frjálsrar verslunar, 300 stærstu
fyrirtækin, er núna í vinnslu. Þegar ég segi
frá því er ég oft spurður að því hvort til séu
einhver 300 stór fyrirtæki á Íslandi,“ sagði
Jón. Hann sagði að núna væri tekist mest á
um það innan banka og kröfuhafa hversu
mikið ætti að afskrifa hjá stórskuldugum og
föllnum fyrirtækjum við endurreisn þeirra.
„Mín skoðun er sú að það hafi lítinn tilgang
að tregðast við að afskrifa skuldir fyrirtækja
svo þau komist aftur á skrið. Þessi lán eru
hvort sem er töpuð. Japanir tregðuðust við
í bankakreppunni í kringum 1990 og fyrir
vikið urðu fyrirtækin þar aldrei fyllilega
samkeppnishæf. Ekkert fyrirtæki nær sér á
strik og verður samkeppnisfært ef það er alltaf
að berjast við skuldaklafann.“
Jón sagði síðan frá því að listi Frjálsrar
verslunar yfir stærstu fyrirtæki landsins hefði
verið gefinn út í bráðum fjörutíu ár. „Við
Íslendingar erum yfirleitt mjög uppteknir
af því hverjir eigi stærstu fyrirtækin. En
komumst svo að því að einhverjir verða
að eiga þau.“ Jón rakti síðan sögu helstu
viðskiptablokka á Íslandi og tengsl þeirra
við hrunið. Hann sagði að viðskiptaveldi
Baugsfjölskyldu, bræðranna í Bakkavör og
Björgólfsfeðga hefðu átt og komið við sögu í
um þrjátíu af fimmtíu stærstu fyrirtækjunum
á listanum – slík hefði samþjöppunin verið
orðin á eignarhaldinu.
„Ef við lítum yfir sögu listans þá var
Sambandið langstærsta fyrirtæki landsins
brugghús í Danmörku. Hún heillaðist strax
af hugmyndinni og segir stundum í gríni að
það hafi tekið hana þrjár mínútur að telja
bónda sinn á að hætta að hugsa um sjóinn
og fara að brugga gæðabjór.
„Við höfðum engu að tapa, það var
komið nóg af kreppu í okkar fjölskyldu.
Við hjónin drifum okkur til Danmerkur
til að skoða brugghúsið sem var fjallað
um í fréttinni, viku eftir að ég sá hana.
Við heilluðumst strax af þessari hugmynd
og vorum ákveðin í að reisa glæsilega
bjórverksmiðju á Árskógssandi.“ Hjónin
notuðu sumarið til þess að undirbúa
verkefnið, komu sér í samband við Impru
á Akureyri þar sem þau fengu mjög góða
leiðsögn, ómetanlega að þeirra mati, þar sem
þau höfðu enga reynslu af fyrirtækjarekstri.
Það var farið í mikla frumkvöðlavinnu sem
var í senn skemmtileg og erfið.
Það gekk ekki vel að telja stóru
bankana á að lána, þeir höfðu enga trú á
bruggverksmiðju og sögðu að tveir risar
ættu markaðinn hér á landi, Vífilfell og
Egill Skallagrímsson. Hvað þá að reisa
bruggverksmiðju í einhverju krummaskuði
úti á landi! Hún segir að sem betur fer
hafi enn verið til sparisjóðir. Sparisjóður
Norðlendinga og Tryggingamiðstöðin fóru
með hjónunum í þetta verkefni. Um haustið
2005 fóru þau til Tékklands að skrifa undir
tækjasamning en tækin eru öll sérsmíðuð
fyrir þau þar. Við byggðum nýtt húsnæði
undir verksmiðjuna, réðum til okkar færasta
bruggmeistara sem völ er á, sem er frá Tékk
landi og heitir David Masa. Hann er með níu
ára bruggnám að baki og er bruggmeistari í
fjórða ættlið, en þar sem við höfðum ekki
kunnáttuna til að brugga bjór lögðum við
allan þunga í að fá færasta meistara sem völ
væri á. Við réðum til okkar gott starfsfólk
sem hefur verið hjá okkur frá byrjun.
Fyrsta bruggunin var sett í gang 22.
ágúst 2006, fyrsta átöppunin fór fram 28.
september 2006 og við ákváðum strax
að brugga eingöngu gæðabjór. Kaldi er
buggaður eftir tékkneskri hefð sem hefur
verið notuð síðan 1842. Markmiðið var að
búa til vandaðan bjór með miklu bragði.
Kaldi er ógerilsneyddur og er eini bjórinn
á Íslandi sem státar af því. Hann er án sykurs
og það eru engin rotvarnarefni í honum.
Það eina sem notað er í bjórinn eru fjórar
tegundir af byggi sem þykir það besta sem
völ er á, þrjár tegundir af humlum, ger
og vatn. Allt þetta hráefni er sérpantað frá
Tékklandi, fyrir utan að sjálfsögðu íslenska
vatnið sem fæst úr lind í fjalli við utanverðan
Eyjafjörð, en það er einmitt vatnið sem á svo
stóran þátt í að gera bjórinn góðan. Kaldi
er eingöngu settur í dökkt gler – sem er viss
gæðastimpill. Í upphafi var hægt að framleiða
170 þúsund lítra á ári, en aðeins ári seinna
var fyrirtækið komið upp í 300 þúsund lítra
í framleiðslugetu á ári. 2008 jókst umfangið
enn og núna getur verksmiðjan bruggað
450 þúsund lítra á ári. Á álagstímum hefur
brugghúsið ekki undan svo eigendurnir eru
farnir að hugleiða enn eina stækkunina þar
sem þeir telja mörg tækifæri á markaðnum.
„Í dag framleiðum við Kalda ljósan, sem
er okkar vinsælasti bjór, Kalda dökkan, Kalda
light og Norðurkalda, en það er öl sem er
tiltölulega nýtt á markaðnum. Við bruggum
þrjár tegundir af árstíðabundnum bjór sem
eru Þorrakaldi, Páskakaldi og Jólakaldi.
Jólakaldi hefur verið á markaði síðastliðin
tvö ár og hefur verið valinn besti jólabjórinn í
þessi tvö skipti. Bæði árin var hann uppseldur
löngu fyrir jól. Við bruggum sem verktakar
fyrir Ölgerð Reykjavíkur bæði Gullfoss
og Gullfoss pilsner. Þá erum við komin
með nýjan bjór sem heitir Stinningskaldi.
Þar erum við í samstarfi við Saga Medica
útvegar okkur hvönn úr Hrísey en hvönnin
er auðvitað alveg einstaklega holl og góð, ekki
síst fyrir karlmenn, þannig að Stinningskaldi
er ágætis nafn!“
Agnes sagði í lokaorðum sínum að
fólk mætti aldrei missa trúna þó á móti
blési í kreppum og veikindum. „Við lítum
björtum augum á framtíðina og bíðum
eftir þeim tækifærum sem verða á leið
okkar á komandi árum.“
Bjartsýni er mikilvæg
Fólk fólk má aldrei missa trúna þó á móti blási í bankahruni, kreppum og
veikindum. Þannig varð Kaldi til.
Haustráðstefna stjórnvísi 2010