Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.05.2012, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 10.05.2012, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGURINN 10. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.isH e l l u h r a u n i 1 2 • H a f n a r fj ö r ð u r • 5 4 4 5 1 0 0 • w w w . g r a n i t h u s i d . i s Sendum frítt hvert á land sem er Halldór Ármannsson, Stefanía Haraldsdóttir, Sæunn Ásta Sigurbjörnsdóttir, Ársæll Ármannsson, Kristrún Níelsdóttir, Lilja Ármannsdóttir, Sigurður Garðarsson, Valur Rúnar Ármannsson, Katrín Benidiktsdóttir, Helgi G. Steinarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Sigurbjörg Stefánsdóttir, Kirkjuvegi 1, áður Greniteig 4, Keflavík. Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 17. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Stjórnandi er Jóhann Smári Sævarsson og undirleikarar Steinar Guðmundsson píanóleikari og Einar Gunnarsson harmoníkkuleikari. Við verðum að vanda með fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. verða að þessu sinni haldnir þriðjudaginn 15. maí kl. 20:00 í Safnaðarheimilinu í Sangerði. Vortónleikar Söngsveitarinnar Víkinga Miðaverð kr. 2000- SUÐURNES | GARÐUR | GRINDAVÍK | REYKJANESBÆR | SANDGERÐI | VOGAR Eldey þróunarsetur, Menningarráð Suðurnesja og SKASS kynna hönnun og handverk í Eldey 31. maí 2012. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku í tískusýningu eða vilja sýna hönnun sína geta haft samband á eldey@heklan.is. Þátttökufrestur er til 20. maí nk. og mun valnefnd velja úr sýnendur. ERT ÞÚ HÖNNUÐUR? HÖNNUN OG HANDVERK Á SUÐURNESJUM „Þetta hefur gengið ótrúlega vel og gefur manni vonir um að ás- andið hér á Suðurnesjum sé eilítið að skána,“ sagði Kjartan Steinars- son en bílasala hans, K.Steinars- son var með stórsýningu á KIA bílum um síðustu helgi. Sýndar voru nýjustu gerðir KIA bifreiða en þær eru alls sjö og hafa fengið mjög góðar mótttökur á Suðurnesjum. Ódýrasti KIA bíllinn er frá 2 millj. kr. en sá dýrasti innan við sjö milljónir. Kjartan sagði að mikill fjöldi Suðurnesjamanna hefði heimsótt hann í dag. „Það eru ansi margir orðnir óþreyju- fullir og vilja endurnýja bílinn. All margir hafa gert það í vetur og vor og margir eru í startholunum. „KIA hefur komið gríðarlega sterkt inn hér á svæðinu enda ekki að furða. Þetta eru frábærir bílar og á góðu verði. Ekki skemmir að það er 7 ára ábyrgð á öllum bílum,“ sagði Kjartan sem í um áratug seldi Suðurnesjamönnum bíla frá Heklu og var með glæsilega aðstöðu á Fitjum í Njarðvík. Ekki alls fyrir löngu söðlaði hann um eða skipti um gír í orðsins fyllstu merkingu þegar hann flutti fyrirtækið að Holtsgötu í Njarðvík og hóf sölu á bílum frá Öskju sem er með KIA og Mercedes Benz og nýlega bættust Suzuki bílar í hópinn hjá Kjartani. Á sýningunn sl. laugardag var at- hyglin á KIA og Kjartan og hans menn voru í stuði og buðu upp á nýbakaðar vöfflur með rjóma og samlokur og tilheyrandi drykki. Sannkölluð hugglegheit á Holtsgöt- unni og gestir rifjuðu upp gamal- kunna stemningu sem var svo al- geng á bílsýningum fyrir nokkrum árum. Fjölþjóðlegur dagur í leikskól- anum Gefnarborg Í leikskólanum Gefnarborg er fjölþjóðlegt samfélag þar sem saman koma börn og starfsfólk frá átta þjóðum þ.e. Íslandi, Pól- landi, Filippseyjum, Tælandi, Marokkó, Portúgal, Bandaríkj- unum og Kólumbíu. Í tilefni af þessari miklu fjölmenningu var haldinn fjölþjóðlegur dagur í leik- skólanum 27. apríl s.l. Þá var opið hús þar sem gestir gátu komið og skoðað fjölbreytta muni, myndir og ýmislegt fleira frá öllum þjóð- unum. Einnig var hægt að hlusta á tónlist og horfa á myndbönd frá þessum löndum og boðið var upp á að smakka þarlendan mat. Í leikskólastarfinu er lögð áhersla á að hinn mikli margbreytileiki íbúanna fái að njóta sín sem best þannig að allir geti verið stoltir af sínum uppruna. Það er gert með því að kenna börnunum að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum sama hver uppruni þeirra er. Mark- miðið er að þau læri að þrátt fyrir að þjóðir heimsins séu ólíkar séu allir jafn mikils metnir og eigi að geta lifað í sátt og samlyndi. Um helgina frumsýndi leik-hópur á vegum Listar án Landamæra verkið Brúðkaups- draumur sem hópurinn samdi ásamt leiðbeinendum sínum. Ég fór á þessa sýningu ásamt fjölda fólks og hafði ótrúlega gaman af. Þarna var á ferðinni listafólk sem bæði fékk áhorfendur til að hlæja dátt og fella tár. Verkið skiptist í leik og söng og heilluðu þessir frábæru leikarar og söngvarar áhorfendur með einstakri leik- gleði sinni. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að sjaldan hafi fagnaðarlætin verið meiri í Frumleikhúsinu eins og á þessari sýningu. Sem mikil áhuga- manneskja um eflingu leiklistar hér í bæ óska ég þessum frábæra hópi til hamingju með sýninguna og vona að við bæjarbúar fáum að njóta hæfileika þeirra oft í náinni framtíð. Til hamingju enn og aftur með frá- bært framtak! Guðný Kristjánsdóttir. Einstök lEikGlEði Sýndar voru 7 gerðir af KIA á stórsýningunni. Kjartan Steinarsson í sýningarsalnum. -segir Kjartan Steinarsson, bílasali Hefur gengið ótrúlega vel ›› K.Steinarsson bílasalan í góðum gír: næsta blað kemur út miðvikudaginn 16. maí. Skilafrestur á auglýsingum er því mánudaginn 14. maí til kl. 17. Auglýsingasíminn er 421 0001 og pósthólfið er gunnar@vf.is vf.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.