Víkurfréttir - 10.05.2012, Síða 13
13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 10. MAÍ 2012
líka. „Það eru ekki allir sem taka
eftir þeim sem eru góðir í vörninni
og að að gera aðra hluti en að skora.
Sverrir tekur eftir þessu og því fær
maður að spila þrátt fyrir að maður
sé ekki alveg að setja niður skotin
sín,“ bætir hún við.
Jóhann segir að hann sjái vel hvað
Petrúnella hafi öðlast mikið sjálfs-
traust undir stjórn Sverris. „Hún
hikaði ekki við að láta vaða af
hvaða færi sem er þrátt fyrir að
hafa kannski ekki hitt úr nokkrum
skotum í röð, svoleiðis gerir maður
nema vera stútfullur af sjálfstrausti.“
Petrúnella segist aldrei hafa verið
mikið að spá í hvar þriggja stiga
línan sé. „Ég var í barneignarfríi
þegar línan var færð utar og ég fann
ekki eins mikið fyrir því og hinar
kannski.“
Jóhann var sjálfur í smávægilegu
basli í upphafi tímabils þar sem
hann var að reyna að fóta sig í
ógnarsterku, nýju liði. „Þetta var
töluvert öðruvísi sóknarleikur sem
við vorum að spila í vetur, það tók
bara töluverðan tíma að venjast því.
Skotin sem ég var að fá voru öðru-
vísi en ég hafði vanist og svo var
maður bara að einbeita sér að því
að tolla inni á vellinum. Það eru
margir góðir leikmenn í liðinu og
lítið pláss fyrir mistök. Þetta tók
sinn tíma en ég held að ég hafi náð
að aðlagast á endanum,“ segir Jó-
hann.
Petrúnella er jafnvel á því að þetta
sé hennar besta tímabil að mörgu
leyti þó svo að áður hafi gengið vel.
Jóhann segir að þetta sé líklega hans
besta tímabil varnarlega séð. „Ég
skil leikinn betur en áður. Þó svo að
tölfræðin segi það að ég hafi áður
skilað betri tölum. Maður þurfti
að finna leið til þess að vera inn á
vellinum, Helgi Jónas lagði mikla
áherslu á varnarleik og þannig fékk
maður að spila mikið, ef maður
lagði sig fram í varnarleiknum.“
Petrúnella gæti haldið
á heimaslóðir
Varðandi framhald þeirra í körfu-
boltanum þá gætu mögulega orðið
breytingar á þeirra högum, enda
ekkert gefið í þessum bransa. Að
öllu óbreyttu verður Jóhann áfram
í Grindavík enda samdi hann til
þriggja ára við félagið. „Ég veit
ekkert hvað verður núna,“ segir
Petrúnella. „Grindavík er komið
aftur í efstu deild og það er aldrei
að vita hvernig það fer. Ég tel að
það hefði kannski ekki verði nein
spurning um að koma aftur heim ef
ekki hefði gengið svona vel í Njarð-
vík. Eftir þessa titla í vetur þá er
það ekki jafn sjálfsagt mál að koma
heim eins og maður hefði haldið.
Maður vill þó ekki koma hingað
nema það sé búið að manna liðið,
að þessar heimastelpur komi til
baka. Ennþá er þó óvissa með hóp-
inn, því er erfitt að taka ákvörðun
um þetta í dag,“ segir Petrúnella en
fjöldi fyrrum leikmanna Grinda-
víkur í kvennakörfunni hefur leitað
annað en gætu núna hugsanlega
snúið aftur að mati Petrúnellu.
Erfitt að yfirgefa Njarðvík
Hvað f innst Jóhanni um þá
ákvörðun sína um að ganga til liðs
við Grindvíkinga fyrir þetta tíma-
bil? „Mér finnst hún frábær núna.
Maður skoðaði þetta vel á sínum
tíma og ákvörðunin var virkilega
erfið. Það var erfiðast að ákveða
að yfirgefa Njarðvík, sérstaklega
á tímum þar sem uppbygging var
að fara af stað. Mér fannst ég ekki
alveg vera á aldri til þess, ég vildi
fara að vinna titla og metnaðurinn
var því í sitt hvora áttina. Þrátt fyrir
að báðir aðilar skildu sjónarmið
hvors annars.“
Bjóst ekki við að komast
aftur í landsliðið
Petrúnella var á dögunum valinn í
landslið Íslands á ný en framundan
er Norðurlandamót í lok maí. „Ég
bjóst alls ekki við því. Ég var nánast
alveg komin með nóg núna í lok
tímabils enda búið að vera mikið
púsl. Jói er auðvitað búinn með Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18
Akureyri Furuvöllum 15. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-14
Húsavík Garðarsbraut 50. Opið virka daga kl. 8-18
Vestmannaeyjar Flötum 29. Opið virka daga kl. 8-18
ARGES slípirokkur HDA 436 1050W
7.990,- ARGES HDA 310 SDS höggborvél 850W
12.990,-
Slípirokkur HDD432 800W
125mm DIY
4.790,-
HDD1106 580W stingsög DIY
4.690,-
5.990,-
SPANDY heimilisryksugan
• 1600W
• afar hljóðlát
• mikill sogkraftur > 18KPA
• Hepa filter
• margnota poki
DRIVE ryksuga í bílskúrinn
• 1200W
• 20 lítra
• sogkraftur > 16KPA
• fjöldi fylgihluta
6.990,-
Kapalkefli 10 mtr
2.990,-
15 metra rafmagnssnúra
2.995,-
DURATOOL
Rafhlöðuborvél 18V
2.990,-
Flísasög 800W,
sagar 52 cm
19.900,-.
