Víkurfréttir - 10.05.2012, Side 12
12 FIMMTUDAGURINN 10. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR
„Það snýst allt meira og minna um
körfubolta á okkar heimili. Við
þurftum að teikna upp hvernig
þetta ætti að vera eftir að litli fædd-
ist, hver á að passa og allt það. Þegar
við vorum barnlaus þá fór minna
fyrir þessu. Okkar fólk er svo búið
að vera alveg magnað að hjálpa
okkur þannig að allir eru búnir að
leggjast á eitt,“ segir Jóhann þegar
þau eru spurð að því hvernig gangi
á körfuboltaheimilinu.
Þau hafa verið saman síðan í byrjun
árs 2009 en þau kynntust í gegnum
körfuboltann. „Sýn okkar á lífið var
nákvæmlega sú sama, ég hef aldrei
hitt einhvern sem maður deilir
algerlega sömu skoðunum með,“
segir Petrúnella. Bæði hafa þau lagt
hönd á sama námið en Jóhann er
þessa stundina við nám í íþrótta-
fræði, en Petrúnella hefur lokið
því námi. Það er fleira sem parið á
sameiginlegt en þau elska bæði að
njóta sín í sveitinni á Íslandi og þau
fylgjast bæði með flestum íþróttum.
„Við förum á völlinn þegar fótbolt-
inn er í gangi og svo reynum við að
horfa á NBA körfuboltann saman,
hún sefur reyndar meðan ég fylgist
með,“ segir Jóhann í léttum dúr.
Allur dagurinn snýst oft um körfu-
boltann og þau ræða ekki mikið
um boltann innan veggja heim-
ilisins. „Það er samt mjög gott að
hafa einhvern sem hefur skilning
á því sem maður er að ganga í
gegnum til að ræða við. Ef maður
væri að ræða þessa hluti við aðila
sem hefði ekki stundað íþróttir að
ráði þá myndi maður ekki kannski
mæta sama skilningi,“ segir Jóhann
og Petrúnella tekur undir það. Oft
þurfa þau ekki mörg orð til þess
að ræða þessi mál enda þekkja þau
reynslu hvors annars vel.
Hugsaði um að hætta
Petrúnella tók sér frí frá körfubolt-
anum meðan Sigurbergur litli var
að koma í heiminn og í raun var
hún ekki viss hvort hún ætlaði
sér að byrja aftur í boltanum. „Ég
byrjaði aftur að sprikla síðasta
sumar með Njarðvíkingum,“ segir
Petrúnella en upphaflega stóð til
að þau Jóhann myndu bæði leika
með Grindavík enda fluttu þau bú-
ferlum þangað frá Innri-Njarðvík.
Lið Grindvíkinga dróg sig svo úr
keppni eftir að parið hafði ákveðið
að færa sig um set. „Þá var ég jafn-
vel að spá í því að leggja skóna á
hilluna eða taka mér frí frá þessu.
Svo var ég að hugsa um að vera í 1.
deild eftir að Grindvíkingar ákváðu
að vera þar, ég hreinlega snerist í
hringi,“ segir Petrúnella.
Hvernig kemur Njarðvík svo til
sögunnar?
„Ég er metnaðarfull og sá mig ekki
alveg spila í 1. deildinni. Sverrir Þór
þjálfari Njarðvíkinga var líka búinn
að sýna mér áhuga áður en ég varð
ólétt. Ég hafði því samband við
hann og mig langaði að prófa hvort
ég gæti þetta ennþá eftir langa pásu.
Svo var þetta bara gaman og maður
var ekki alveg tilbúinn til þess að
hætta,“ en þó viðurkennir Petr-
únella að það hefði verið kominn
smá leiði í hana. Þessi pása hafi því
hugsanlega gert henni gott.
Meikar engan sens
Nú var komin upp sú staða að þau
Jóhann og Petrúnella voru að leika
með uppeldisfélagi hvors annars og
það verður óneitanlega að teljast
sérstakt. „Við vorum mikið búin að
ræða hvernig við ætluðum að tækla
þetta, á endanum var ákveðið að
flytja í Grindavík og spila þar. Svo
ákveður Petrúnella að spila ekki
í 1. deild og svo þróast þetta bara
svona,“ segir Jóhann og bætir við.
„Svo þegar staðan var orðin þessi,
þá horfum við bara á hvort annað
hér eitt kvöldið og hugsum: „Þetta
meikar engan sens. Fyrir okkur þá
þróast þetta bara hægt og rólega og
endar bara svona,“ segir Jóhann.
