Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.10.2012, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 04.10.2012, Qupperneq 16
fimmtudagurinn 4. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR16 Inga Sigrún sækist eftir 1. sæti hjá VG Inga Sigrún Atladóttir 41 árs forseti bæjarstjórnar í Sveitar- félaginu Vogum gefur kost á sér í 1. sæti Vinstrihreyf- ingarinnar - græns framboðs í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. „Ég er nýlega gengin til liðs við flokkinn en lengi hef ég starfað innan Samfylkingar. Ég yfirgaf Samfylkinguna vegna þess að framkvæmd stefnu flokksins tekur að mínu mati ekki mið af um- hverfissjónarmiðum og berst ekki gegn sterkri stöðu einokunar- og stórfyrirtækja á kostnað hagsmuna almennings. Þessi tvö sjónarmið tel ég vinna gegn þeim jöfnuði sem ég vil berjast fyrir í samfélaginu og var því ljóst að hugmyndafræðilega á ég samleið með Vinstrihreyf- ingunni - grænu framboði. Ég hef beitt mér í opinberri umræðu um umhverfismál síðan 2006 auk þess sem ég hef lengi barist fyrir gagnsæi og heiðarlegri leikreglum í samfélaginu. Ég hef starfað sem kennari og deildarstjóri og hef leitt fjölmörg þróunarverkefni sem snúa að aukinni víðsýni, um- hverfismálum og baráttu gegn einelti í skólakerfinu. Baráttan gegn leyndarhyggju og andfélags- legri samfélagslegri hegðun hefur mótað minn starfsferil og skrifaði ég m.a. meistararitgerð um stjór- nunarhætti sem stuðla að víðsýni og vinna gegn einelti. Ég hef verið oddviti H-lista, óháðra borgara í sveitarstjórn síðan 2006 og forseti bæjarstjórnar síðan 2010. Ég sit í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Vinnumarkaðsráði Suðurnesja og stjórn Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Greinar eftir mig sem birst hafa í fjölmiðlum og frekari upplýsingar um menntun og fyrri störf er að finna á síðunni http://ingasigr- unatladottir.blogspot.com/.“ Inga Sigrún Atladóttir STARFSMAÐUR ÓSKAST Meira í leiðinniWWW.N1.IS N1 óskar eftir að ráða áræðinn og þjónustulundaðan starfsmann til starfa í verslun félagsins í Reykjanesbæ. Í starfinu felst sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskipta- vina auk annarra tilfallandi verkefna í versluninni. Nánari upplýsingar veitir Stefán S. Briem, verslunarstjóri í síma 820 9014. Áhugasamir geta einnig sótt um starfið á www.n1.is ALMENNAR RAFLAGNIR Viðhald og breytingar á raflögnum Nýlagnir og endurnýjun raflagna Rafmagnstöflur Tölvu- og símalagnir Sjónvarpslagnir Dyrasímar Ekkert sem tilheyrir raflögnum og rafmagni er okkur óviðkomandi. Við leggjum áherslu á fagmannleg vinnubrögð og góða umgengni. Við komum á staðinn, gerum úttekt á raflögnum og ástandi þeirra og veitum ráðleggingar um framhaldið. Brekkustíg 16 - Reykjanesbæ - S: 612-5552, 611-5552 og 421-4426 Flóamarkaður Rauði kross Íslands Suðurnesjadeild Föstudaginn 5. október nk. verður haldinn flóamarkaður að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ, frá kl. 13:00 - 16:30. NÁMSKEIÐ FÉLAGS MYNDLISTAMANNA Í REYKJANESBÆ HAUST 2012 Málun og listasaga (draumar og stefnur) 8. okt - 26. nóv (8 kvöld) frá kl. 19:00 - 22:00. Kennt verður í Listasmiðjunni Keilisbraut 773 Ásbrú. Kennari: Guðmundur R Lúðvíksson. Grunnnámskeið í myndlist (fyrir byrjendur) 9. okt - 13. nóv (6 kvöld) frá kl. 19:00 - 22:00. Kennt verður í Svarta Pakkhúsinu Hafnargötu 2. Kennari: Helga Lára Haraldsdóttir. Málun (helgarnámskeið) 16:00 - 17:00 og 18. nóv. Kennt verður í Listasmiðjunni Keilisbraut 773 Ásbrú. Kennari: Bjarni Sigurbjörnsson. Allar skráningar á námskeið fara fram hjá Miðstöð símenntunar í síma 421-7500 og á mss.is (undir liðnum öll námskeið) Opið kvöld í Listasmiðjunni þann 18. okt. kl. 19:30 - 22:30. Bara koma og mála, tala, horfa á eða bara eitthvað. Heitt kaffi á könnunni og leiðbeinandi á staðnum. Allir velkomnir, frítt inn. Stjórn FMR FMR Ásmundur Frið- riksson sækist eftir 3. sæti Ásmundur Friðriks- son fv. bæja- stjóri í Garði hefur ákveðið að gefa kost á sér á lista Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Kjördæmisráð í Suðurkjör- dæmi ákveður fyrirkomulag við val á listann á næstunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ásmundi. Þar segir jafnframt: „Í störfum mínum sem þingmaður vil ég ná árangri undir þjónandi forystu Sjálfstæðisflokksins fyrir hinn vinnandi mann. Eina leiðin til að bæta lífskjörin og tryggja vel- ferð og réttlæti er að veita