Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.05.2012, Page 18

Víkurfréttir - 10.05.2012, Page 18
18 FIMMTUDAGURINN 10. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR Holtsgata 56, Reykjanesbæ, sími 421 2000 ATVINNA Allt hreint óskar eftir að ráða starfskraft í ýmis ræsti / hreingerningar störf. Vinnutími 08:00 til 17:00 virka daga. Einnig gæti verið um aukvinnu að ræða utan þess tíma. Hæfniskröfur: Íslenska skilyrði (Enska kostur) Þarf að geta unnið sjálfstætt Góð mannleg samskipti Reynsla við ræsti / hreingerningarstörf Áhugasamir sendi umsókn með persónuupplýsingum og ferilskrá á halldor@allthreint.is Sönghópur Suðurnesja ætla að enda starfsveturinn með því að fá góða gesti í heimsókn og halda með þeim tónleika á laugar- dag í Kirkjulundi í Keflavík. Þá mun Brokkkórinn sem einnig er undir stjórn og undirleiks Kefl- víkingsins Magnúsar Kjartans- sonar koma fram með Sönghópi Suðurnesja kl. 17 á laugardag. „Þetta er svona slútt á veturinn hjá þessum tveimur kórum en Suður- nesjakórinn kom í heimsókn í fyrra og er núna að bjóða hestafólkinu úr Brokkkórnum í menningarferð í bítlabæinn og helsta nágrenni. Ég ætla að fara í kynningarferð og með vönum leiðsögumanni um svæðið með gestina um Keflavík og Keflavíkurflugvöll en þeir hefa sér- staklega beðið um að fá að fara að fæðingarstað Ellýjar og Vilhjálms í Höfnum,“ sagði Magnús Kjart- ansson en hann er einn af gull- drengjunum úr popplandsliðinu frá Suðurnesjum. „Það er svolítið sértakt hvernig hugarfar margra utan Suðurnesja er til svæðisins. Það er umhugsunar- efni en ég nota öll tækifæri sem ég fæ til að segja fólki að Reykjanes- skaginn sé ósköp svipaður og aðrir, með öflugri menningu, íþróttum og góðu mannlífi og þar sé gott að búa. Erfiðleikar í atvinnulífinu um þessar mundir er önnur saga Til stendur að halda heljarinnar tón- listarhátíð í miðbæ Reykja- nesbæjar dagana 7.-10. júní næst- komandi. Flestir þekktustu og vinsælustu tón- listarmenn lands- ins hafa þegar boðað komu sína á hátíðina sem skipuleggjendur segjast ætla að halda árlega. Ólafur Geir Jónsson og Pálmi Þór Erlingsson eru forsprakkar hátíðarinnar og hafa þeir fengið Smára Guðmundsson úr hljómsveitinni Klassart til liðs við sig við undirbúning þessarar veigamiklu hátíðar sem ber nafnið Keflavík Music Festival. Yfir 100 atriði verða á dagskrá og meðal þeirra sem hafa þegar verið kynntir til leiks eru Retro Stefson, Úlfur Úlfur, Raggi Bjarna, Dikta, Sól- stafir, Jón Jónsson og Valdimar. Óli Geir sagði í spjalli við Víkurfréttir að hugmyndin hafi kviknað í kjölfar þess að bæði Airwaives og Aldrei fór ég Suður hátíðirnar hafi slegið rækilega í gegn og honum fannst vanta svona viðburð í bítlabæinn. „Þetta er búið að sitja í mér í 1-2 ár. Þar sem þetta er mikill tónlistarbær þá fannst mér vanta eitthvern stóran tónlistar- viðburð hér í bæ eins og þessar hátíðir,“ segir Óli en honum fannst skrítið að engin slík hátíð væri hér í aðal tónlistarbænum. „Í fyrstu átti þetta nú bara að vera mjög lítil hátíð, hugsuð út frá einum skemmtstað. Svo loks þegar maður fór að teikna þetta upp og skipuleggja þá vildi maður alltaf hafa þetta stærra og stærra, þetta vindur alltaf uppá sig. Maður verður líka að passa að fara ekki framúr sér og hafa þetta of stórt þannig ég ákvað að taka bara staðina í miðbæ Keflavíkur og einblína á þá til þess að fá menningu í miðbæinn og rölt á milli staða,“ segir Óli. Hátíðin fer fram í miðbæ Reykjanesbæjar á helstu skemmtistöðum bæjarins. Versl- anir, veitingarhús og bæjarfélagið verða með í stemningunni en öll flóran af tónlistarfólki kemur fram, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Óli segir þetta vera gullið tækifæri fyrir nýja og óþekkta tónlistar- snillinga til að koma sér á fram- færi og hefur fjöldi hljómsveita sett sig í sambandi við þá félaga. Verið er að vinna í málum varð- andi gistingu þar sem hótel eru jafnan mikið bókuð á þessum tíma en Óli segir að boðið verði upp á rútuferðir alla dagana frá Reykjavík. En hvað mun kosta á svona hátíð? „Það er eitthvað sem við erum búnir að hugsa mikið um og höfum leitað til margra varðandi það. Ef þú skoðar t.d. aðrar