Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.10.2012, Page 14

Víkurfréttir - 04.10.2012, Page 14
fimmtudagurinn 4. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR14 SÚLAN 2012 MENNINGARVERÐLAUN REYKJANESBÆJAR Menningarráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefn- ingum vegna Súlunnar, menningarverðlauna Reykja- nesbæjar 2012.  Veittar eru ein eða tvær viðurkenn- ingar hverju sinni, aðra viðurkenninguna fær einstaklingur/hópur sem unnið hefur vel að menn- ingarmálum í bænum og hina fær fyrirtæki sem stutt hefur við menningarlíf bæjarins með fjárframlögum eða með öðrum hætti.   Tilnefningum skal skilað á skrifstofu menningarsviðs, Tjarnargötu 12 eða á netfangið: sulan@reykjanesbaer.is fyrir 18. október næstkomandi.  Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára má finna á vefnum reykjanesbaer.is. Menningarráð Reykjanesbæjar Þjónustuver bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar verður lokað frá kl. 12:00 nk. föstudag 5. október vegna vinnuferðar starfsfólks. TILKYNNING FRÁ ÞJÓNUSTUVERI REYKJANESBÆJAR EKUR ÞÚ VARLEGA? Ökumenn sýnum sérstaka varúð við skóla og skóla- leiðir og munum 30 km hámarkshraða. Sýnum tillitssemi – ökum varlega. 30 Magnús Ágústsson, Guðfinna E. Guðmundsdóttir, Kjartan Egilsson, Ragnar Már Kjartansson, Hlynur Örn Kjartansson, Tara Pétursdóttir. Ragnar Ágústsson, útgerðarmaður og vélstjóri, Halakoti, Vatnleysuströnd, Ástkær bróðir minn og frændi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann 25. september. Hann verður jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 5. október kl. 15:00. Hólmar Magnússon, Anna Steinunn Hólmarsdóttir, Björn Briem, Ingibjörg Lilja Hólmarsdóttir, Sigurgeir Ásgeirsson, Ásberg Hólmarsson, barnabörn, Anna Karólína Gustafsdóttir. Guðrún Rósa Guðmundsdóttir, Vesturgötu 15, Keflavík, Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og dóttir, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þriðjudaginn 2. október. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, þriðjudaginn 9. október kl. 13:00. REYKJANESBÆR Þriggja ára fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2012-2015 var samþykkt á bæjarstjórnar- fundi sl. þriðjudag með atkvæðum meirihluta sjálfstæðismanna sem segir eignastöðu bæjarins góða og framlegð með því besta hjá bæjar- félögum á landinu. Samfylking sat hjá og segir stöðuna krappa og ekki gert ráð fyrir hallarekstri Fasteignar. Framsókn greiddi atkvæði á móti og gagnrýndi að minnihlutanum hafi verið haldið utan við áætlanagerðina. Bókun sjálfstæðismanna: Þriggja ára áætlun sem hér er lögð fram gerir ráð fyrir áframhaldandi góðum rekstri bæjarins og lækkun skulda, þrátt fyrir að varlega sé áætlað með tekjur til bæjarfélagsins af atvinnuverkefnum. Niðurstöður ársreikninga 2011 og það sem af er þessu ári sýna að rekstur bæjar- sjóðs skilar góðri framlegð og með þeirri hæstu sem sveitarfélög skila. Reykjanesbær er einnig með eina sterkustu eignastöðu á landinu en að sama skapi eru skuldir og skuld- bindingar mjög háar. Stærsta verk- efnið framundan er að ná að koma atvinnulífinu í gang og leita leiða til að lækka skuldir Reykjanesbæjar gagnvart rekstri hafna. Sú mikla fjárfesting sem lagt hefur verið í til að skapa grunn að sterku atvinnu- lífi mun skila sveitarfélaginu stór- auknum tekjum þegar fram í sækir. Með því móti hækka tekjur og unnt verður að lækka skuldakostnað og greiða niður skuldir. Bókun