1400W, 300 L/mín
DRIVE háþrýstidæla Max
bar 105
7.990,-
DRIVE fjölnotatæki 180W
4.590,-
DRIVE flísasög, 600W
7.990,-
DASH skrúfvél Li-Ion rafhlaða
3,6V m/bitum verð
2.290,-
Rafhlöðuborvél /skrúfvél
HDD3213 18V
8.990,-
NOVA PRO höggborvél stiglaus hraði.
2 rafhlöður, Li-Ion 14,4V með tösku
13.900,-
DASH PRO höggborvél stiglaus hraði
2 rafhlöður 18V 1,5Ah
15.900,-
GMC 14,4V 1,2Ah með aukaraf-
hlöðu, stiglaus hraði, BMC taska
3.590,-
ARGES rafhlöðuborvél
með höggi, HDA2544
17.900,-
tímabilið og hann er svo góður
með strákinn, alveg rosalega flottur
pabbi. Þannig að ég lét slag standa
og vildi ekki missa af þessu tæki-
færi,“ segir Petrúnella en Jóhann
segist aftur á móti lítið vita um
gang mála hjá karlaliðinu. „Maður
fékk smá spark í rassinn eftir að
hafa ekki komist í lokahóp síðasta
sumar, því fór maður bara að vinna
í sínum málum.“
Klisjurnar eru sannar
Lífstíll þeirra breyttist ekki mikið
við það þegar Sigurbergur kom í
heiminn enda eru þau rólyndis-
fólk að eðlisfari sem lifir heilbrigðu
lífi íþróttafólks. „Allar klisjur hvað
varðar nýja sýn á lífið og allt það
þegar barnið kemur, þær eru bara
sannar,“ segir Jóhann blátt áfram.
Litla fjölskyldan er alsæl með lífið í
Grindavík eins og áður segir og þau
segja það ekki standa til að flytja
þaðan á næstunni.
Minna um skyndibita
í Grindavík
Er eins að búa í Grindavík og
Njarðvík?
„Það er margt öðruvísi,“ segir Jó-
hann og þau hlægja bæði. „Stærsti
munurinn fyrir mig er að allar
búðir loka fyrr, en ég var vanur að
borða stundum á kvöldin. Ég var
soldið í skyndibitanum og þetta
er því bara af hinu góða,“ segir Jó-
hann. Petrúnella segir að hún hafi
ekki alveg upplifað það að búa í
Njarðvík en þau bjuggu um tveggja
ára skeið í Innri-Njarðvík, henni
finnst þessir staðir töluvert ólíkir.
Æfingar í körfuboltanum eru
oftast á kvöldin og því er sjaldan
kvöldmatur á heimilinu þeirra við
hraunið í Grindavík. Það mætti
kannski segja sem svo að Petrúnella
og Jóhann séu í kvöldvinnu. „Við
kunnum að meta tímann á kvöldin
þegar það er frí og litli sofnar yfir
uppáhalds teiknimyndinni sinni
í sófanum hjá okkur. Svona hlutir
gefa manni meira þegar maður er
orðinn foreldri. Við erum líka tölu-
vert dugleg að elda saman þegar
tími gefst til.“
Bæði hafa þau verið á fullu í
körfuboltanum frá unga aldri og
alltaf með sama liðinu, að undan-
skildu ári þegar Jóhann var í at-
vinnumennsku í Þýskalandi. Telja
þau nauðsynlegt að skipta um
umhverfi? „Það er kannski ekk-
ert nauðsynlegt en það hentar
sumum og öðrum ekki. Fyrir mér
var gott að fá nýjan þjálfara,“ segir
Jóhann en hann segir Helga Jónas
þjálfara Grindvíkinga vera ólíkan
þeim þjálfurum sem hann hefur
kynnst áður. „Ég held að það hefðu
ekki margir þjálfarar getað haldið
þessum mannskap á tánum.“
En einhver rígur á milli Njarðvík-
inga og Grindvíkinga?
„Nei,“ segja þau bæði í kór. „Liðin
eru á ólíkum stöðum, bæði í karla
og kvennakörfunni en ef að það
er einhver rígur þá held ég að það
risti ekkert svakalega djúpt,“ segir
Jóhann og Petrúnella tekur undir
það.
Að lokum vilja skötuhjúin þakka
sínum nánustu fyrir aðstoðina.
„Við hefðum ekki náð svona ár-
angri án þeirra og ættum ekki öll
þessi verðlaun ef við ættum ekki
svona góða að,“ segir Petrúnella.