Víkurfréttir - 13.03.2008, Blaðsíða 27
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 13. MARS 2008 27STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Alls voru 1.212 erlendir rík-
isborgarar skráðir með bú-
setu í Reykjanesbæ þann 1.
janúar síðastliðinn og hafði
þá fjölgað um 400 milli ára.
Pólverjar eru þar í miklum
meirihluta eða 824 talsins.
Alls voru 1814 erlendir ríkis-
borgarar skráðir með búsetu
í sveitarfélögunum á Suður-
nesjum þann 1. janúar en voru
1403 árið áður. Í Grindavík
var 171 erlendur ríkisborgari
með búsetu, í Sandgerði 198,
í Garði 153 og 80 í Vogum.
Af þessum fjölda voru 1185
pólskir ríkisborgarar. Þetta
kemur fram í nýjum tölum frá
Hagstofu Íslands.
Erlendum ríkisborgurum
fjölgaði hér á landi úr 18.563 í
21.434 árið 2007. Það er 15,5%
fjölgun á milli ára. Það er þó
minni fjölgun en tvö síðustu
ár en erlendum ríkisborgurum
fjölgaði um 34,7% árið 2006
og 29,5% 2005.
Hlutfall erlendra ríkisborgara af
heildarmannfjölda var þá 6,8%
samanborið við 6% ári áður.
Erlendum ríkis-
borgurum fjölgar