Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.05.2012, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 10.05.2012, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGURINN 10. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIRFI MTUDAGURI N 8 útspark Ómar JÓhannsson Ómar Jóhannsson, markvörður og starfsmaður í Fríhöfninni sparkar pennanum fram á ritvöllinn. Leikdagur Það má segja að formlegur undirbúningur fyrir leik hefjist deg- inum áður. Laugardagsæfingin er kl. 10 að morgni og við fáum að æfa á aðalvellinum. Létt æfing sem fer aðallega í að skerpa á nokkrum atriðum fyrir morgundaginn. Völlurinn er í sérstaklega góðu standi þökk sé Sævari Leifs sem hugsar um hann eins og barnið sitt. Vona reyndar að hann hafi ekki séð um að klippa börnin sín eins og grasið á vellinum, en þið vitið hvað ég meina. Að æfingu lokinni er haldið upp í félagsheimilið þar sem dýrindis kássa bíður okkar með fersku salati og hrísgrjónum. Menn gúffa þessu í sig á met tíma eins og svöngum íþróttamönnum einum er lagið. Sigurbergur fær sér ábót. Zoran spjallar svo aðeins við okkur um morgundaginn áður en við fáum að fara. Tíminn líður ekkert sérstaklega hratt á sunnudögum þegar spilað er um kvöldmatartímann. Mæli með því að ungu leikmennirnir eignist börn sem fyrst, þau sjá til þess að maður hafi örugg- lega eitthvað fyrir stafni. Við hittumst svo í klefanum okkar í sundkjallaranum kl. 17. Það er alltaf einhver aukaspenna fyrir fyrsta leik. Það á loksins að hleypa kúnum út. Maður fer tvisvar sinnum yfir töskuna áður en lagt er af stað, maður má alls ekki gleyma neinu. Samt vildi ég stoppa bílinn þegar ég var kominn í Njarðvíkurnar og athuga í þriðja sinn hvort allt sé ekki örugglega í töskunni. Ísak keyrir bílinn og skartar glæsilegri hárgreiðslu. Við erum mættir í Fylkisheimilið um 40 mínútum seinna. Það er nóg pláss í klefanum enda fáum við tvo meðalstóra klefa sem liggja saman og tveir stórir sturtuklefar á milli. Falur er búinn að koma sér fyrir með sjúkratöskuna og nuddbekkinn í öðrum sturtuklefanum. Dói er búinn að brjóta saman búningana ásamt upphitunargalla og handklæði. Númerin snúa upp þannig að menn eru fljótir að finna fötin sín. Við erum tímanlega á ferðinni þannig að við göngum út á völl til að kíkja á grasið í Árbænum. Zoran og Gunni spjalla svo aðeins við okkur þegar við komum inn og leggja línurnar fyrir leikinn. Þetta eru engin geimvísindi en samt nauðsynlegt að vera með allt á hreinu. Fransi tók að sér að setja saman tónlistina sem spiluð er í klef- anum enda heimsfrægur fyrir góðan og fjölbreyttan tónlistar- smekk. Það er frekar rokkað, gömlu mennirnir eru ánægðir með það. Falur byrjar á þeim sem þurfa að fá teipaða ökkla og aðra auma staði áður en hann fer að nudda. Alltaf nóg að gera hjá Fal á leikdegi. Ungu strákarnir passa að það sé vatn í brúsum og boltar, vesti og keilur til staðar. Menn reima á sig nýja skó sem búið er að hlaupa til í vikunni og svo er farið að hita upp kl. 18.35. Þá höfum við 30 mínútur til að hita upp áður en farið er aftur inn í klefa. Þar höfum við nokkrar mínútur til að gera okkur klára fyrir leik og peppa hvorn annan upp. Dómarinn flautar frammi á gangi til merkis um að við eigum að ganga út á völl. Eftir leik sitjum við frekar súrir inni í klefanum. Jafntefli á útivelli í fyrsta leik eru ekki slæm úrslit en í hálfleik vorum við vongóðir um sigur eftir að hafa spilað vel í fyrri hálfleik. Halli er kallaður í viðtal fram á gang. Hann þarf að svara spurningum um leikinn og hvað honum finnst um hinar og þessar spár. Það er mikið spáð í spár. Fylkismenn bjóða okkur í súpu og brauð eftir leik áður en við höldum heim. Fyrsta leik íslandsmótsins er lokið. Næsta blað kemur út miðvikudaginn 16. maí. Skilafrestur á auglýsingum er því mánudaginn 14. maí til kl. 17. Auglýsingasíminn er 421 0001 og pósthólfið er gunnar@vf.is vf.is Grannaslagur í Grindavík í kvöld þegar heimamenn fá Keflavík í heimsókn: „Þetta er í raun bara sex stiga leikur ef maður spáir í því, afar mikilvægur. Maður ætlar sér alltaf að vinna Keflavík,“ segir Grindvíkingurinn Alexander Magnússon en það verður sann- kallaður víkingaslagur í kvöld í Grindavík þegar heimamenn fá Keflavík í heimsókn í annarri um- ferð Pepsi-deildarinnar í knatt- spyrnu. Leikir liðanna í fyrra voru litríkir. Liðin unnu þá bæði útileikina. „Þetta hafa í gegnum tíðina yfir- leitt verið mjög jafnir leikir. Þeir hafa einkennst kannski meira af baráttu en öðru og við munum búa okkur undir baráttu í þessum