Víkurfréttir - 10.05.2012, Page 24
Ég fer í fríið
Það kom að því loksins. Ég bókaði sumarfríið. Svakalega erfitt að komast að einhverri niðurstöðu en þegar hún lá
fyrir, var ekki aftur snúið. Ég ætla að sópa stéttina í sumar-
húsinu á Spáni. Í maí. Stressið að bóka ferðina var svakalegt.
Sveittur í lófunum við tilhugsunina. Alls konar upplýsingar
sem maður þarf að gefa upp. Það munaði rúmum þrjátíu
þremur prósentum á flugmiðanum á milli flugfélaga. Hvurs-
lags er þetta eiginlega, þrír rassar í sæti til Spáníó. Ég valdi
það ódýrasta fyrir hópinn enda þýddi það einn frían rass. Kvöldflug út og
næturflug tilbaka. Slétt sama. Flott að fljúga að kveldi eða nóttu. Svefn. Eða
gin og tónik. Annað hvort.
Nú þarf ég að huga að skyrtunum. Stutterma. Þær bíða mín frá því síðast. Beint í þvottavélina. Strauja. Og stuttbuxurnar. Passa. Ennþá. Rauðar.
Ég skoppa eins og smákrakki við tilhugsunina að láta mig fljóta í sjónum
sægræna. Innan um heimamenn, sem koma með nesti að heiman. Innan um
Breta með bjór af barnum. Strandbarnum. „Where‘re you from?“ Elska þetta
allt. Ströndin slétt, sjórinn heitur, barinn svalur, hvíldin sæl! Ætla að njóta
þess að liggja með tærnar upp í loft og láta svalan sunnan blæ leika um mig
á meðan ég hugsa heim til ykkar í vinnunni. Á meðan mun sangrían söngla
hérna megin. Af og til.
Stressaður að koma öllu haganlega fyrir í vinnunni. Geta þau án mín verið allan þennan tíma? Blessunarlega fullt af hæfu fólki á mínum vinnustað.
Andskotinn. Hringja í framkvæmdastjórann og fá leyfi. Krosslegg fingur að
hún taki vel í þetta þó fyrirvarinn sé skammur. Nota gamalt og ómótstæði-
legt ráð. Er að fara með tengdó í fríið, hún er alveg hætt að komast eitthvað
án mín. Treystir eiginlega alveg á okkur! Já, farðu bara, er þetta ekki bara vika
eða tvær? Jú, eiginlega, en sú gamla segist þurfa þrjár. Að minnsta kosti. Ég
læt hana stjórna því. Er það ekki? Ég verð í sambandi fljótlega.
Pantaði þriggja vikna ferð. Þarf tíma til að vökva sítrónutréð í garðinum. Verð djöfulli flottur á stéttinni nýsópuðu, með Arnald í annari hendi og
Kaffitár í hinni. Á meðan geta mæðgurnar skroppið á markaðinn á nítíu
og eitt módelinu af Renault. Krúttlegt. Tek vel á móti þeim. Grilla eitthvað
svakalega gott. Legg mig allan fram. Með sól í hjarta.
vf.is
Fimmtudagurinn 10. maí 2012 • 19. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr KOMDU
Í GOLF
Í LEIRUNNI
NÝJAR
MOTTUR Á
ÆFINGASVÆÐINU.
OPIÐ TIL 22:00
JÓEL 6 HOLU
ÆFINGA-
VÖLLUR HENTAR
VEL FYRIR
BYRJENDUR
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
Kynntu þér hvað fólkið í landinu
hefur að segja um frumvörpin:
Landsbankinn áætlar að
fyrirtæki með samtals yfir
4000 starfsmenn fari í þrot*
*Samkvæmt áliti Landsbankans til atvinnuveganefndar
Alþingis á frumvörpum um fiskveiðistjórnunarkerfið.
Ein af fjölmörgum góðum ástæðum fyrir nauðsyn þess
að eiga samráð við aðila í sjávarútvegi og vanda til verka
við breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Kynntu þér málið.
Vélsmiðja Grindavíkur
Nettó, Grindavík
Besa
Martak vélsmiðja
Jón og Margeir flutningar
GB Hraðflutningar
Tæknivík ehf.
Bílageirinn
Stólpavík, saltsala
Einhamar
Hérastubbur bakari
Vísir
Optimal á Íslandi
Stakkavík
Þorbjörn
Verkalýðsfélag Grindavíkur
Marver
Sigurður Halldórsson
rafvirkjameistari
Flutningaskipið Fernanda strandaði framan við Sand-
gerðishöfn að morgni sl. laugar-
dags þegar skipsstjórinn náði
ekki að taka beygju inn í höfnina.
Skipið sat fast á grynningum þar
til síðdegis sama dag þegar það
flaut upp á flóðinu.
Skipverjar sluppu svo fyrir horn á
þriðjudaginn þegar halda átti úr
höfn í Sandgerði með fullfermi af
minkafóðri frá Skinnfiski. Þá kom
í ljós að stýrið var laust á skipinu
og því var kallaður út viðgerðar-
flokkur til að festa stýrið á skipið að
nýju. Loftmyndina tók Landhelgis-
gæslan en myndina hér til hliðar
tók Hilmar Bragi á laugardaginn.
Strand við Sandgerði