„Eins miklar tilviljanir og þetta hafa
verið, að við skulum vera á þessum
stað sem við erum á núna, með
alla þessa titla, er eiginlega bara
fáranlegt,“ heldur Jóhann áfram, en
alls komu 6 gullverðlaun í hús hjá
þessu glæsilega pari á árinu.
Jóhann og Grindvíkingar sigruðu
Deildarmeistaratitilinn, fyrirtækja-
bikarinn, meistara meistaranna
og að lokum sjálfan Íslandsmeist-
aratitilinn. Jóhann var svo kjörinn
besti leikmaður Grindvíkinga á
lokahófi félagsins.
Petrúnel la og Njarðvíkingar
lönduðu bæði bikar- og Íslands-
meistaratitlum þetta árið og var
Petrúnella einnig valin best hjá
Njarðvíkingum á lokahófinu. Auk
þess var hún valin í úrvalslið seinni
umferðar Íslandsmótsins. Þau eru
því bestu leikmenn, bestu liða
landsins um þessar mundir.
Er ekkert skrítið að vera nýfarin
úr græna búningnum, skella sér í
þann gula og fara svo að styðja Jóa
í baráttunni?
„Jú, reyndar komst ég ekki á marga
leiki. Þegar ég er í fríi þá vil ég oft-
ast vera bara heima með litla og
ég horfði oft á leiki í sjónvarpinu.
Maður er svo sem vanur að styðja
Grindavík, ég segi það nú ekki,“
segir Petrúnella og Jóhann skýtur
því að, að það hafi verið skrýtið að
mæta í stúkuna í Njarðvík til þess
að styðja hana. „Það var sérstaklega
skrýtið þegar við vorum nýbúnir að
slá Njarðvíkinga út í fyrstu umferð
og maður hafði fengið að heyra það
úr stúkunni frá ákveðnu fólki, svo
er maður mættur stuttu síðar að
hvetja Njarðvíkurliðið áfram ásamt
þessu fólki.“ Jóhann telur að þetta
sýni bara enn frekar að þetta sé allt
skilið eftir á vellinum.
Af hverju ferðu ekki
í Keflavík?
Petrúnellu óraði ekki fyrir því að
hún ætti eftir að standa uppi sem
tvöfaldur meistari eftir árið en
Njarðvíkingum var ekki spá góðu
gengi. „Fólk hafði það á orði að
fyrst ég ætlaði nú að standa í því
að keyra á milli, af hverju ég færi
þá ekki bara í Keflavík, þar væri
möguleik á því að vinna titla. Svo
fékk maður að heyra það líka að
maður væri búinn að vera í langri
pásu og fengi því kannski ekki að
spila margar mínútur hjá Njarð-
vík.“ Þetta segir Petrúnella að hafi
drifið sig áfram frekar en annað.
„Ég hefði nú hlegið að henni síð-
asta sumar ef hún hefði sagst ætla
að vinna tvöfalt með Njarðvík, en
svo sá maður bara stígandann í
þeirra liði og hvert stefndi,“ segir
Jóhann.
Stútfull af sjálfstrausti
„Sverrir er alveg rosalega góður
þjálfari og ég hef náð þvílíkum ár-
angri hjá honum,“ segir Petrúnella
en Sverrir er annálaður varnarjaxl
og það er Petrúnella sannarlega
Petrúnella Skúladóttir og Jó-hann Árni Ólafsson eru að
mörgu leyti ósköp venjulegt par
þegar fljótt er á litið. Þegar betur
er að gáð er þó margt áhugavert
sem kemur í ljós en þau eru bæði
nýlega búin að ljúka glæsilegu
tímabili með liðum sínum í körfu-
boltanum í efstu deild á Íslandi.
Petrúnella með Njarðvíkingum
og Jóhann með Grindvíkingum.
Þar byrjar þetta þó fyrst að verða
áhugavert. Petrúnella er nefni-
lega fædd og uppalin í Grinda-
vík og hefur alla sína tíð leikið í
gulu treyjunni. Jóhann Árni er
svo aftur á móti Njarðvíkingur
og hefur verið afar sigursæll með
þeim grænklæddu. Þau leika því
þessa stundina með uppeldis-
félögum hvors annars. Þau eru
á besta aldri, Jóhann er 25 ára
og Petrúnella 26 og saman eiga
þau saman einn strák, Sigurberg,
sem er rúmlega eins árs. Eyþór
Sæmundsson blaðamaður Víkurf-
rétta kíkti í heimsókn til Grinda-
víkur en þar hafa þau komið sér
notalega fyrir.
Körfuboltaparið Petrúnella og Jóhann Árni unnu saman sex titla í vetur
vf.is