Framsóknar: Vegna umræðu og afgreiðslu þriggja ára fjárhagsáætlunar Reykjanes- bæjar. Umræða sem samkvæmt n Þriggja ára fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2012-2015 samþykkt: Meirihlutinn segir eignastöðu sterka og framlegð góða -kröpp staða segir Samfylking. Meira skylt við óskhyggju, segir Framsókn. sveitarstjórnarlögum hefði átt að fara fram fyrir níu mánuðum jafnhliða fjárhagsáætlun fyrir yfir- standandi ár. Nú þremur mánuðum áður en fjárhagsáætlun fyrir 2013 á að taka gildi, eru engar líkur á að þriggja ára fjárhagsáætlunin stand- ist. Í áætluninni er ekki tekið tillit til mjög stórra þátta sem vitað er að muni hafa áhrif á fjárhag bæjarsjóðs til margra ára. Minnihlutanum var haldið utan við þá vinnu við áætlunargerðina. Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar til næstu þriggja ára á meira skylt við óskhyggju en áætlanagerð. Kristinn Jakobsson. Bókun Samfylkingarinnar: Á undanförnum árum hefur fjár- hagsstaða Reykjanesbæjar verið mjög slæm og því hefur verið gripið til þess ráðs að selja eignir til að grynnka á skuldum. Það er ansi dapurt að þurfa að selja eignir til að fjármagna rekstur og fjárfestingar, eignir sem hafa verið í eigu sveitar- félagsins til margra ára. Eignir fyrir á annan tug milljarða hafa verið seldar til að greiða skuldir og koma jafnvægi á rekstur bæjarins. Þrátt fyrir þessa miklu eignasölu þá stefnir í að bæjarsjóður muni skulda um 20 milljarða í lok árs 2012. Þrátt fyrir að tekjur hafi aukist verulega einkenndist síðasta 3ja ára áætlun meirihlutans á halla- rekstri auk sölu eigna. Þetta hefur EFS (Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga) staðfest nýlega með bréfi til Reykjanesbæjar. Nú hafa sjálfstæðismenn lagt fram 3ja ára fjárhagsáætlun Reykjanes- bæjar fyrir árin 2013 -2015 sem þó reyndar mun einungis gilda í fáeina mánuði vegna þess hversu seint hún er lögð fram. Í henni er gert ráð fyrir að bæjarsjóður skili afgangi og rekstur verði jákvæður næstu þrjú árin. Megin breytingarnar eru kannski þær að ekki er gert ráð fyrir eigna- sölu í þessari áætlun til að fjár- magna taprekstur. Þess í stað er gert ráð fyrir frestun vaxtagreiðslna í uppgjöri við Eignarhaldsfélagið Fasteign næstu þrjú árin og þannig tekst sjálfstæðismönnum að skila jákvæðri áætlun til 3ja ára. B-hluta fyrirtæki Reykjanesbæjar standa í erfiðum rekstri, hafnir Reykjanesbæjar sérstaklega, og ljóst að Reykjanesbær mun þurfa að leggja til fé á næstu árum. Ekki er gert ráð fyrir því í þessari áætlun en gera má ráð fyrir að þess þurfi auk væntanlegrar aðstoðar frá ríkisvaldinu. Þá standa Fasteignir Reykjanesbæjar illa og ljóst er að fjármagna þarf hallarekstur fyrri ára en ekki er heldur gert ráð fyrir því í 3ja ára áætlun sjálfstæðismanna. Allt ofangreint undirstrikar hver fjárhagsstaða bæjarsjóðs er kröpp en með miklu aðhaldi og engum nýjum framkvæmdum á næstu árum gæti tekist að halda fjár- hagslegu jafnvægi og ná tökum á rekstrarkostnaði. Friðjón Einarsson, Guðný Krist- jánsdóttir, Eysteinn Eyjólfsson. Árni Sigfússon lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd sjálfstæðismanna: Eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs er að styrkjast úr 20,8% árið 2011 í 35,7% á næsta ári. Þannig hefur eignar- staða bæjarins styrkst – öndvert við fullyrðingar Samfylkingarinnar í bókun. J Guðný Kristjánsdóttir, Eysteinn Eyjólfsson og Friðjón Einarsson.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.