fólkinu í landinu frelsi til athafna í opnu og frjálsu samfélagi. Þingmennska er starf sem gefur mér tækifæri til að berjast fyrir hagsmunum fólksins; fyrir öflugu atvinnu- lífi, fyrir störfum sem ég þekki af eigin raun til sjávar og sveita, fyrir menntun og nýsköpun, fyrir tengslum atvinnulífs og skóla, fyrir framtíð unga fólksins, fyrir virkni og þátttöku fatlaðra í samfélaginu, fyrir sanngjarnri leiðréttingu verðtryggðra lána, fyrir þá sem hafa tapað trúnni á þjóðfélagið. Í störfum mínum fyrir íþrótta- hreyfinguna, mannræktar- félög og sem bæjarstjóri í Garði hef ég verið þjónn fólksins. Skilvirkni og einlægni í störfum mínum er lykillinn að góðum starfsárangri sem ég vil nýta mér í þágu Suðurkjördæmis ef ég fæ til þess styrk. Hagsmunir almennings í landinu eiga að ganga fyrir. Þar mun ég láta verkin tala og þjóna fólkinu á mannlegum nótum. Með þessari ákvörðun er ég að svara kalli fjölda fólks sem hefur hvatt mig eindregið til þátttöku í stjórnmálum í fremstu röð. Ég sækist því eftir 3ja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi fyrir komandi kosningar.“ Ásmundur Friðriksson fv. bæjarstjóri í Garði. Hannes sækist eftir 3. sæti Samfylkingar Hannes Frið- riksson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Samfylkingar- innar vegna alþingiskosn- inganna í Suðurkjördæmi. „Það geri ég vegna þess að ég hef áhuga og vilja til að taka virkan þátt í því að móta samfélag okkar um leið og ég tel að fjölbreytt reynsla mín nýtist til góðra verka á Alþingi. Ég hef á undanförnum árum tekið virkan þátt í bæjarmálapólitík í Reykjanesbæ á víðum grunni. Þar hef ég verið í senn gagnrýninn á fjárhagsstjórn bæjarins og tekið þátt í baráttu og umræðu um veigamikil mál er snerta samfélag okkar hér á Suðurnesjum. Hæst ber þar að nefna málefni Hitaveitu Suðurnesja, Eignarhaldsfélagsins Fasteignar og hjúkrunarheimilis við Nesvelli. Jafnframt þessu hef ég tekið þátt í starfi Umbótanefndar Sam- fylkingar og Velferðarnefndar Sam- fylkingar þar sem ég hef tekið þátt í stefnumótun flokksins í velferðar- málum. Ég er í stjórn Fasteigna Reykjanesbæjar ásamt því að eiga sæti í Fjölskyldu- og félagsmálaráði Reykjanesbæjar þar sem ég hef fengið innsýn og þekkingu á þeim málaflokkum er undir það falla.“ Hannes Friðriksson. Fré ttir Fyrirmyndar- akstur við skóla Lögreglan á Suðurnesjum hélt uppi eftirliti með umferð við grunnskóla og leikskóla í umdæminu í vikunni sem leið. Við suma skólana var mikil umferð, en aksturinn var undan- tekningalaust til fyrirmyndar. Þó var rætt við einn ökumann sem hleypti barni sínu út um bílhurð er sneri að götunni og þar með umferðinni. Hann lofaði að gera slíkt ekki aftur. Smáhundar bitu bréfbera Bréfberi hjá Póstinum tilkynnti lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni að tveir hundar hefðu veist að sér og annar þeirra bitið sig. Bréfberinn var að bera út póst í kjallaraíbúð í umdæminu og stóð hurðin opin. Fyrr en varði komu tveir hundar af chihuahuakyni út og beit annar hundurinn hann í fótinn svo áverkar hlutust af. Bréfberinn fór á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja þar sem hann var sprautaður vegna bitsins og settur á lyfjakúr. Heil- brigðiseftirliti Suðurnesja er tilkynnt um mál af þessu tagi. Hópur pilta réðst á einn Hópur pilta réðst á mann um tvítugt í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Piltarnir börðu hann og spörkuðu í hann með þeim afleiðingum að sauma þurfti tæplega tíu spor í höfuð hans og nef. Talið var að hann hefði nefbrotnað. Árásarmennirnir töldu sig eiga vantalað við félaga þess sem ráðist var á og komu að íbúð hins fyrrnefnda í því skyni. Maðurinn varnaði þeim inn- göngu og réðust þeir þá á hann. Lögregla rannsakar málið. Handtekinn eftir vímuakstur Lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina rúmlega tvítugan ökumann þar sem hann var grunaður um ölvun við akstur. Hann sat í ökumannssæti með bílinn í gangi, en drap á honum þegar lögregla kom á vettvang. Hann kvaðst ekki hafa verið að aka bílnum, en breytti síðan framburði sínum eftir að á lögreglustöð var komið, og játaði brot sitt. Rökstuddur grunur er um að maður- inn hafi einnig verið undir áhrifum ýmissa fíkniefna. Maðurinn hafði áður verið sviptur ökuréttindum ævilangt. Frambjóðendur Á SuðurneSjum Þarftu að auglýsa? Hafðu samband í síma 421 0001 eða á fusi@vf.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.