leik,“ segir Gunnar Oddsson aðstoðar- þjálfari Keflvíkinga sem vonast þó til þess að veðrið leyfi góðan fótbolta. Gunnar segir Keflvíkinga alla jafna leggja upp með að spila góðan fótbolta en hann býst við því að það verði erfitt að brjóta lið Guðjóns Þórðarsonar á bak aftur. „Lið undir hans stjórn eru yfirleitt mjög skipulögð og föst fyrir, þau gefa sjaldan færi á sér. Við teljum okkur geta fundið leiðir til þess að skora á þá“. Alexander sem lék sem bakvörður í fyrra og skoraði m.a. á skemmti- legan hátt úr víti í einum leiknum hefur verið á miðjunni að undan- förnu, segir að Keflvíkingar séu alltaf skeinuhættir en hann er lítið að pæla í liðum andstæðinganna. „Ég hef séð liðið spila og það eru þarna hættulegir menn eins og Guðmundur Steinars og Jóhann Guðmundsson. Það er vonandi að við tökum bara þrjú stigin á heimavelli. en þar segist hann kunna vel við sig. „Ég gegni frekar varnarsinnuðu hlutverki þar en þó fær maður líklega að skjótast fram stöku sinnum.“ Jafntefli í fyrstu umferð Fyrsti leikur Keflvíkinga gegn Fylki í deildinni var kaflaskiptur að mati Gunnars en hann segir að Keflvík- ingar hefðu hæglega getað klárað dæmið í fyrri hálfleik þegar þeir höfðu tak á leiknum. „Eftir að þeir jafna þá kom smá taugatitringur hjá okkur en við færðum þeim þetta mark alveg upp í hendurnar. Ómar sá svo til þess að við fengum svo ekki annað mark á okkur. Þegar uppi var staðið þá vorum við til- lölulega sáttir við stigið,“ segir Gunnar. Keflvíkingar hljóta þó að ætla sér fleiri stig í Grindavík? „Við förum með eitt stig með okkur til Grindavíkur og ætlum að freista þess að sækja hin tvö. Við förum í þennan leik, eins og alla aðra til þess að ná sem mestu út úr honum, það eru hreinar línur.“ Gunnar segir byrjunina á mótinu lofa góðu og að áhorfendur virð- ist ekki láta kuldann aftra sér að mæta á völlinn. „Það var vel mætt í fyrstu umferðina og vonandi taka Suðurnesjamenn líka við sér,“ sagði Gunnar að lokum. Alexander var ágætlega sáttur með það að sækja stig í Kaplakrika í fyrsta leik gegn FH en lokatölur urðu þar 1-1. „Það var kannski svekkjandi að missa þrjá punktana eftir að hafa fengið á okkur víti.“ Alexander Magnússon sem var einn af bestu leikmönnum Grinda- víkur í fyrra er óðum að jafna sig af meiðslum þessa dagana en hann býst passlega við því að vera klár fyrir grannaslaginn í Grindavík. „Ég fór í speglun fyrir skömmu og mér líður nokkuð vel núna,“ segir Alexander en hann vonast til að komast í liðið fyrir leikinn gegn Keflavík. Brennslustöð Kölku Helguvík ATVINNA Í BOÐI Kalka Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbær - Sími: 421 8010 - Netfang: kalka@kalka.is - Heimasíða: www.kalka.is Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. óskar eftir starfsmanni í brennslustöð fyrirtækisins. Um er að ræða sumarafleysingastarf með möguleika á fastráðningu. Unnið er á vöktum. Gerðar eru kröfur um menntun sem nýtist í starfið s.s. vélstjórnarréttindi og/eða menntun á sviði raf- eða vélvirkjunar. Starfsmenn í brennslustöð þurfa að hafa frumkvæði og góða samskiptahæfni, geta unnið skipulega og sjálfstætt og vera vel tölvufærir. Góð enskukunnátta er kostur. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 421-8010, netfang jon@kalka.is Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2012. Umsóknir sendist til Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbæ Sex stiga leikur Á laugardaginn var héldu Grindvíkingar sína árshátíð og fóru yfir uppskeru vetrarins í körfuboltanum. Hátíðin var hin veglegasta að venju og var dýrasta dúó landsins mætt til að trylla lýðinn en það voru þeir Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds. Jón Björn Ólafsson rit- stjóri karfan.is og fyrrum starfsmaður Víkurfrétta stýrði veislunni af röggsemi og lét skotin dynja á vel völdum Grindvíkingum. Hátíðin var hin veglegasta enda höfðu Grindvíkingar ærna ástæðu til þess að fagna. Jóhann Árni Ólafsson var valinn besti leikmaður vetrar- ins og Þorleifur Ólafsson var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar. Hjá stúlkunum var það Berglind Anna Magnúsdóttir sem var valinn besti leikmaður, Ingibjörg Sigurðardóttir var valinn efnilegasti leik- maðurinn, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir var besti varnarmaður vetrarins og svo var það Jean Lois Sicat sem þótti sýna mestu framfarir yfir veturinn. Jóhann og Berglind best Úr leik Keflavíkur og Grindavíkur á Nettóvellinum í Keflavík sl. sumar.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.