Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.05.2012, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 10.05.2012, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGURINN 10. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR Auglýsing um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna kjörs forseta Íslands Sýslumaðurinn í Keflavík 7. maí 2012 Þórólfur Halldórsson sýslumaður Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs, sem fram á að fara 30. júní 2012, er hafin hjá sýslumanninum í Keflavík, og verður sem hér segir á skrifstofum sýslumannsins í Keflavík, Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ og Víkurbraut 25, neðri hæð, Grindavík: Reykjanesbær: Grindavík: Atkvæðagreiðsla á sjúkrahúsum og dvalarheimilum aldraðra fer fram 26. - 28. júní nk. skv. nánari auglýsingu á viðkomandi stofnunum. Fjölmenningardagurinn var haldinn hátíðlegur í Reykja- nesbæ sl. laugardag en mark- miðið var að fagna fjölbreytileika í samfélaginu og draga fram kosti þess að búa í fjölbreytilegu um- hverfi. Sigríður Víðis Jónsdóttir, höfundur verðlauna – og metsölubókarinnar Ríkisfang: Ekkert hélt fyrirlestur um bók sína og umfjöllunarefni hennar sem er líf og reynsla pal- estínskra flóttakvenna sem fengu hæli á Íslandi árið 2008 eftir að hafa þurft að flýja frá Írak í kjölfar Íraks- stríðsins. Aleksandra Bosnjak, nemi hjá Miðstöð símenntunar á Suður- nesjum sagði frá upplifun sinni á Íslandi og reynslu sinni af stríðinu í fyrrum Júgóslavíu. Nemendur Tón- listarskóla Reykjanesbæjar spiluðu fyrir gesti m.a. á harmonikku, selló og píanó en einnig létu söngnemar ljós sitt skína. Í boði voru kræsingar frá ýmsum löndum eins og Íslandi, Póllandi, Honduras, Kyrgistan, Makedoníu, Íran og Nígeríu og á meðan gestir gæddu sér á fram- andi góðgæti var hægt að fylgjast með landkynningu frá Póllandi og Hondúras. Fjölmenningardagurinn haldinn hátíðlegur Það er gaman að fylgjast með danstíma þar sem einbeiting í bland við hlátrasköll einkenna vinnuna á bakvið sýninguna sem er í vændum. Bæði nem- endur og kennarar eru spenntir fyrir helginni og eru æfingarnar farnar að segja til sín. Upprenn- andi dansarar eru að kljást við aumar tær, marbletti eftir veltur og snúninga og brunasár, vit- andi það að nú eru þau að kljást við alvöru dansverkefni með til- heyrandi hliðarverkunum. Það heyrist í nemendum keppast um hver sé nú með stærsta mar- blettinn eftir herðakollhnísinn og litla stúlkan með síða hárið vinnur þá keppni með bros á vör. Við tókum hana Ástu Bærings, danskennara og eiganda Dans- Kompaní, tali og vildum heyra hvað væri um að vera þessa dag- ana. Vorsýningin á sunnudaginn „Þetta er annasamasti tíminn þannig að ég veit varla hvar ég að byrja. En jú, eins og sést þá er dansskólinn undirlagður af vinnu fyrir komandi vorsýningu,“ segir Ásta. Fjöldi nemenda eru að máta búninga og þegar litið er inn í sal þá sést fullur salur af dansandi verkamönnum. Það vekur upp nokkrar spurningar og kemur í ljós að unnið er út frá þema á hverri vorsýningu og í ár heitir sýningin 24 TÍMAR. „Sýningin fjallar sem sagt um hinn venjulega dag í lífi fólks og þau verkefni sem dúkka upp. Sýningin hefst að morgni til þar sem verið er að vakna og gera morgunverkin svo kemur næsta atriði þar sem farið er í morgunsundið og svo fram- vegis. Það er meira að segja atriði sem gerist í súpermarkaðnum og á elliheimili en sýningunni lýkur svo á baráttunni við að fara að sofa aftur. Áhorfendur eiga eftir að skemmta sér vel á þessari sýn- ingu, hún er kómísk og flott.“ Tvær sýningar verða á sunnudag- inn 13. maí í Andrew‘s Theatre og er þetta lokapunkturinn á vetr- inum ár hvert og er öllum vel- komið að mæta. Það þýðir þó ekki að sumarfrí sé hafið hjá starfsfólki skólans. Vinna við undirbúning næsta vetrar hefst strax og kom margt áhugavert í ljós þegar spurt var nánar út í það. Ný námsskrá næsta veturs kynnt á þriðjudaginn Verið er að auka úrval danstíma fyrir nemendur og auka þjónustu. Þetta er gert að kröfu metnaðar- fullra nemenda og kennara. „Við höldum að sjálfsögðu í uppruna- lega grunnskipulagið en erum að gefa nemendum færi á að ná enn meiri árangri með því að sækja fleiri og fjölbreyttari tíma. Mark- miðið mitt hefur frá upphafi verið að skapa sterka dansara með fjölbreytta dansþjálfun. Næsta vetur geta strákarnir æft oftar í viku breikdans, hip hop, liðleika og fleira á meðan stelpurnar geta æft jazzballett, contemporary, hip hop, ballett, liðleika, music theatre og fleira skemmtilegt,“ segir Ásta aðspurð um þær breytingar sem von er á. Það er því ljóst að kenn- arar fara ekki í frí eftir vorsýningu en ný námsskrá verður kynnt fyrir öllum áhugasömum næst- komandi þriðjudag kl.17 í Odd- fellow-húsinu í Grófinni. „Öllum nemendum okkar og forráða- mönnum er boðið en við viljum sjá ný andlit og tökum vel á móti öllum sem vilja kynna sér það sem við erum að gera.“ Að lokum má benda áhuga- sömum á að DansKompaní býður upp á frítt dansnámskeið í júní og er hægt að kynna sér það betur á vefsíðu dansskólans, www.dans- kompani.is. Aumar tær, marblettir, brunasár og eintóm gleði

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.