hátíðir eins og Airwaves, Bestu Útihátíðina og Þjóðhátíð, þá kostar armband þar milli 10-20 þúsund krónur. Við ætlum alls ekki að fara í þann pakka, við verðum mun ódýrari en það,“ segir Óli en lokaverð er ekki komið á hreint. Verður þetta eingöngu á kvöldin eða daginn líka? „Upprunalega átti þetta bara að vera á kvöldin en núna erum við með alls 100 hljómsveitir/ tónlistarmenn sem eru að koma fram þannig að við ætlum að reyna fá þá til þess að troða upp inn í búðunum líka yfir daginn. Þetta er eitthvað sem við erum að vinna í. Eins ætla Klassart og Valdimar að taka að sér að fara í alla leikskólana hér í bæ, sem eru 10 talsins. Þar ætla þau að syngja fyrir krakkana og foreldra, það fannst okkur mjög skemmtileg hugmynd.“ Nú eru flestir vinsælustu tón- listarmenn landsins búnir að bóka sig, var ekkert erfitt að fá allt þetta fólk til að koma? „Ég er búin að halda allskonar viðburði víðsvegar um landið en aldrei eins stóra í sniðum og þennan. En sú reynsla sem maður hefur frá því hjálpaði mikið til þegar kom að þessu verkefni. Ég þekki marga af þeim sem eru að koma fram, fékk þá með mér í lið við þessa hátíð og þaðan fór boltinn að rúlla. Það er samt auðvitað hellings vinna á bakvið það að fá öll þessi bönd. Þessir snilldar tónlistarmenn sem eru að koma elskuðu hug- myndina um Keflavík Music Festival, allir svöruðu játandi.“ Hvers vegna vildirðu halda þetta hérna í Reykjanesbæ? „Flottasta tónlistarfólkið kemur héðan, það er bara þannig. Hljómar, Hjálmar, Valdimar, Of Monsters and Men, Klassart og lengi gæti ég haldið áfram, það bara vantaði svona hátíð í bæinn, það er önnur ástæðan. Ein ástæðan er einfaldlega sú að ég er nú héðan, þekki vel til hérna og það er auðveldara og skemmtilegra að gera þetta hér á heimavelli,“ segir Óli Geir. Allar nánari upplýsingar um þessa spennandi hátíð má nálgast á heimasíðu hátíðarinnar - www.keflavikmusicfestival.com Ein stærsta tónlistarhátíð landsins í Reykjanesbæ - Óla Geir fannst vanta svona hátíð í Bítlabæinn ›› Sönghópur Suðurnesja og Brokkkórinn með tónleika: KeflavíKurhjartað alltaf á sínum stað -„Lofa frábærum tónleikum,“ segir Magnús Kjartansson, stjórnandi kóranna TILBOÐ EÐA TÍMAVINNA ÖLL ALMENN MÁLNINGARÞJÓNUSTA Meðferðarstofa Sólveigar Þórðardóttur / Hringbraut 108, Reykjanesbæ Húsið okkar (gamla K-húsið) / Sími: 864 1919 / Móttaka í Grindavík eftir samkomulagi Meðferðir í hugrænni atferlismeðferð Tek einstaklinga í hugræna atferlismeðferð og dáleiðslu við kvíða, þunglyndi og til lífstílsbreytinga. Ráðgjöf og meðferð við kvíða, þunglyndi og streitu. Sérstök meðferð vegna erfiðrar fæðingarupplifunar og vanlíðan tengdri fæðingarferlinu. og munu vonandi líða hjá fyrr en síðar,“ segir Magnús. Magnús stýrir fleiri kórum en þessum tveimur en hann segist alltaf hlakka til að koma vikulega til Keflavíkur á söngæfingu hjá Sönghópi Suðurnesja. Hann lofar frábærri skemmtun á laugardaginn þegar kórarnir sameinast. „Gest- irnir úr brokkkórunum eru eins og nafnið gefur til kynna hestafólk og það hefur mjög gaman af söng en það sama má auðvitað segja um Suðurnesjafólkið mitt. Þetta verða létt og skemmtileg lög, söngperlur sem allir hafa gaman af. Það er ekki amalegt að vera í Kirkjulundi því þar er einstaklega góður hljómur og gaman að mæta með 50-60 manna kór þangað.“ Keflavíkurhjartað er alltaf á sínum stað hjá Magga Kjartans og hann þreytist sjaldan á því að halda uppi merkjum Suðurnesja. Hann er ákaflega stoltur af nýjustu tónlistar- stjörnunum sem koma úr bítla- bænum og nefnir þar Valdimar, Of Monsters and Men og Hjálma. Svo þarf hann að venjast því að fá olnbogaskot frá Hafnfirðingum á heimaleikjum FH í knattspyrnunni en Magnús hefur búið í Hafnar- firði hálfa ævina og flutti þangað frá Keflavík eftir unglingsárin. „Já, þeir bjóða mér í FH-stúkuna en svo þegar ég stekk upp eins og korktappi þegar Keflavík skorar þá koma olnbogaskotin. En það er í lagi, ég þoli þau alveg,“ segir Maggi og hlær. Tónleikarni á laugardaginn verða sem fyrr segir kl. 17:00 í Kirkju- lundi, safnaðarheimili Keflavíkur- kirkju. Aðgangseyrir er kr. 1000.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.